Vikublaðið - 17.02.1997, Page 7

Vikublaðið - 17.02.1997, Page 7
17. febrúar 1997 HHLSMÐQÍD get ekki sagt að ég hafi mikla trú á stjómmálamönnum, þeir hafa ekkert gert fyrir okkur sem erum á lægstu laununum. Þeir em flestir ómögulegir og mín vegna mættu þeir allir fara í frí. Einkagóðæri Davíðs og hinna ríku Fólk hefur þurft að búa við afar bág kjör í alltof langan tíma, það eru löngu orðið tímabært að þessu linni. Svo tala menn um góðæri. Þetta góð- æri hefur farið ffamhjá mér og reynd- ar öllum sem ég þekki og tala við. Ég held barasta að þetta sé eitthvert einkagóðæri hjá honum Davíð. Ef þetta góðæri er í raun staðreynd þá skil ég ekki af hverju láglaunafólkið ætti ekki að fá réttlátan skerf af því. En líklega er þetta einungis góðæri hinna efnameiri.” Um síðustu áramót var persónuaf- slátturinn frystur af stjómvöldum, lík- lega í þeim tilgangi að selja launþeg- um hann aftur í kjarasamningum. Hvað finnst Rannveigu um þetta? „Við látum ekki plata okkur með þessu bragði. Það er staðföst skoðun mín að það eigi að hækka skatta hjá þeim sem hæst hafa launin. Mér þætti ekki óeðlilegt að miða við 150 þús- und króna tekjur og allt þar yfir. Það verður að setja þak. Vandinn er hins vegar sá að þeir sem ráða þessu em sjálfir hálaunamenn og maður sér það nú ekki alveg fyrir sér að þessir menn byrji á því að auka skattaálögur á sjálfum sér. Það er óþolandi að hinir lægst launuðu þurfi sífellt að borga brúsann. Þetta misrétti hefur verið lát- ið óátalið í alltof mörg ár. Menn verða að sættast á að allt undir 70 þúsundum er of lágt. Auðvit- að vildi ég sjá enn hærri lágmarks- laun, en það verður að taka á þessum málum af skynsemi. Það er betra að fá þetta í smáskömmtum en að fá ekki neitt.” Fæ hroll þegar ég heyri í Þórarni Viðari Vinnuveitendasambandið er ekki í miklu áliti hjá Rannveigu: „Þórarinn Viðar er maður sem ekki ætti að sjást og ég fæ alltaf hroll þegar ég heyri hann tala. Það er óþolandi þegar þess- ir menn tala um að hækkun lægstu launa muni kveikja mikið verðbólgu- bál á meðan maður heyrir um gríðar- legar launahækkanir bankastjóra í fréttunum. Hvernig er hægt að taka mark á þessum mönnum? Svo talar Þórarinn um að launabil hér sé minna en tíðkast annars staðar. Það getur vel verið rétt en það breytir ekki þeirri staðreynd að fjöldi fólks skrimtir ekki einu sinni af laununum sínum. Hvem- ig eiga annars menn á borð við Þórar- in V, sem hafa árslaun láglauna- mannsins á mánuði að geta sett sig í spor hinna lægst launuðu?” Rannveig hefur ekki mikla trú á að landflótti Islendinga sé þeim til góðs. „Mér hefur aldrei dottið í hug að flýja land, ef svo má að orði komast. Það eru alltaf til menn sem segja að grasið sé grænna hinum megin. Eg hef bara ekki séð að þeir íslendingar, sem ég þekki til, hafi það eitthvað miklu betra þegar þeir eru komnir út fyrir landsteinana. Mér hefur alltaf liðið vel hér á landi og hér vil ég vera.” Lífið ekki eintómt böl Þegar Rannveig er ekki að sinna sjúklingum eða samningamálum fyrir félaga sína í Sókn þá segist hún helst vilja vera heima með fjölskyldunni. „Ég dingla mér nú stundum með vin- konunum, við kíkjum í Kringluna og fáum okkur kaffi á eftir. Við hjónin reynum að vera dugleg að ferðast inn- anlands en við