Vikublaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 19.11.1992, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 19. nóvember 1992 VIKUBLAÐIÐ 5 KvenmannslaiLst framtíðarrflá SUS Stefnir, blað Sambands ungra sjálfstæðismanna, kom út á dögun- um. Að þessu sinni fjallar það um forsendur franrtíðar á íslandi. í átján mikið myndskreyttum greinum, senr allar eru unr og eftir karla og ýmist með myndum af greinarhöfundum (körlum) eða viðmælendum (körl- um), eru framtíðinni gerð skil, svona eins og ungir sjálfstæðismenn sjá hana. Eins og segir í inngangsgrein blaðsins þá fjallar það um „at- vinnuþróun, hagvöxt, neyslu, heilsu- far. Með öðrum orðurn er það vel- sældin sem við viljum vera örugg um fyrst og fremst." Það þarf ekki að fletta mörgum síðum í þessu blaði til að átta sig á því að í þessari framtíð er annað hvort búið að afnema konur með öllu, læsa þær inni eða setja þær á safn. I framtíðarsýn þessara ungu rembukarla eru engin heimili, engar fjölskyldur, engar konur, engin börn, engir aldraðir, ekkert rúm fyrir um- hverfismál. Bara vald, vélar og pen- ingar, samankomið í fáum karla- höndum. Forsíðan á Stefni, blaði Sam- bands ungra sjálfstœðismanna, þar sem lýst er kvenmannslausu framtíðarþjóðfélagi. Það þarfekki að fíetta mörgum síðum íþessu bkiði íií að átta sig á þvíað íþessari framtíð er annað hvort búið að afnema konur með öllit, lœsa þœr inni eða setja þœr á safn. I fmmtíðarsýn þ essara ungu rembukarla eru engin heimili, engar jjölskyldur, engar kon- ur, engin börn, engir - aldraðir, ekkert rúm fyrir umhverfismáL Bara vald, vélar og peningar, samankomið ífáum karlahöndum. Tippadekrið - afsakið orðbragðið - er algert. Kenningar um að turnar og önnur slík fyrirbrigði væru tippa- tákn þóttu broslegar. En hvað á að halda þegar flett er heilu blaði þar sem allar myndskreytingar falla eins og flís við rass þeirrar kenningar? A forsíðunni, sem er kapítuli út af fyrir sig, er útkýldur sterabolti á sund- skýlu tilbúinn að stinga rafmagnssn- úru í samband. Reyndar í vitlausu landi, því eftir myndinni að dæma eru Islendingar komnir á fremsta hlunn með að kaupa orku í Bret- landi. Karlar að klífa stiga, karlar á einhverjum tindum út og suður, tum- ar, súlur og pýramídar. Karlar í hlut- verki Guðs almáttugs. Eina myndin sem sýnir einhvers konar vinnu innta af hendi er af vélmenni. I blaðinu eru reyndar myndir af tveimur konur. Önnur er af Vigdísi forseta með biskup til annarrar hand- ar og forsætisráðherra til hinnar á leið inn í Alþingishúsið og löggur á heiðursverði í forgrunni. Hin er teiknuð mynd af karli og konu hlið við hlið í sósíalrealískum stíl og fylgir myndin grein um SÍA- skjölin og skuggalega fortíð ungra sósíalista á Islandi. Sú fortíð er frá sjónarhóli greinarhöfundar blessunarlega liðin og eina konan í blaðinu - að Vigdísi undanskilinni - því fortíðarvandi vinstrihreyfingarinnar. Svona af- hjúpa ungir sjálfstæðismenn ósk- hyggju sína. Þeir virðast nefnilega vona innst inni að konur hverfi af sjónarsviði stjórnmálanna á svipað- an hátt og alheimskommúnisminn sjálfur! Það kemur ekki á óvart að svo gott sem engar konur hafa komið nálægt þessum óskapnaði og þær fáu sem nefndar eru í tengslum við útgáfuna eins og statistar í aukahlutverkum. í fimm manna stjórn SUS er ein kona og í hópi meðstjórnenda, sem eru tuttugu, er sömuleiðis ein kona. í út- gáfuráði er engin kona en við vinnslu blaðsins virðast tvær konur hafa komið við sögu, önnur sem prófarkalesari og hin í auglýsingum. Hvað skyldi Freud hafa sagt? USS-suss-SUS. Borland kynnir EINSTAKT TILBOD ó töflureiknum! Sameinaðu kostina Núna getur þú gert mjög góð kaup á töflureiknum frá Borland. Þú getur fengið frábæran töflureikni fyrir DOS og Windows á verði annars þeirra. Þetta einstaka tilboð kallar Borland WinDOS.™ Nýjung: Quattro Pro fyrir Windows með minnis- blokkum í Quattro Pro fyrir Windows er hægt að gera fjölmargt sem er ómögulegt með öðrum töflureikni. Frumlegar minnis- blokkir (Notebooks) með flipum sem gefa má nöfn gera þér auðveldara en nokkru sinni að skipuleggja töflumar þínar og halda þeim við. Hlutaskyggnir (Object Inspector) opnar valseðla sem veita með nýjum hætti aðgang að við- eigandi möguleikum. Og í Quattro Pro er rómuð grafík sem jafnast á við sjálf- stæð grafíkforrit. Auðvelt er að sækja gögn í gagnagrunna og nota ný og öflug verkfæri við að greina samhengi hlut- anna. Auk þess er allt sem þarf til að búa til sérsmíðuð notendaforrit. Allt þetta og margt fleira gerir Quattro Pro fyrir Windows öflugra og aðgengilegra en áður hefur þekkst. fiáaösiáEi os* l QUATTROPRO il|| otwisorcofCBWiíocws B 0 R l A N D oiwnodtoiDfCROos B O R l A N D Quattro Pre fyrir Windows og DOS Tvöfoldur pokki ó einföldu verði Tímabundið tilboð, gríptu tœkifœrið! Hofðu sombond, þú færð hvergi öflugri töfiureikni! Medfylgjandi er „Quattro Pro 4.0... hinn fullkomni DOS töflureiknir" InfoWorld, apríl 1992 Enginn annar töflureiknir hefur unnið til jafn margra viðurkenninga og Quattro Pro fyrir DOS. Milljónir notenda hafa þegar valið Quattro Pro því í honum samejnast á einstæðan hátt öflugir þrýstihnappar og gröf sem laga sig eftir breytingum gagnanna. Frábær samhæfni við Lotus og Excel Það er ekki nóg að Quattro Pro lesi og visti skrár með Lotus og Excel sniði auk margra annarra heldur getur forritið líka notað fjölva og umbrot úr öðrum forritum. Af hverjv WinDOS? Með WinDOS tilboðinu er mun auð- veldara en áður að flytja sig milli DOS og Windows. Hægt er að nota bæði DOS og Windows ef það hentar t.d. Windows í vinnunni og DOS á fartölv- unni eða heima. Þú hefur alveg einstakt tækifæri til að fá þér Quattro Pro WinDOS núna. Gríptu tækifærið strax í dag og fáðu þér fullkominn töflureikni fyrir DOS og Windows á tilboðsverði. ORTOLVUTÆKNI Tölvukaup hf • Skeifunni 17 • Sími 687220 • Fax 687260

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.