Morgunblaðið - 16.02.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
„ÞETTA lið á að
vera mun sterk-
ara en serbneska
liðið sem við lék-
um við í 32 liða
úrslitum fyrir
áramót. Ég
reikna því með
hörkuleikjum um
helgina og von-
ast eftir góðum
stuðningi við þetta verkefni,“ segir
Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvenna-
liðs Vals í handknattleik, sem í dag
og á morgun leikur við serbneska
liðið RK Lasta Radnicki í 16 liða
úrslitum Áskorendakeppni Evrópu
í handknattleik. Báðir leikirnir
fara fram á heimavelli Vals á Hlíð-
arenda. Fyrri viðureignin hefst kl.
16.30 í dag og sú síðari á sama tíma
á morgun.
Valur sló út serbneska liðið
ZORK Napredak Krusevac í 32 liða
úrslitum í haust með samtals 36
marka mun í tveimur leikjum.
Ágúst segist reikna með að róð-
urinn verði miklu erfiðari í dag.
Bæði sé Lasta Radnicki mun sterk-
ara lið og eins hafi Valsliðið ekki
leikið eins vel upp á síðkastið og
það hafi gert í haust. „Við ætlum
okkur að nota þessa leiki um
helgina til þess að rífa okkur í
gang á nýjan leik,“ sagði Ágúst
sem veit lítið um væntanlega and-
stæðinga þar sem ekki hefur tekist
að verða sér úti um upptöku af
leikjum þess.
Lasta Radnicki sló út ítalska liðið
Sarta Ariosto Ferrera í 32 liða úr-
slitum með samtals átta marka
mun.
Allir leikmenn Vals eru heilir og
tilbúnir í átök helgarinnar, að sögn
Ágústs. Markmiðið er að sjálfsögðu
að slá serbneska liðið úr keppni og
komast í 8 liða úrslit keppninnar.
Valsmenn stefna í átta liða úrslit
Ágúst Jóhannsson
„VIÐ erum nokkuð vongóðir, ekki
síst ef okkur tekst að ná upp vörn og
markvörslu,“ sagði Jón Eggert
Hallsson, formaður handknattleiks-
deildar Fram, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann var þá staddur í
Timisoara í Rúmeníu hvar hans
menn leika tvo leiki gegn liði heima-
manna í dag og á morgun í 16 liða úr-
slitum Áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik. Báðir leikirnir hefj-
ast klukkan 11 árdegis að staðar-
tíma. „Þetta er nokkuð snemmt en
við því er ekkert að segja. Það mun
vera vani að leika svo snemma dags
hér í þessum bæ,“ sagði Jón Eggert
ennfremur sem lét vel af aðstæðum í
Timisoara sem er nærri landamær-
um Rúmeníu og Ungverjalands.
Lið Timisoara vann svissneska lið-
ið Wacker Thun í síðustu umferð
með samtals þriggja marka mun.
Það tapaði á útivelli með einu marki,
27:26, en vann heima með fjögurra
marka mun, 28:24.
„Okkur langar til þess að fara
lengra í þessari keppni og helst sem
lengst þar sem Fram verður 100 ára
á þessu ári. Vissulega verður við
ramman reip að drega hér ytra en
við munum gera okkar besta,“ sagði
Jón Eggert Hallsson.
Vongóðir Framarar
Kári Árnason,leikmaður
danska knatt-
spyrnuliðsins
AGF, hefur verið
settur í hvíld um
sinn vegna
meiðsla í hné.
Hann hefur ekki
tekið þátt í tveim-
ur síðustu æfingaleikjum liðsins og
myndataka í vikunni leiddi í ljós
álagsmeiðsli. Á vef AGF er sagt að
þetta séu afleiðingar af mjög erf-
iðum æfingum undanfarnar vikur en
vonast sé til þess að Kári verði kom-
inn af stað á ný þegar AGF fer í æf-
ingabúðir til Kýpur um næstu helgi.
Fyrsti leikur AGF í úrvalsdeildinni
að loknu vetrarfríi er gegn Horsens
hinn 16. mars.