höfum ekki gert mikið af því að fara til útlanda. Ég er uppal- in í sveit, á Syðri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum og þangað förum við gjarna á sumrin. Maðurinn er með hrossadellu en ég hef aldrei verið mikið fyrir reiðmennsku. Lífið er nú ekki bara eintómt böl og það þýðir ekkert annað en að horfa með bjart- sýni til framtíðarinnar. Hlutimir verða ekkert betra þótt menn séu með sífellt volæði. Lífið skröltir víst alltaf áfram af göntlum vana. aþ Bryndís Hlöðversdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögu um iittekt á aðbúnaði íslenskra sjómanna. verji ' eru sagðir hafa fábrotna að- ástandið þegar gömul skip, þar sem Einn þátt þessa máls þarf að skoða Bryndís Hlöðversdóttir, Sigurður Hlöðversson og Steingrímur J. Sigfús- son eru flutningsmenn þingsályktunartillögu um aðbúnað um borð í físki- skipum, þar sem gert er ráð fyrir úttekt á aðbún- aði og starfsumhverfi skipverja um borð í ís- lenskum fískiskipum og að gerðar verði tillögur til ríkisstjórnarinnar um úr- bætur í þeim efnum. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að skipa nefnd er hafi það hlutverk að gera úttekt á aðbúnaði og starfsumhverfi skipverja um borð í íslenskum fiskiskipum og gera tillög- ur til ríkisstjómarinnar um úrbætur í þeim efnum. f nefndinni eigi sæti átta fulltrúar skipaðir af Vinnueftirliti ríkisins, Sjómannasambandi fslands, Farmanna- og fiskimannasambandi íslands, Vélstjórafélagi íslands, Landssambandi íslenskra útvegs- manna, Samtökum úthafsútgerða, landlæknisembættinu og Félagi ís- lenskra heimilislækna. Uttektin taki til allra fiskiskipa sem gerð em út af íslenskum útgerð- um og taki m.a. annars til eftirfarandi þátta: a. öryggismála og alls að- búnaðar í íbúðum og við störf um borð, b. möguleika skipverja til líkamsræktar og tómstundaiðkunar með tilliti til þess tíma sem veiði- ferðin tekur, c. möguleika skipverja til að hafa samband við umheiminn, sér- staklega fjölskyldu sína, d. lengd útiveru og hvenær slíkt sé í síðasta lagi ákveðið, e. dvalartíma í landi milli veiðiferða og hvenær hann sé ákveð- inn, f. vaktafyrirkomulags og hvíldartíma. Að lokinni úttekt skal nefndin gera tillögur um úrbætur á því sem betur má fara til ríkisstjóm- arinnar. Skulu þær tillögur liggja fyr- ir skriflega eigi síðar en 1. júlí 1997 og leggi ríkisstjórnin þær fyrir Al- þingi í upphafi þings haustið 1997.” Starfsumhverfi sem veldur vanlíðan Tillögunni fylgir greinargerð, þar sem segir: „Á síðustu árum hefur umræða um aðbúnað skipverja um borð í fiskiskipum sem gerð eru út af íslenskum útgerðum aukist. Bendir margt til þess að aðbúnaður sé ekki alls staðar sem skyldi og standist ekki nútímakröfur. Hefur athyglin þar einkum beinst að svonefndum út- hafsveiðiskipum, þ.e. skipum sem fara í langar veiðiferðir á fjarlæg mið, þótt vissulega gildi það sama fyrir skip með langa útiveru innan landhelginnar. í nýlegri umfjöllun í Vinnunni, tímariti ASÍ, var fjallað um þessi mál og þar kom fram gagn- rýni á aðbúnað skipverja sem nauð- synlegt er að taka alvarlega. Skip- stöðu al tomstundaiðkunar, samband við land sé takmarkað, aðstaða til lík- amsræktar lítil eða engin, útiverutími óöruggur og dvalartími í landi sömu- leiðis og svo mætti lengi