Vikublaðið - 17.02.1997, Qupperneq 8
[BiíJMDOKB
17. febrúar 1997
Islensku
tónlist
launin
Itilefni afhendingar
íslensku tónlistar-
verðlaunanna leitaði
Vikublaðið hófanna
hjá fjórum tónlistar-
mönnum til þess að
spyija þá hvaða aug-
um þeir líti þessi
verðlaun, hvernig
þeim lítist á tilnefn-
ingarnar og hvaða
gildi verðlaunin hafi
almennt fyrir tónlist-
arlíf í landinu.
Emiliana
númer eitt
Vekur athygli á
því sem vel er
gert
„í mínum huga eru tónlistarverð-
launin frábær hvatning fyrir lista-
menn. Ef ég ætti hins vegar að velja
söngvara ársins þá væri það Egill 01-
afsson. Egill hefur ekki verið fram-
sækinn í plötuútgáfu þetta árið og fær
því ekki útnefningu, enda hefur hann
einbeitt sér meira að leiksviðinu. Við
Egill vorum reyndar báðir tilnefndir í
fyrra. Ég hlaut sjálfur þrjár tilnefning-
ar og fannst það mjög ánægjulegt
enda átti ég síst von á því, þótt ég hafi
starfað í tónlistarheiminum í 27 ár.
Það er margt spennandi að gerast í
tónlistinni nú og ég mér líst ágætlega
á tilnefningamar, til dæmis finnst mér
útnefning Haraldar Freys, sem besta
trommuleikara, afar spennandi og
hvetjandi fyrir hann.”
Reyni að hafa
gaman af þessu
Næstkomandi fimmtudagskvöld verða
íslensku tónlistarverðlaunin afhent
fjórða sinni. Athöfnin fer fram á Hótel Borg.
Alls eru útnefningar til verðlaunanna í
fimmtán flokkkum og jafnan eru fimm út-
valdir í hveiju hópi. Það var 70 manna hóp-
ur fólks sem tengist tónlistarheiminum á
einn eða annan hátt sem stóð að forvalinu.
Við tilnefninguna er einblínt á þá aðila og
þau verk sem komu út á síðastliðnu ári.
Lesendum til frekari glöggvunar eru útnefn-
ingarnar birtar hér að neðan.
Hljómborðsleikari ársins
Eyþór Gunarssson
(Mezzoforte/Bubbi ofl.)
Jón Ólafsson
(Emiliana Torrini/Stone Free)
Kjartan Valdimarsson
(Todmobile/Fagra veröld)
Máni Svavarsson
(Stefán Hilmarsson)
Pálmi Sigurhjartarson
(Sniglabandið)
Trommuleikari ársins
Einar Valur Scheving
(Bubbi/ýmsir Jazz)
Gunnlaugur Briem
(Mezzoforte)
Haraldur Freyr Gíslason
(Botnleðja)
Jóhann Hjörleifsson
(Emiliana Torrini/Stone Free)
Matthías Hemstock
(Todmobile)
Emiliana Torrini - Merman
KK og Magnús Eiiíksson -
Ómissandi fólk
Kolrassa Krókríðandi -
Köld eru kvennaráð
Páll Óskar Hjálmtýsson - Seif
Páll Rósinkrans -1 belive in you
Stefán Hilmarsson - Eins og er...
Klassík geislaplata ársins
Kristinn Amason -
Northern Light/ Sor ponce
Blásarakvintett Reykjavíkur og
félagar -
W.A. Mozart, Grand partita
Þorsteinn Gauti Sigurðsson-
Tarchmaninov,
píanókonsert
nr.2 í c-moll.
Marta Guðrún Halldórsdóttir og
Öm Magnússon -
íslensk þjóðlög, safn Engel Lund
Þorkell Sigurbjömsson/
Hljómeyki- koma
Egill Ólafsson
söngvari
„Ég er afar hlynntur veitingu tón-
listarverðlauna. það er almennt alltof
lítið fjallað um menningu hér á landi
og þar á ég aðaliega við tónlist og
dans. Klassísk tónlist fær núorðið
meiri umfjöllun en áður. Umfjöllun
um íþróttir í blöðum og ijósvakamiðl-
um em miklu mun umfangsmeiri en
nokkurn tímann menningammfjöllun.
