Morgunblaðið - 16.02.2008, Síða 1
laugardagur 16. 2. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Kvennalið Vals og karlalið Fram í 16 liða úrslitum Evrópumótanna >> 4
GLEÐIGJAFINN ER MÆTTUR
VALSMAÐURINN SIGURÐUR EGGERTSSON SKORAÐI 7
MÖRK Á SKÖMMUM TÍMA ÞRÁTT FYRIR MEIÐSLI >> 4
Eftir Víði Sigurðsson og
Guðmund Hilmarsson
vs@mbl.is, gummih@mbl.is
Barry Smith hefur spilað með Vals-
mönnum undanfarin tvö ár og átt
stóran þátt í velgengni þeirra. Hann
lék 17 af 18 leikjum Vals síðasta sum-
ar þegar félagið varð Íslandsmeistari
og liðið hefur aðeins tapað tvívegis í
þeim 32 deildaleikjum sem hann hef-
ur leikið með því.
Smith er 34 ára gamall og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
stóð honum til boða eins árs samn-
ingur hjá Val en FH-ingar eru hins-
vegar tilbúnir með tveggja ára samn-
ing. Smith lék á sínum tíma með
Celtic og Dundee í skosku úrvals-
deildinni og í vetur hefur hann leikið
með Morton í 1. deild í heimalandi
sínu. Skoska félagið vill halda honum
en Smith vill frekar leika á Íslandi,
þar sem hann kann afar vel við sig.
Sverrir hélt til Sundsvall í gær þar
sem hann gekkst undir læknisskoðun
og að henni lokinni fundaði hann með
forráðamönnum félagsins ásamt föð-
ur sínum, Garðari Sverrissyni, þar
sem farið var yfir samninginn, launa-
kjör og lengd hans.
,,Við eigum eftir að ganga frá
nokkrum atriðum sem snúa að
skattamálum áður en við getum inn-
siglað samninginn,“ sagði Torbjörn
Wiklund, yfirmaður knattspyrnu-
mála, við sænska blaðið Sundsvall
Tidning í gær. ,,Sverrir á eftir að
verða mikilvægur fyrir okkur. Hann
er sannkallaður víkingur sem hægt
er að halda í höndina á þegar vindur
blæs.“
Sverrir Garðarsson er 23 ára gam-
all og kom inn í FH-liðið á ný á síð-
asta tímabili eftir tveggja ára fjar-
veru vegna meiðsla. Þá vann hann
sér sæti í landsliðshópnum og spilaði
sinn fyrsta landsleik gegn Dönum á
Parken í nóvember. Hann var í lands-
liðshópnum á Möltumótinu á dögun-
um en gat ekki spilað þar vegna
meiðsla.
,,Við erum búnir að ná samkomu-
lagi við Sundsvall um félagaskiptin.
Þeir gengu að okkar kröfum og við
erum sáttir með það og vonum að
Sverri vegni vel en það er ljóst að
enginn leikmaður kemur í staðinn
fyrir uppalinn FH-ing,“ sagði Pétur
Ó. Stephensen, framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar FH, við Morgun-
blaðið.
Barry Smith í
stað Sverris?
Árvakur/G.Rúnar
Barátta Joshua Helm og félagar hans í Íslandsmeistaraliði KR lögðu Keflavík í stórleik 17. umferðar Iceland Ex-
press deildar karla í körfuknattleik í gær. ÍR-ingar tóku Fjölni í kennslustund á útivelli í Grafarvogi. »2-3
MIKLAR líkur eru á því að skoski
varnarmaðurinn Barry Smith leysi
Sverri Garðarsson af hólmi í vörn
bikarmeistara FH í knattspyrnu á
komandi keppnistímabili. Sverrir
gengur frá samningi við sænska úr-
valsdeildarliðið Sundsvall eftir
helgina og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru FH-ingar langt
komnir með að fá Smith í vörnina
til að fylla skarð Sverris.
Sverrir Garðarsson á leið til Sundsvall
FH langt komið með að fá Barry Smith
sem hefur leikið með Val í tvö ár
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
RAGNA Ingólfsdóttir badminton-
kona stendur mjög vel að vígi með
að vinna sér keppnisrétt á Ólympíu-
leikunum í Peking í sumar. Hún
mun að óbreyttu keppa á fimm al-
þjóðlegum mótum næstu tvo mán-
uðina og með eðlilegri frammistöðu
þar ætti hún að tryggja sér Ólymp-
íusætið á allöruggan hátt.
Nítján Evrópuþjóðir fá keppnis-
rétt í einliðaleik kvenna á leikunum
í Peking, fyrir einn keppanda hver.
Fjórtán Evrópuþjóðir eiga kepp-
endur sem eru fyrir ofan Rögnu á
heimslistanum
eins og staðan er
núna. Þar er
Ragna í 56. sæti
á nýjasta listan-
um.
Sú Evrópuþjóð
sem er í 20. sæt-
inu er Írland en
fremsti keppandi
Íra, Chloe Ma-
gee, er í 75. sæti
heimslistans, nítján sætum neðar en
Ragna.
Það þarf ansi mikið að gerast til
að fremstu badmintonkonur fimm
Evrópuþjóða komist fram úr Rögnu
á lokasprettinum og útlit fyrir að
einungis meiðsli gætu komið í veg
fyrir Kínaför hjá henni.
Staða Evrópuþjóðanna á listan-
um er sem hér segir:
Eftirtaldar 19 þjóðir eru á leið til
Peking með keppendur í einliðaleik
kvenna eins og staðan er núna, sæti
á heimslistanum í sviga:
1. Frakkland (6), 2. Þýskaland
(7), 3. Danmörk (9), 4. Búlgaría
(15), 5. Bretland (16), 6. Holland
(18), 7. Rússland (26), 8. Svíþjóð
(35), 9. Úkraína (37), 10. Finnland
(42), 11. Ítalía (43), 12. Sviss (45),
13. Eistland (47), 14. Slóvenía (55),
15. Ísland (56), 16. Hvíta-Rússland
(58), 17. Portúgal (60), 18. Tékkland
(67), 19. Austurríki (68).
Síðan eru tvær næstu þjóðir til
vara. Það eru Írland (75) og Spánn
(82).
Ragna fer til Austurríkis í næstu
viku og keppir þar á mótinu Austri-
an International í Vínarborg. Síðan
keppir hún að óbreyttu á mótum í
Króatíu, Portúgal og Rúmeníu og
endar á Evrópumeistaramótinu í
Herning í Danmörku um miðjan
apríl. Að því loknu verður staðan
endanlega ljós en heimslistinn sem
birtur verður 1. maí ræður end-
anlega úrslitum um hverjar fá far-
seðlana til Peking.
Ragna
Ingólfsdóttir
Ragna er á leið á ÓL í Peking
LEIKIR íslenska landsliðsins í
handknattleik karla í forkeppni Ól-
ympíuleikanna fara fram í Wroclaw
í Póllandi. Pólska handknattleiks-
sambandið hefur loks staðfest leik-
staðinn en valið stóð á milli Wroc-
law og Kozsalin, sem er við
Eystrasaltsströnd Póllands.
Leikið verður 30., 31. maí og 1.
júní en auk Íslendinga og Pólverja
berjast Argentínumenn og Svíar
einnig um þau tvö sæti sem í boði
eru fyrir þessar fjórar þjóðir á Ól-
ympíuleikunum í Peking sem fram
fara í ágúst. Leikjaniðurröðin ligg-
ur ekki fyrir ennþá.
ÓL-forspil
í Wroclaw