Morgunblaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Topplið formúlu 1, Ferrariog McLaren, frumsýndu íbyrjun vikunnar keppn-isbíla þá sem þau tefla
fram í ár. Bílar beggja eru talsvert
frábrugðnir frá í fyrra og að hluta til
skýrist það af breytingum á tækni-
reglum en sú róttækasta er sú að nú
hefur verið upprættur ýmiss konar
rafeindabúnaður sem létt hefur öku-
mönnum starfið.
Þar breytir mestu að svonefnd
spyrnustýring, einnig kölluð spól-
vörn, hefur verið bönnuð. Mun það
segja helst til sín í ræsingu og í
beygjum. Nú dugar ekki lengur að
beina bílnum í tiltekna átt og gefa
um leið í botn. Áður sá búnaðurinn
um að stýra spyrnunni og koma í veg
fyrir skrans og spól. Gróf meðhöndl-
un bílsins gekk alveg upp en héðan í
frá gengur það ekki; mýktin í akst-
urstækninni fær mun meira vægi og
ökumaður verður að keyra bílinn en
ekki tölvubúnaður hans.
Heimsmeistarinn Kimi Räikkö-
nen ók nýjum bíl fyrstur manna.
Hann var ánægður eftir frumakstur
2008–bíls Ferrari í Fiorano-
brautinni á Ítalíu. „Fyrstu áhrif af
nýja bílnum eru mjög jákvæð. Ég
hef ekki mikið við að miða, get bara
borið hann saman við bílinn í fyrra.
Hann er meðfærilegur án spyrn-
ustýringar. Það var virkilega gaman
að keyra þennan bíl,“ sagði Räikkö-
nen.
Bíll Ferrari er með gjörbreytta
loftaflsfleti frá í fyrra og þyngri en
forverinn, allt vegna breytinga á
tæknireglum. Framendi bílsins er
frábrugðinn, hliðarbelgir vélarhúss-
ins annarrar lögunar og vængir hans
nýir.
Ferrari úthýsti ljósmyndurum
Á þessum bíl vonast Ferrari til að
verja heimsmeistaratitla bílsmiða og
ökuþóra sem liðið vann á nýliðnu ári.
Yfirbygging F2008-bílsins, og þó að-
allega loftfletir hans, verða mjög frá-
brugðnir frá í fyrra. Þess sáust þó
ekki mörg merki við frumsýninguna,
enda sögðu fulltrúar Ferrari að bíll-
inn sem hæfi keppnistímabilið yrði
mjög frábrugðin þeim sem frum-
sýndur var.
Athygli vakti á frumsýningu Ferr-
ari, að þar voru engar myndatökur
leyfðar, heldur lagði liðið fjölmiðlum
til myndir sem teknar höfðu verið
áður í bílsmiðju þess. Ástæðan var
ótti við iðnaðarnjósnir. Mario Al-
mondo framkvæmdastjóri liðsins
sagðist viss um að njósnahneyksli á
borð við það sem átti sér stað í fyrra
endurtæki sig ekki í ár. Hann sagði
Ferrari myndu gera allt sem í þess
valdi stæði til að koma í veg fyrir að
viðkvæmar upplýsingar kæmust úr
höndum liðsins eins og í fyrra. Liður
í því hafi verið að meina ljósmynd-
urum aðgang að frumsýningunni.
Ný silfurör
Keppnisbíll McLaren reyndist
mjög breyttur frá bílnum sem að
flestra mati var sá besti í fyrra.
Hann var frumsýndur við athöfn í
bækistöðvum Mercedes í Stuttgart.
Framkvæmdastjóri McLaren hélt
því fram þar, að nýi bíllinn væri
hraðskreiðari en silfurör síðustu
vertíðar. Með honum vonast liðið til
að geta keppt um heimsmeistaratitla
formúlunnar sem runnu liðinu úr
greipum á nýliðnu ári vegna njósna-
mála og innbyrðis deilna.