Öll umfjöllun um tónlist virðist vera í
kringum útgáfu á plötum og við það
situr. Vegna þessa held ég að afhend-
ing tónlistarverðlaunanna sé af hinu
góða. Dagbiaðið stóð á sínum tíma
fyrir vinsældakosningu á milli tónlist-
armanna en það jafnast ekki á við
formið sem er á afhendingu tónlistar-
verðlaunanna í dag. Með þessu móti
er kastljósinu beint að mörgum og
ekki endilega bara þeim sem vinna til
verðlauna. Það er mikill fjöldi hæfi-
leikafólks sem vinnur að tónlist í dag,
hvort sem er í poppi eða jazzi og það
á svo sannarlega athyglina skilið.
Af þeim söngvumm sem em til-
nefndir myndi ég setja Emilíönu Torr-
ini í fyrsta sæti með fullri virðingu
fyrir Andreu Gylfadóttur, sem á fylli-
lega heima þama. Ég hef ekki heyrt
mikið í þeim Önnu Haildórsdóttur og
Margréti en Björk hefur auðvitað
sannað sig.
Af karlpeningnum myndi ég ekki
setja neinn í fyrsta sæti. Páll Óskar
væri þó ofarlega hjá mér, hann er
mesti performerinn, svo myndi ég
setja Bjama Ara númer tvö vegna
þess að hann er svo mikill söngvari.
Bubbi á ekki heima á þessum lista því
hann er fyrir löngu búinn að sanna að
hann sé söngvari aldarfjórðungsins. “
Gunnar Hrafnsson
bassaleikari Tamla-
sveitarinnar.
„Það er upphefð fyrir tónlistarfólk
að fá útnefningu til verðlaunanna.
Þetta er einnig frábær hvatning um að
halda áfram og vekur eftirtekt fólks á
þvf sem vel er gert og ekki síst hveijir
það eru sem standa á bak við tónlist-
ina. Ég er þeirrar skoðunar að ekki sé
nóg gert af því kynna þessi verðlaun
fyrir almenningi en manni virðist
þetta meira vera tónlistarmenn að af-
henda öðmm tónlistarmönnum verð-
laun. Þessu verður að breyta.
Ég sit í stjóm FÍH og við höfum
staðið fyrir mörgum tónlistarhátíðum
í gegnum tíðina. Það er von okkar í
FIH að afhending tónlistarverðlaun-
anna verði starfsemi tónlistarmanna á
íslandi til frekari framdráttar í fram-
tíðinni.
Af þeim sem em tiinefndir í ár þá
finnst mér þetta vera góður þver-
skurður af því sem er að gerast í fag-
inu. Ég er mjög sáttur við valið og
það er gaman að sjá ný andlit eins og
Ónnu Halldórsdóttur og Margréti
Kristínu. Sá sem sló mig samt alveg
út af laginu var Páll Rósinkrans, hann
var hreint ótrúlegur. Af plötum ársins
myndi ég telja Botnleðju fremsta í
flokki, sérstaklega lagið þeirra Haus-
verkun, sem reyndar er útnefnt sem
besta lag ársins.”
Margt spennandi
að gerast í tón-
listinni
Ásgeir Óskarsson
trommmuleikari
Stefán Stefánsson
saxófónleikari
„Ég hef alltaf fylgst með tónlistar-
verðlaununum en kannski aldrei sem
nú, þar sem ég sjálfur tilnefndur í
flokki bestu jazzleikara og bestu
blásturshljóðfæraleikara ársins. Ég
hef reyndar kennt meirihluta þeirra
sem em tilnefndir ásamt mér, til dæm-
is þeim Jóel Pálssyni og Óskari Guð-
jónssyni, en þetta er afskaplega
föngulegur hópur. Ég get ekki gert
upp á milli þeirra sem eru tilnefndir í
mínum flokkum, þeir em allir hæfi-
leikamenn. Hópur saxófónleikara er
mjög sterkur hér á landi um þessar
mundir og get ég í fijótu bragði nefnt
tvo mjög góða sem eru ekki tilnefnd-
ir, þá Kristin Svavarsson og Eirík
Örn.
