Vikublaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 6

Vikublaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 6
6 v ir\u 10 i i- i- i / VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. nóvember 1992 Miklum fagnað „Þegar þekktasta akademía heims veitir Thor Vilhjálms- syni verðlaun sem eingöngu hafa fallið nokkrum úrvals lista- mönnum í skaut og ganga næst nóbelsverðlaunum, er ástæða fyrir þjóðina alla til þess að fagna þeim sóma.“ Eitthvað á þessa leið fórust Sigurði Pálssyni rithöfundi orð í hófí sem Norræna húsið, sænski sendiherrann og Mál og menning héldu rithöfundinum í Norræna húsinu sl. föstu- dagskvöld. Þar var samankominn fjöldi manns til þess að samfagna skáldinu sem fyrir nokkru voru afhent Norrænu verðlaun Sænsku akademíunnar við hátíðlega athöfn í Stokk- hólmi. Auk Sigurðar fluttu ávörp Einar Kárason rithöfundur, Göte Magnusson sendiherra og Halldór Guðmundsson útgáfu- stjóri. Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona söng við undirleik tónskáldsins Hjálmars H. Ragnarssonar. Thor þakk- aði fyrir sig með nokkrum orðum. Á myndunum sem hér fylgja úr fagnaðinum má greina Auði Laxness og Margréti Indriðadóttur, Thor eiginmann hennar, Jakob Benediktsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Áma Bergmann, Bjöm Th. Bjömsson, Halldór Guðmundsson, Örnólf Thorsson, Gísla Sigurðsson og Þómnni Valdimars- dóttur svo nokkrir séu nefndir. tíðíndum ... hlýtt, mjúkt og notalegt... Þessi litla glaðlega dama er heldur betur ánægð í nýju kápunni, enda er hún hlý, mjúk og notaleg. Kápan er úr ull og fóðruð með 100 % polyester. í slaufu, kraga og í líningum framan á ermum er silkimjúkt svart flauel. Tölurn- ar eru líka fóðraðar með flauelinu svarta. Húfan er svört alpahúfa. Kápan hlýja og mjúka fæst í stærð- unum 86 - 152 og kostar aðeins 9.500 krónur. Tilvalin yfirhöfn um jól- in og í byrjun nýs árs. Kápan fæst í versluninni X og Z á Laugavegi 12 . . . þýsk-ítölsk föt eins og við viljum . . . Hann er franskur, fötin eru þýsk-ítölsk og skórnir breskir. Evrópusamruninn fuílkomnast svo þegar Islendingar af öll- um stærðum og gerðum eru komnir í föt- in hans Bieser Claude sem eru frá B. Baumler. Þetta eru 100 % ullarföt sem halda einstaklega vel brotum. Buxurnar eru fóðraðar og allur frágangur eins og við Islendingar viljum hafa það - allt gegnumvandað og ekkert fúsk. Jakkafötin frá B. Baumler eru til í öll- um stærðum, allt frá no. 46, sem eru fyr- ir stráka og maraþonhlaupara, og uppí no. 72, sem eru fyrir fullvaxna karl- menn. Hægt er að fá þessi fallegu jakkaföt í mörgum litum svo sem dökk lilluð, blá- græn, dökkblá, svört, milligrá og dökk- grá og hvort heldur sem er einhneppt eða tvíhneppt, en þau fást aðeins í Herrahúsinu-Adam, Laugavegi 47, og kosta 29.500 krónur. Silkibindi eins og Bieser Claude er með um hálsinn fást í fjölbreyttu úr- vali og kosta 2.900 krónur. Og ekki má gleyma skónum. Þeir eru frá hinu heimsþekkta fyr- irtæki K-SHOES í Lundúnum.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.