telja. Slíkt starfsumhverfi veldur að sjálfsögðu mikilli vanlíðan hjá skip- verjum og í umræddri umfjöllun er því lýst að þeir þjáist oft af þung- íyndi, sem orsakist ekki síst af því hversu erfitt sé að samhæfa fjöl- skyldulíf og vinnu, hversu fábrotin aðstaða sé til tómstundaiðkunar og líkamsræktar og samskipti við um- heiminn stopul. Þá er því einnig lýst að óljós brottfarartími og heimkomu- tími sé til þess fallinn að spilla að miklu leyti þeim tíma sem menn eiga í landi hverju sinni og geri það að verkum að hann nýtist ekki sem skyldi til hvíldar og afslöppunar. Ymislegt fleira mætti nefna sem hnígur í sömu átt og fram hefur kom- ið á undanfömum mánuðum. í við- tölum í fjölmiðlum við sjómenn, að- standendur þeirra og jafnvel lækna kemur fram að álagið er mikið, bæði á sjómennina sjálfa og fjölskyldur þeirra. Fábrotin ákvæði um vinnuvernd f lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöð- um, er launafólki í landi tryggð ákveðin vinnuvemd, sem felst í lág- marksreglum um öryggi og aðbúnað á vinnustaðnum. Þessi lög taka ekki til skipa og önnur lagaákvæði um vinnuvernd í skipum eru fábrotin. Sérstaklega þykir því ástæða til að gera úttekt á þessum málum um borð í fiskiskipum með það í huga að gerðar verði tillögur til úrbóta sem miði að því að öll fiskiskip uppfylli nútímakröfur um aðbúnað og starfs- umhverfi á vinnustöðum. Kröfur um aðbúnað til sjós hafa að sjálfsögðu breyst mjög mikið á síð- ustu ámm og tekur það jafnt til íbúða sem vinnuaðstöðu. Nýjustu skip flot- ans em flest hönnuð með það í huga að búa sem best að áhöfn og gera líf- ið um borð sem eðlilegast eftir því sem slfkt er hægt. í flotanum eru hins vegar misgömul skip og aðbúnaður því mjög mismunandi. Verst er mikil þrengsh eru um borð og lík- amsræktar- og tómstundaaðstaða lítil eða engin, fara í langar veiðiferðir. serstaklega, en það em reglur um úr- eldingu fiskiskipa og að hve miklu leyti þær verka sem hemill á úrbætur.” Borgarskipulag Reykjavíkur Borgartún 3 105 Reykjavík sími 563 2340 Myndsendir 562 3219 Landakot og næsta nágrenni Kynning á deiliskipulagi Landakotsreits fer fram í sýn- ingarsal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa, Borgar- túni 3, 1. hæð, kl. 9.00-16.00 virka daga, og stendur til 17. mars 1997. i UTBOÐ F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir til- boðum í viðbyggingu við vigtunarhús Malbikunarstöðvar- innar Höfða hf. Um er að ræða steinsteypu og fullnaðarfrágang á 140m2 við- byggingu. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. febr. nk. Opnun tilboða: fímmtud. 6. mars 1997, kl. 11.00 á sama stað. F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í vinnu við lögn brunaslöngukerfis í húseignum hafnarinnar og nefnist verkið: Grandagarður 16 og 18, brunaslöngukerfí. Verkið felst í að leggja aðfærslur að brunaslöngum og upp- setningu á þeim. Helstu magntölur: Vatnslagnir 025 290 m Vatnslagnir 032 450 m Brunaslöngur 27 stk. Hitaþráður 10W150m Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 18. febr. nk. Opnun tilboða: miðvikud. 5. mars 1997, kl. 11.00 á sama stað. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 pósthólf 879 - 121 Reykjavík Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.