Vikublaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 1
Stöðugar hótanir „Mér fyndist það undarlegt ef verkalýðshreyfingin yndi því að semja við stjórnvöld um efna- hagsaðgerðir undir stöðugum hótunum um skerðingu félags- legra réttinda og framkvæmd stjórnarstefnunnar," segir Kári Arnór Kárason, formaður Verka- lýðsfélags Húsavíkur og Alþýðu- sambands Norðurlands, en viðtal við hann er á opnu blaðsins í dag. Óheft sókn á Islandsmið baksíða ✓ A toppinn í norskri pólitík 10 Græna netið er svarið 11 Stóra ASÍ-tilraunin og litla byltingin Fréttaskýring Páls Vilhjálmssonar 4 Sjávarútvegssamningur Islands og EB - Ágreiningur í ríkisstjóminni jón Baldvin vill fall- ast á veiðikröfur EB * Þorsteinn Pálsson heldur fast við kröfur Mendinga Jón Baldvin Hannibalsson hef- ur undanfarna daga tekið upp þá línu að Islendingar verði nú að fallast á fiskveiðikröfur Evrópu- bandalagsins til þess að EES- samningurinn nái fram að ganga. Þessu hefur Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra neitað. Verði kröfur Evrópubandalagsins samþykktar eins og Jón Baldvin vill nú, fela þær í sér að bandalagið hef- ur, í tengslum við EES-samninginn, náð fram hreinum fiskveiðiréttindum í íslenskri lögsögu eins og það hefur farið fram á síðan 1976. Drög að fiskveiðisamningi íslands og EB eru í Brússel talin mikill sigur fyrir samningamenn EB. Rætur vandans eru þær að með ónákvæmu orðalagi í svokallaðri Oporto-yfirlýsingu samdi utanríkis- ráðherra í raun af sér. Mikill titringur er í herbúðum Sjálf- stæðisflokksins vegna þessa máls. Og Jón Baldvin neitar að láta EES-santninginn falla á tíma. Þess vegna berst hann nú harðri baráttu bak við tjöldin fyrir því að íslending- ar fallist á fiskveiðikröfur EB. Sjá nánar síðu 13. Bókamenn fagna Þeir senda báðir frá sér bækur fyrir þessi jól, Thor Vilhjálmsson og Þorsteinn Gylfason. Bók Thors ber titilinn Raddir úr garðinum og hefur að geyma endurminningar, en bók sína nefnir Þorsteinn Til- raun um heiminn og er hún heim- spekilegs efnis. Um síðustu helgi hittust þeir í Norræna húsinu þar sem fjöldi manns samfagnaði Thor Vilhjálmssyni vegna þeirrar sæmd- ar er honum hlotnaðist í haust þeg- ar Sænska akademían veitti honum bókmenntaverðlaun sem áður hafa fallið örfáum norrænum úrvalsrit- höfundum í skaut. Sjá síðu 6. Tíl hamingju! Nú erum við loksins komin með nýtt málgagn og ég óska okkur öll- um til hamingju með það. Viku- blaðið er blað félagshyggjufólks, jafnréttissinna og allra þeirra sem um langa hríð hefur skort lifandi vettvang fyrir stjórnmálaumræðu og þjóðfélagsrýni. Þá á hlaðið ekki aðeins að hrærast í valdaklíkun- um í Reykjavík, heldur líka veita málefnum landsbyggðarinnar fulla athygli. Vikublaðið er ekki flokksmálgagn í gömlum skilningi þess orðs. Al- þýðubandalagið hefur að vísu for- göngu um útgáfu þess og ber fjár- hagslega ábyrgð á því, en það tekur jafnframt þá áhættu að veita ritstjóra fullt sjálfstæði til þess að ritstýra blaðinu á faglegum grunni. Við trú- um því einfaldlega að þannig búum við til betra blað. Nýsköpun í blaða- mennskufaginu er líka löngu tíma- bær og ég mun ráða blaðamenn og lausapenna með tilliti til þess að þeir séu tilbúnir að takast á við og þróa nýjan, gagnrýninn og fjörlegan stíl í blaðamennsku. Sjálfri finnst mér afar spennandi að taka við ritstjórn Vikublaðsins. Ég er stolt af því að vera kona á rit- stjórastól og ætla mér að láta sjást á síðum blaðsins að virkur jafnréttis- sinni heldur þar um stjórnartaumana. Ákvörðunin var ekki auðveld. Ég yf- irgef starf verkefnisstjóra norræna jafnlaunaverkefnisins, sem mér hef- ur þótt ákaflega vænt um, vegna þess að ég tel að ég geti sem ritstjóri haft jafnvel meiri áhrif í jafnréttismálum en hingað til. En ég þarf tíma til þess að pakka saman og þvf sest ég ekki í ritstjórastólinn fyrr en um áramót. Þangað til munu Einar Karl Haralds- son og Ólafur Þórðarson hafa um- sjón með úlgáfunni í samráði við mig. Með kœrrí kveðju Hildur Jónsdúttir Hildur Jónsdóttir ritstjóri

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.