Gunnar Sigurðsson, markvörðurí knattspyrnu, er genginn í rað-
ir bikarmeistara FH og hefur skrifað
undir samning sem gildir út tímabil-
ið. Gunnar ákvað að leggja mark-
mannshanskana á hilluna haustið
2006 þegar hann lék með Fram en
hann tók hanskana fram að nýju síð-
astliðið sumar og lék tvo leiki með
KFS í Eyjum. Gunnar á að baki 76
leiki með Fram í efstu deild og 39
með Eyjamönnum.
Hólmar Örn Eyjólfsson, knatt-spyrnumaður úr HK, fer á
morgun til Englands þar sem hann
verður til reynslu hjá úrvalsdeild-
arfélaginu West Ham í eina viku.
Hólmar, sem er 17 ára, hefur leikið
þrjá síðustu leiki 21-árs landsliðsins
og spilaði auk þess með U17 og U19
ára landsliðunum á síðasta ári. Þá
lék hann 12 leiki með HK í úrvals-
deildinni, alla í byrjunarliði.
Eiður SmáriGuðjohn-
sen er í 18 manna
leikmannahópi
Barcelona fyrir
leik liðsins gegn
Real Zaragoza í
spænsku 1. deild-
inni í kvöld. Bör-
sungar, sem eru
átta stigum á eftir Real Madrid, end-
urheimta Deco, Carles Puyol, Bojan
Krikc og Touré Yaya en á sjúkra-
listanum eru menn eins Samuel
Eto’o, Gianluca Zambrotta og Sylv-
inho.
Hans Óttar Lindberg nýkrýndurEvrópumeistari með Dönum í
handknattleik hefur framlengt
samning sinn við þýska stórliðið
Hamburg og gildir hann til ársins
2011. Hans, sem er af íslensku bergi
brotinn, gekk í raðir Hamburg úr
danska liðinu Viborg síðastliðið sum-
ar og hefur fallið vel inn í leik liðsins.
Hægri hornamaðurinn hefur skorað
73 mörk í 17 leikjum með liðinu.
Arnór Smárason verður í leik-mannahópi Heerenveen þegar
liðið mætir Heracles á útivelli í hol-
lensku 1. deildinni í dag.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Sigurður lék stórt hlutverk í sigri
Valsmanna á Íslandsmótinu í fyrra
en í sumar fór hann til Danmerkur
og lék frameftir vetri með Skander-
borg í úrvalsdeildinni þar í landi.
Hann sneri aftur heim nokkrum vik-
um fyrir jól, búinn að fá leiða á hand-
bolta eins og hann sagði þá við
Morgunblaðið. Heima á Hlíðarenda
líkar honum hinsvegar lífið.
„Þetta var hálfglatað þarna í Dan-
mörku, liðið var ekkert sérstakt,
æfði ekki nógu mikið og það var eng-
inn sjúkraþjálfari. Þeir sem þekkja
mig vita að ég þarf helst tvo eð þrjá
slíka. Ég þurfti á hvíld að halda,
fékk hana og það virkaði mjög vel
því nú er ég kominn virkilega graður
inní þetta aftur hjá Val,“ sagði Sig-
urður og glotti.
Sjö mörk á skömmum tíma
Í gærkvöld lék hann meiddur,
kom ekki til leiks fyrr en um miðjan
fyrri hálfleik og var hættur keppni
fyrir miðjan þann síðari. En þessi
stutti tími dugði þessum óútreikn-
anlega handboltamanni til að skora
7 mörk, hvert öðru ólíkara, gefa
tvær línusendingar sem gáfu mörk
og krækja í eitt vítakast. Mosfell-
ingum var eflaust léttir í því að sjá
hann sitja á varamannabekknum á
ný síðustu 15 mínúturnar.
