Morgunblaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Bílaáhugafólk um allan heim varð
fyrir áfalli þegar mótshaldarar
Dakar-rallsins tilkynntu nýverið
að keppninni í ár yrði frestað.
Keppnin hefst jafnan í byrjun árs
en rallið á rætur að rekja til ársins
1979 þegar ekið var frá París til
Dakar.
Skipuleggjendur keppninnar
hafa aflýst keppninni í kjölfar þess
að fjórir franskir ferðamenn voru
myrtir milli jóla og nýárs í Márit-
aníu þar sem stór hluti keppninnar
fer fram. Einnig hafa mótshöld-
urum borist hótanir frá hryðju-
verkasamtökum og var því ekki
annað að gera en aflýsa keppninni.
Það er ljóst að mörg þúsund
manns verða fyrir verulegu fjár-
hagslegu og annars konar tjóni
þar sem hætt er við keppnina með
svo stuttum fyrirvara.
Í fyrra voru skráð 490 farartæki
til keppni og í langflestum til-
fellum eru það áhugamenn fremur
en atvinnumenn sem aka.
Keppnin hefur lengi vel verið
umdeild vegna hárrar slysatíðni en
49 manns hafa látist vegna Dakar-
keppninnar á 29 ára ferli hennar.
Chile hefur áhuga á að halda
keppnina
Yfirvöld í Chile hafa lýst áhuga
á því að hlaupa undir bagga og fá
keppnina flutta til Suður-Ameríku
en ólíklegt má telja að nokkuð
verði úr þeim áformum með svo
stuttum fyrirvara.
Keppnin hefur þótt hið besta
sjónvarpsefni og er hún því mikil
og áreiðanleg tekjulind fyrir þau
lönd sem keppendur eiga leið um.
Afríkuríkin hafa t.d. stólað að
miklu leyti á þá athygli sem hefur
fylgt Dakar-keppninni undanfarin
ár.
Volkswagen hefur lýst yfir
stuðningi við ákvörðun keppn-
ishaldara en um leið er harmað að
rallið muni ekki enda í Senegal,
eftir 9.300 kílómetra akstur eins
og til stóð.
Dakar-rallinu
frestað af öryggis-
ástæðum
Vonbrigði Metþátttaka var á Dakar-rallið í ár og því mikið áfall að aflýsa þurfti keppninni.
Á sama tíma og raddir um umhverfisvænni bíla gerast
sífellt háværari virðist ekkert lát vera á kraftmiklum
bílum frá Þýskalandi. Fyrir skömmu tilkynntu þrjár
þýskar borgir að bílar yrðu merktir viðeigandi meng-
unarstaðli en ekki virðist það hafa dregið úr fram-
leiðslu þýskra bílaframleiðenda á tröllslegum ofurbílum
því nú hefur breytingarfyrirtækið Rinspeed sent frá
sér 600 hestafla Porsche Cayenne, með viðeigandi út-
litsbreytingum.
Cayenne á sterum
Rinspeed hefur talsverða reynslu af því að breyta
Porsche-bílum og virðist engu líkara en nýi bíllinn sem
hefur fengið hið ófrumlega heiti X-Treme hafi farið í
sterameðferð. Bíllinn er allur mun kraftalegri að sjá,
lægri, breiðari, með stærri loftinntökum og einnig fleiri
loftinntökum.
En hjá Rinspeed snúast hlutirnir ekki bara um útlit-
ið og því er bíllinn nokkru öflugri en hefðbundinn Ca-
yenne Turbo eða 600 hestöfl.
Í dag eru allar tölur komnar úr algjöru samhengi við
það sem tíðkaðist fyrir aðeins um tíu árum. Til dæmis
er bíllinn á 23 tomma felgum og það sem meira er hann
virðist bera þessa stærð vandræðalaust.
Líklegast eru svona breyttir Cayenne orðnir hálf-
gagnslausir í torfærum en á móti kemur að veggrip og
afl er með mesta móti.
X-Treme er enn á loftpúðafjöðrun sem hefur þó verið
lækkuð um 35 mm og hafa því götueiginleikar bílsins
verið lagðir til grundvallar enda má búast við því að
bílar sem þessir eigi best heima á þýsku hraðbraut-
unum. Kaupendur gætu þó fundist á Íslandi þar sem
öflugustu útgáfur Cayenne hafa verið mjög vinsælar
síðustu ár.
Öfgakenndur Rinspeed X–Treme ætti að þykja í meira lagi öfgakenndur en þrátt fyrir það er bíllinn ekki al-
gjörlega á skjön við margt það sem þýskir bílaframleiðendur senda frá sér um þessar mundir.