Nýr McLaren er með lengra hjól-
haf en 2007-bíllinn. Trjónan hefur
verið lengd og mjókkuð og er ekki
jafn síð fremst og í fyrra. Vængir
eru breyttir frá í fyrra en þeir gætu
átt eftir að taka breytingum. Þá hef-
ur yfirbyggingin verið mótuð nær
innvolsinu og virkar því minni og
fellur betur að bílnum og undir
Ferrari og McLaren sýna nýja
Ferrari Svona lítur nýr keppnisbíll Ferrari fyrir árið 2008.
Heimsmeistari Kimi Raikkonen og Felipe Massa hjá Ferrari stilla sér upp.
Reuters
McLaren Ökuþórar McLaren standa við nýja keppnisbíl liðsins þegar hann var afhjúpaður á mánudaginn síðast-
liðinn í Stuttgart. Frá vinstri: Gary Puffit, Lewis Hamilton, Heikko Kovalainen og Pedro de la Rosa.
Toyota Land Cruiser 120 GX,
diesel, nýskr. 7/2006, ekinn 36 þ.
km, sjálfskiptur, 8 manna,
33” breyttur,krókur, motta í skott,
húddmerki. Verð 5.290.000.
ath! skipti
Toyota Land Cruiser 120 VX diesel,
nýskr. 5/2004 ekinn, 88 þ. km, sjálf-
skiptur, 8 manna, lúga, krókur.
Verð 4.450.000. ath! skipti
Toyota Land Cruiser 120 VX diesel,
nýskr. 10/2004, ekinn 73. þ. km,
sjálfskiptur, 33” breyttur, filmur, spoil-
er, spólvörn og skriðvörn. Verð
4.890.000, ath! skipti
420 6600
REYKJANESBÆ
Toyota Reykjanesbæ - Njarðarbraut 19 - www.toyotareykjanesbae.is
420 6600
Toyota Land Cruiser 100 VX diesel,
nýskr. 6/2001, ekinn 151 þ. km sjálf-
skiptur, 33” breyttur, krókur, webasto
olíumiðstöð, ný dekk.
Verð 3.750.000. ath! skipti
Toyota Land Cruiser 100 VX diesel,
nýskr. 7/2005, ekinn 45 þ. km, sjálf-
skiptur, 7 manna, krókur, spoiler.
Verð 6.900.000- ath skipti
Toyota Hilux 3.0 diesel,
nýskr. 11/2007, ekinn 11 þ. km, sjálf-
skiptur, 33” breyttu, krókur, heit-
klæðning í palli. Verð 3.650.000
Toyota Land Cruiser 120 GX diesel,
nýskr 1/2007, ekinn 17 þ. km, sjálf-
skiptur, spoiler, krókur, húddmerki,
húddhlíf. Verð 5.290.000- ath skipti
Range Rover sport supercharged,
nýskr. 7/2005, ekinn 51 þ. km, sjálf-
skiptur, leður, filmur, flottur bíll.
Verð 8.650.000- ath! skipti
Lexus RX 300 EXE,
nýskr. 10/2005, ekinn 25 þ. km, sjálf-
skiptur, leður. Verð 4.790.000, ath!
skipti
Toyota Land Cruiser 120 VX diesel,
nýskr. 5/2006, ekinn 40 þ. km, sjálf-
skiptur, 33” breyttur, filmur, krókur,
spoiler. Verð 5.700.000 ath! skipti
Toyota Land Cruiser 120 LX diesel,
nýskr. 4/2005, ekinn 48 þ. km, sjálf-
skiptur, 33” stærri breytingin, krókur.
Verð 4.690.000. ath! skipti
MMC Pajero DID diesel,
nýskr. 7/2004, ekinn 54 þ. km, sjálf-
skiptur, 33” breyttur, leður, lúga,
spoiler, krókur, 7 manna. Verð
4.190.000. ath! skipti
M
bl
9
08
25
1