Mér finnst að menn ættu fyrst og
fremst að reyna að hafa gaman af
þessu og listamenn ættu ekki að taka
þetta of alvarlega. Ég veit ekki um
neinn tónlistarmann sem stefnir leynt
og ljóst að því að vinna þessi verð-
laun. Það ber að líta á þetta sem
skemmtun og það er alltaf jákvætt
þegar vakin er athygli á starfi tónlist-
armanna.” hj
Bassaleikari ársins
Eiður Arnason
(Todmobile/Sniglabandið)
Jakob Smári Magnússon
(SSSÓL/Bubbi)
Jóhann Asmundsson
(Mezzoforte)
Ragnar Páll Steinarsson
(Botnleðja)
Róbert Þórhallsson
(Emiliana Torrini/Stone Free)
Söngvari ársins
Bjarni Arason
Bubbi Morthens
Páll Óskar Hjálmtýsson
Páll Rósinkrans
Stefán Hilmarsson
Gítarleikari ársins
Eðvarð Lárusson
(ýmis jazz)
Friðrik Karlsson
(Mezzoforte)
Guðmundur Pétursson
(Emiliana Torrini/Stone Free)
Kristján Kristjánsson (KK)
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
(Todmobile)
Blásturshljóðfæraleikari
ársins
Jóel Pálsson
(Milljónamæringarnir)saxafónn
Öskar Guðjónsson
(Messoforte) Saxófónn
Sigurður Flosason
(kv.Sig.Flos.) Saxófónn
Stefán S. Stefánsson
(S.S.S.) Saxófónn
Veigar Margeirsson
(Milljónam.ofl.) Trompet
Flvtjandi/
hljómsveit ársins
Botnleðja
Emiliana Torrini
Kolrassa Krókríðandi
Mezzoforte
Todmobile
Söngkona ársins
Andrea Gylfadóttir
Anna Halldórsdóttir
Björk Guðmundsdóttir
Emiliana Torrini
Margrét Kristín Sigurðardóttir
Lagahöfnndur ársins
Bubbi Morthens
Jóhann Helgason
Magnús Eiríksson
Stefán Hilmars,
Máni Svavars og Friðrik Sturla
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Textahöfundur ársins
Andrea Gylfadóttir
Bubbi Morthens
Magnús Eiríksson
Megas
Stefán Hilmarsson
Geislaplata ársins
Botnleðja - Fólk er fífl
Lag ársins
Eins og er - Stefán Hilmarsson
Hausverkun - Botnleðja
The Boy Who Giggled So Sweet -
Emiiiana Torrini
Villtir morgnar -
Anna Halldórsdóttir
Woodooman - Todmobile
Verður Emiliana söngkona ársins
1997?
LISTINN
Á íslandi fá tónlistar-
menn gullplötu þegar
plata þeirra hefur selst í
fimm þúsund eintökum.
í útlöndum eru allt
miklu stærra í sniðum
og til dæmis fá tónlist-
armenn í Bandaríkjun-
um platínuplötu þegar
þeir hafa selst í tveimur
milljónum eintaka. Það
þykir vafalaust gott að
ná því marki einu sinni
á lífsleiðinni en sam-
kvæmt lista yfir sölu-
hæstu tónlistarmenn
heimsins þá hafa sumir
gert gott betur.
Listamaður Fjöldi platna
1. Elvis Presley 12
2. The Beatles 11
3. Led Zeppelin 9
4. Billy Joel 8
5. -10. Aeorosmith 7
5.-10. Álabama 7
5.-10. Journey 7
5.-10. Bruce Springsteen7
5.-10. Barbra Streisand 7
* -X-* -