Ekkert lát á kraftabílum
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Sebastien Loeb, heimsmeistari í ralli, hefur ver-
ið valinn „meistari meistaranna“ í Frakklandi,
en það sæmdarheiti jafngildir titlinum íþrótta-
maður ársins þar í landi. Það var íþróttadag-
blaðið L’Equipe sem stóð fyrir valinu. Þetta er í
fyrsta sinn í sögu verðlaunanna sem franskur
rallökumaður vinnur þau. Í öðru sæti varð
körfuboltastjarnan Tony Parker, og í þriðja sæti
sundstjarnan Laura Manaudou, sem hlaut verð-
launin fyrir ári. Þykir niðurstaðan athyglisverð í
ljósi þess að Parker varð meistari í bandarísku
NBA-deildinni í körfuknattleik á árinu og kos-
inn dýrmætasti leikmaður úrslitakeppninnar.
Þá bætti Manaudou á sig blómum á árinu,
heims– og Evrópumeistaratitlum. „Þetta er
ánægjulegur endir á árinu sem var aldeilis frá-
bært frá upphafi til enda,“ sagði Loeb, heims-
meistari í ralli fjögur ár í röð, er honum var
kynnt niðurstaða kjörs L’Equipe. „Árið 2007
færði mér mikla hamingju, en þar ber fyrst að
tiltaka fæðingu dóttur minnar, Valentine, og
trylltan slag við Marcus Grönholm árið út í gegn
um fjórða titil minn veitti mér mikla ánægju,“
bætti Loeb við. Með titlinum 2007 þykir Sebas-
tien Loeb hafa komist upp að hlið Alain Prost
sem á sínum tíma varð fjórum sinnum heims-
meistari í Formúlu 1.
Jarðbundinn og laus við stæla
Þeir verða taldir á fingrum annarrar handar
sem unnið hafa jafnmarga titla í annars vegar
ralli og hins vegar Formúlu 1. Loeb segir það
mikinn heiður að vera jafnað við Prost sem getið
hafi sér góðan orðstír. Það breyti þó engu fyrir
sig og sitt daglega líf. „Ég hælist ekki um af
þessu, það er ekki stíll minn,“ sagði Loeb sem
þykir einkar jarðbundinn og fjarri því að stælast
af árangri sínum. Í kjöri L’Equipe varð Loeb
sjötti árið 2003, annar 2004 og 2005 og þriðji árið
2006. Titlana fjóra, 2004, 2005, 2006 og 2007,
vann hann á Citroën-bílum, þrjá fyrstu á Xsara
og á C4 í fyrra. Titillinn á nýliðnu ári var harð-
sóttari en hinir fyrri og landaði Loeb honum
ekki fyrr en í síðasta móti vertíðarinnar, í Wales.
Árið 2006 varð hann meistari þótt hann missti af
síðustu mótunum eftir að hafa dottið á torfær-
ureiðhjóli og beinbrotnað. Loeb vann átta röll af
16 á nýliðnu árinu og hefur samtals unnið 36 röll
frá því hann hóf keppni í HM í ralli í franska rall-
inu á Korsíku árið 1999. Fyrsta mótssigurinn
vann hann í þýska rallinu árið 2002. Enginn öku-
þór hefur jafnoft unnið. Árið 2005 vann hann 10
mót sem er met á einni vertíð, þar af vann hann
sex röll í röð.
Í ár er markmið hans að vinna fimmta titilinn
en enginn ökuþór hefur unnið jafnmarga titla á
HM í ralli.
Loeb meistari meistar-
anna í Frakklandi
Meistari Þeir verða taldir á fingrum ann-
arrar handar sem unnið hafa jafn marga titla
og Sebastian Loeb í annars vegar ralli og hins
vegar formúlu–1.
Á morgun frumsýnir Hekla nýjan
Skoda Octavia Scout 4x4. Skoda Oc-
tavia Scout er rúmgóður fjölskyldu-
bíll og með nokkuð mikla veghæð í
samanburði við aðra bíla í sama
stærðarflokki. Bíllinn er knúinn af
140 hestafla dísilvél. Af staðalbún-
aði má nefna 17" álfelgur, fjarlægð-
arskynjara, Climatronic loftkælingu
og ESP stöðugleikakerfi.
Kynningin fer fram í sýningarsal
Skoda, Laugavegi 172, Reykjavík,
og hjá umboðsmönnum HEKLU á
Akureyri, Selfossi og í Keflavík
milli kl. 10 og 14 á morgun, laug-
ardag.
Rúmgóður fjölskyldubíll
Skáti Hekla frumsýnir um helgina nýjan fjórhjóladrifinn Octavia Scout.