Vikublaðið - 17.02.1997, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 17.02.1997, Blaðsíða 5
17. febrúar 1997 UljyLiJj D Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður Jafnréttis- ráðs, hélt í síðustu viku fyrirlestur í Háskóla ís- lands sem fjallaði um tregðu karia til þess að skilgreina sig sem kynteg- und. Blaðamaður Viku- blaðsins heimsótti Ingólf á skrifstofu Jafnréttisráðs og fékk hann í stutt spjall um kreppu kynjagerðar vestrænna samfélaga. Er nauðsynlegt að karlar skilgreini sig sem kyntegund? Já, sem félagslegt kyn af því að þeir hafa verið skilgreindir sem normið eða það sem er eðlilegt. Á meðan konumar hafa verið frávikin. Til þess að menn geti tekið á kynja-strúktúm- um í samfélaginu sem leikur konur um margt mjög grátt, þá er mikilvægt að menn átti sig á því að karlmennsk- an er líka eitthvað sem er skapað í fé- lagslegum tengslum en er ekki eitt- hvað sem er fyrirfram gefið. Það hafa verið hin almennu viðhorf að það sé eðlilegt að karlar séu 75% þing- manna, að allir bankastjórar og for- stöðumenn stærstu fyrirtækjanna séu karlar, Og þess vegna má ekki grípa til neinna sértækra aðgerða til að rétta hlut kvenna vegna þess að þá er geng- ið gegn hinu norminu. En ég held hins vegar að ef menn átti sig á því að karl- mennska sé líka félagsleg afurð þá opnist nýir möguleikar til að breyta samfélaginu. Nú hefur margt verið ritað og rætt um reynsluheim kvenna. Þú sagðir að menn ættu ekki að lfta svo á að karlmennskan væri fyrirfram gef- , ■ r.. _ inn, áttu við að hún sé afurð reynsluheims karla? Það er einn af meginpunktunum í hinum nýju, gagnrýnu karlafræðum að það sé ekki um neinn einn slíkan heim að ræða eða hina einu sönnu karlmennsku heldur móti mismun- andi hópar mismunandi karlmennsku og það sé meðal annars mótað af öðr- um formgerðum í samfélaginu; stétt- um, búsetu og kynþáttum o.s.frv. Menn eru ofnir saman úr mörgum þráðum, bæði karlar og konur. Og það er ekkert gefið að það að vera kona þýði það að þú hafir sama reynsluheim og aðrar konur. Eru karlafræðin þá ákveðin við- leitni til að búa til hinn „mjúka” mann? Nei, nú hefur að sumu leyti verið að ósekju gert grín að því fyrirbæri. Það er kannski liður í vöm feðraveld- isins að gera gys að þeim sem eru öðmvísi sem karlmenn. En maður vill sjá aukna möguleika karlmanna til að lifa fjölbreyttara lífi. Þ.e.a.s. að það eigi sér stað breikkun á hlutverka- möguleikum karla. Slík breikkun hef- ur orðið hjá konum á síðustu áratug- um. En maður hefur orðið minna var við það hjá körlum. Bæði hvað varðar atvinnuþátttöku þar sem þeir fara lítið sem ekkert inn í hefðbundnar kvenna- greinar. Það em helst breytingar varð- andi kynhegðun, það er t.d. ekki sama „stigma” gagnvart því að vera hommi og áður. Menn geta nú leyft sér að grínast með kynhegðun þannig að menn vinna á skrifstofu á daginn en em dragdrottningar á kvöldin. Þetta er smátt og smátt að verða leyfilegt. Ef menn geta talað um pólitísk mark- mið þá er það viðurkenning á fjöl- breytileika karlmennskunnar sem við viljum sjá. Eru þessar pælingar í fyrirlestrin- um þá tilraun til að ýta eftir þessari þróun? Já, það má segja það. Eg ræði kreppu kynjagerðar vestrænna samfé- laga. Það er að