Meiddur á Hlíðarenda,
þá er ég í réttum gír
„Já, ég er svo sannarlega kominn
heim, orðinn meiddur á Hlíðarenda
á ný! Þá er ég í réttum gír. Ég togn-
aði í síðunni í leiknum við Stjörnuna
og hvíldi því bikarleiknum á móti
Víkingi vegna þess að hann átti að
vera svo léttur. Ég sá mikið eftir því
að hafa ekki spilað hann því þar vor-
um við mjög heppnir að tapa ekki.“
Valsmenn voru í miklu basli með
Aftureldingu í fyrri tveimur leikjum
liðanna í vetur, og fengu aðeins eitt
stig úr þeim. Í gærkvöld var allt
annað uppi á teningunum.
„Menn voru staðráðnir í að hefna
fyrir það hneyksli að hafa bara feng-
ið eitt stig gegn næstneðsta liðinu í
deildinni. Við værum í góðum mál-
um í dag ef þau slys hefðu ekki átt
sér stað. En nú erum við komnir vel
af stað, það er góður „fílingur“ í
hópnum og við höfum unnið góða
sigra gegn tveimur af hinum topp-
liðunum í leikjunum sem ég hef tek-
ið þátt í. Þetta verður bara gaman,
frábært að spila fjórfalda umferð og
svona á deildin að vera,“ sagði Sig-
urður.
Valsliðið átti annars í heildina
mjög góðan dag. Það tók rúmar 10
mínútur að brjóta niður mótspyrnu
Mosfellinga en Valsmenn gerðu í
raun út um leikinn með sex mörkum
í röð í lok fyrri hálfleiks þegar þeir
náðu tíu marka forystu, 18:8. Sá
munur hélst framá lokakaflann og
þá kom önnur sex marka syrpa sem
kom muninum uppí 14 mörkin.
Auk Sigurðar voru Baldvin Þor-
steinsson og Arnór Gunnarsson
mjög öflugir í Valsliðinu, ásamt
Pálmari Péturssyni sem varði mörg
skot úr dauðafærum. Hann varði 16
skot, jafnmörg og markverðir Aftur-
eldingar, en missti boltann aldrei til
mótherja eftir þau, öfugt við kollega
hans í hinu markinu.
Ekki mönnum bjóðandi
Bjarki Sigurðsson þjálfari Aftur-
eldingar var óhress með frammi-
stöðu sinna manna. „Þetta var
hreinn skandall af okkar hálfu og
ekki mönnum bjóðandi. Við ætluðum
að halda hraðanum niðri og nýta
tímann vel, það tókst fyrstu 10 mín-
úturnar en síðan gerðum við okkur
seka um fjölda mistaka, misstum
boltann í tíma og ótíma og þeir voru
fljótir að refsa okkur. Varnarupp-
stillingin þeirra, 3/2/1, kom okkur
alls ekki á óvart en við duttum í þá
gryfju að reyna að keyra á sama
hraða og Valsmenn og réðum ekkert
við það. Við erum komnir með bakið
uppvið vegg í næstneðsta sætinu og
hver töpuð stig senda okkur í meiri
vandræði,“ sagði Bjarki.
Einar Örn Guðmundsson stóð
uppúr í liði Aftureldingar og skoraði
með mörgum fallegum langskotum.
Þá var nýi ungverski markvörðurinn
Oliver Kiss öflugur framanaf leik.
Árvakur/G.Rúnar
Ójafn leikur Hilmar Stefánsson hornamaður Aftureldingar reynir að komast framjá Sigfúsi Páli Sigfússyni Valsmanni.
Gleðigjafinn er mættur
ÞEIR kalla hann „Gleðigjafann“ á
Hlíðarenda og víðar og Sigurður
Eggertsson stóð undir því nafni í
gærkvöld, allavega hvað stuðnings-
menn Vals varðar. Hann er kominn
aftur heim frá Danmörku, Vals-
menn hafa nú unnið fyrstu þrjá
leikina með hann innanborðs og
virðast til alls líklegir fyrir loka-
sprettinn á Íslandsmótinu en þeir
voru ekki í vandræðum með að
sigra Aftureldingu, 36:22, í úrvals-
deildinni í handknattleik að Hlíð-
arenda.
Sigurður Eggertsson með 7 mörk, meiddur, á skömmum tíma Þurfti á
hvíldinni að halda, hálfglatað í Danmörku Valur burstaði Aftureldingu, 36:22