segja að feðraveldið eigi í lögmætiskrísu og ég velti fyrir mér mögulegum lendingum þeirrar krísu. Einn möguleiki er sá að við fá- sem und um bakslag á þessum þó litlu framför- um sem orðið hafa á möguleikum kvenna. Að þeim verði einhvem veg- inn snúið við. Síðan er hinn mögu- leikinn að karlar verði viðurkenndir sem félagslegt kyn ekki síður en kon- ur. Til þess yrði að grípa til pólitískra aðgerða fái þeir aukna möguleika til að breikka sína hlutverkamöguleika. Hvaða pólitísku aðgerðir sérðu fyr- ir þér í því ? Þar horfi ég mikið til aukinna möguleika á fæðingarorlofi og auk- inna möguleika feðra til að sinna bömum sínum. En í atvinnulífinu, t.d. sókn karla inn á þau svið sem hingað til hafa tilheyrt konum? Ég held að mér sé óhætt að á öllum Norðurlöndunum, öðmm en íslandi, hafa menn gripið til einhverra að- gerða til að auka þátt karla í uppeldis og umönnunarstörfum. Það skal við- urkennt að það hefur gengið treglega. Þá vaknar sú spuming hvort að við höfum í raun og vem náð einhverjum árangri þó að við fjölguðum körlum á leikskólunum ef eftir sem áður mat samfélagsins á þeim störfum er jafn aumt og það er í dag. Þannig að mað- ur myndi vilja sjá að samfélagið sýndi það í verki að þetta séu þau mikilvæg- ustu störf sem unnin em í samfélag- inu; uppeldi og umönnun, með því að launa þau sem slík. Það þýðir þó ekki að það þurfi að laga launin til þess að karlar sæki í störfin. Enda held ég að það dygði ekki. Við sjáum t.d. í lönd- um þar sem hjúkrunarfræðingar em tiltölulega vel launaðir að eftir sem áður em karlar mjög fáir þar. Þannig að þó að launin skipti einhverju máli þá eru það ekki þáu sem að er höfuð- atriðið varðandi það að fá karla í störfin. heldur flokksþing 8. mars og þar Þá veldur það SLN-mönnum HEIMSHORN Skotland - full- valda ríki? Svo kann að fara að innan örfárra ára verði sjálfstæðisbarátta Skota komin á fulla ferð. Ástæða þess kann að vera fólgin í kosningalof- orði formanns Verkamannaflokks Bretlands, Tony Blair. Blair hefur lofað því að ef Verka- mannaflokkurinn vinnur sigur í bresku þingkosningunum, sem fara fram eftir um þrjá mánuði, muni hann sjá til þess að sérstakt þing Skotlands verði sett á laggimar tveimur áram eftir kosningamar eða á miðju fyrsta kjörtímabili Bla- ir og félaga. Gamlir refir í Verka- mannaflokknum eru orðnir veru- lega áhyggjufullir, því valdabarátta er hafin innan Skotlandsdeildar flokksins, barátta sem gæti endað með háværri kröfu um sjálfstæði Skotlands. Skoski Verkamannaflokkurinn verður að vanda kosið í embætti og stjórnir. Þar á einnig að smíða regl- ur um val fulltrúa á væntanlegt þing Skotlands í Edinborg. Og innan skoska Verkamannaflokksins tak- ast á tveir armar um völdin, ný blokk sem nefnist „Scottish Labour Network” (SLN) og núverandi for- ysta í Skotlandi, sem í augum SLN liggur of langt til vinstri og gæti því stuðað margan kjósandann í kosn- ingum eftir tvö ár, ekki síst ef Blair kynni þá að vera orðinn óvinsæll. áhyggjum að öflugustu Skotamir í Breska Verkamannaflokknum (Gordon Brown, Robin Cook og Donald Dewar) virðast staðráðnir í því að halda sér áfram í pólitíkinni í Westminster, London. Þeir óttast að sitja uppi með lítt þekkta fram- bjóðendur í skosku kosningunum. Stórar og smáar skærar eiga sér stað. Meðal annars deila menn út og suður um hversu mikið sjálfsfor- ræði Skoska þingið ætti að hafa í fjármálum - á þingið að ráða yfir lágu „útsvari” af tekjuskattinum í Bretlandi eða á það að fá alla stað- greiðslu skoskra þegna. Það fer vart á milli mála hverjir munu sigra í kosningunum í Bret- landi. Nýlegar kannanir mæla Verkamannaflokkinn með öragga stöðu og mælist hann með 52% í Skotlandi (þar sem hann fékk 39% í kosningunum 1992). f könnunum mælast Scottish National Party með 25%, íhaldsflokkurinn með aðeins 15% (fékk 26% árið 1992) og Frjálslyndi demókrataflokkurinn með 8%. Það er annars athyglistvert við kosningaloforðið um sérstakt þing Skotlands að í hugmyndunum er gert ráð fyrir hlutfallskosningu en ekki einmenningskjördæmum. Þarna er mikill munur á eins og dæmin sanna og ólíklegt talið að einn flokkur næði hreinum meiri- hluta. Það fer síðan eftir frammi- stöðu hins væntanlega þings í aug- um Skota hvort kjósendur sætta sig við þetta millistigsástand eða hvort krafan um algert sjálfstæði öðlast flug. AHRIF Helgi Hjörvar framkvœmdastjóri Blindra- félagsins Hvaða bækur og rithöfundar hafa haft mest áhrif á pólitískar skoðan- ir þínar? Rfkið eftir Platón, Frelsið eftir Mill, Kenning um réttlæti eftir Rawls. Nefndu eina kvikniynd, bók, leik- rit, ljóð, lag eða tónverk sem þú vilt að allir lesi, sjái heyri. Kvikmynd: Einræðisherrann eftir Chaplin. Bók: Uppreisnin á baraa- heimilinu. Leikrit: Kennslustundin eftir Ionesco. Ljóð: Gras eftir Sand- burg. Tónverk: Óðurinn til gleðinnar eftir Beethoven. Hver hafði mest áhrif á þig í æsku? Foreldrar mínir. Hvaða atburður í lífstíð þinni hefur haft mest áhrif á skoðanir þínar? Kynni mín af ógnarstjóminni f Aust- ur-Evrópu. Þangað fór ég þegar ég var 14 ára. En þau kynni leiðréttu nokkuð af ranghugmyndum mínum. Hvaða stjórnmálamanni lífs eða liðnum hefur þú mest álit á? Gandhi. Ef þú gætir farið á hvaða tíma sög- unnar sem er og dvalið þar í 24 tíma. Hvert færirðu og hvers vegna? Til fyrstu 24 tíma hennar. Til þess að fá að vita hvernig öll þessi vitleysa byrjaði. Hjá hverjum leitarðu ráðlegginga í mikilvægum málum? Hildi dóttur minni, 5 ára. Ef þú mættir setja ein lög, hver yrðu þau? Lög um nýtt, virkara og víðtækara lýðræði. ÁBENmNG Jómfrúardjass Djassklúbbur Jómfrúarinnar stend- ur fyrir uppákomum á hverju föstu- dagskvöldi og hefur dagskrá verið ákveðin að minnsta kosti næstu tutt- ugu kvöld fram í tímann. Næstkomandi föstudagskvöld munu Jteir Hilmar Jensson, gítar, Jó- hann Ásmundsson, bassi, og Matthías Hemstock, trommur, leika djassút- setningar á vinsælum popplögum. Með þeim verður söngkonan Teena Palmer. Tónleikamir hefjast urn níuleytið og standa til miðnættis ef stemmning verður góð. Það er vert að geta þess að danskt smurbrauð er framreitt á með- an djassinn dunar. Skemmtun á Hótel Sögu Um síðustu helgi var Allabadderí framsýnt á Hótel Sögu. Sýnt var fyrir fullu húsi. Að Allabadderí standa þau Egill Ólafsson, Sigrún Eva Ármanns- dóttir og Tamlasveitin. Sýningar All- abadderís era ásamt glensi Spaug- stofumanna áformuð um hverju helgi það sem eftir lifir vetrar.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.