Morgunblaðið - 21.02.2008, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 3
Jakob Örn Sigurðarson var stiga-hæstur í liði Univer þegar liðið
tapaði 89:75 fyrir Marso-Vagép í
ungversku úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í fyrrakvöld. Jakob skoraði
23 stig og lék allar 40 mínúturnar.
Hann hitti úr sjö af átta skotum inn-
an þriggja stiga línu og úr tveimur af
fimm þriggja stiga skotum, tók fjög-
ur fráköst, gaf þrjár stoðsendingar
og stal boltanum þrívegis.
Sigurður Ari Stefánsson, Eyja-maðurinn í norska handknatt-
leiksliðinu Elverum, fór á kostum í
gærkvöld þegar lið hans, undir
stjórn Axels Stefánssonar, vann
Stord á útivelli, 35:31, í úrvalsdeild-
inni. Sigurður Ari skoraði 11 mörk
úr 14 skotum í leiknum og Ingi-
mundur Ingimundarson var einnig
drjúgur og gerði 5 mörk fyrir Elver-
um, sem er í fjórða sæti deild-
arinnar. Magnús Ísak Ásbergsson
skoraði 3 mörk fyrir Kragerö sem
steinlá fyrir Sandefjord, 43:25, en lið
Kragerö er þegar fallið úr úrvals-
deildinni þó fimm umferðum sé ólok-
ið.
Ásgeir ÖrnHall-
grímsson var
markahæstur hjá
GOG með 6 mörk
og Snorri Steinn
Guðjónsson skor-
aði 4 þegar lið
þeirra gerði jafn-
tefli, 30:30, við
Bjerringbro í dönsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik í gærkvöld.
GOG hélt þar með þriðja sætinu og
Bjerringbro er áfram í því fjórða.
Fannar Þorbjörnsson og Hannes
Jón Jónsson skoruðu eitt mark hvor
en Gísli Kristjánsson ekkert þegar
lið þeirra, Fredericia, vann góðan
sigur á Kolding, 25:23.
Þrír íslenskir kylfingar verðameðal keppenda á Opna portú-
galska áhugamannamótinu sem
hefst í dag á Estela vellinum. Þetta
eru þeir Kristinn Þór Einarsson úr
GKj, Ólafur Loftsson úr NK og Stef-
án Már Stefánsson úr GR.
Kristinn Jak-obsson
dæmir viðureign
Hamburger SV
og Zürich frá
Sviss í 32-liða úr-
slitum UEFA-
bikarsins á AOL-
leikvanginum í
Hamborg í kvöld.
Sigurður Óli Þórleifsson og Ólafur
Ingvar Guðfinnsson eru aðstoð-
ardómarar og Jóhannes Val-
geirsson er fjórði dómari leiksins.
Kyung-Shin Yoon átti sannkall-aðan stórleik þegar Hamburg
lagði Portland, 32:29 í meist-
aradeildinni í handknattleik í gær-
kvöldi. Kappinn gerði sér lítið fyrir
og skoraði 15 mörk gegn spænska
liðinu. Hann er ekki með liði Suður-
Kóreu á Asíumeistaramótinu í Íran
þessa dagana en án hans unnu land-
ar hans Japan örugglega í gær,
33:25, og eru með 4 stig eftir tvo
fyrstu leikina.
Fimmtán ára stúlka, Guðrún Ol-sen, gerði sér lítið fyrir og
skoraði fimm mörk fyrir knatt-
spyrnulið Keflavíkur gegn Aftur-
eldingu í gærkvöld. Liðin mættust
þá í Faxaflóamóti kvenna í Reykja-
neshöllinni og lokatölur urðu 6:0
fyrir Keflavík.
Sigfús Sigurðsson náði ekki aðskora en var einu sinni rekinn af
velli þegar lið hans, Ademar León,
vann Torrevieja á útivelli, 32:28, í
spænsku 1. deildinni í handknattleik
í gærkvöld.
Fólk sport@mbl.is
„Það er gífurlega mikilvægt að skora
á útivelli og 1:1 er betra en 0:0. Þetta
eru mjög góð úrslit fyrir okkur fyrir
seinni leikinn. Mér fannst við stjórna
meirihluta leiksins. Lyon átti nokkur
hættuleg færi og er með gott lið, og
við þurfum 100 prósent einbeitingu til
að vinna seinni leikinn á Old Traf-
ford,“ sagði Wayne Rooney, sóknar-
maður Manchester United, sem fékk
besta færi fyrri hálfleiks en mark-
vörður Frakkanna varði þá vel frá
honum.
Karim Benzema kom Lyon yfir á
54. mínútu með glæsilegu skoti frá
vítateig, í stöng og inn, eftir sendingu
frá Jeremy Toulalan. Tévez náði að
jafna fyrir Man. Utd á 87. mínútu
með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf
frá Nani en þeir Tévez og Nani komu
inn á sem varamenn fyrir Paul Scho-
les og Ryan Giggs um miðjan síðari
hálfleik.
„Það voru mikil vonbrigði að fá á
sig þetta mark í lokin og það er kald-
hæðnislegt að 0:0 hefðu verið betri
úrslit en 1:1. En frammistaða liðsins
var góð, við gerðum allt rétt nema að
halda forystunni. Við stöndum mjög
tæpt eftir þessi úrslit,“ sagði Alain
Perrin, þjálfari Lyon, við fréttastofu
AP eftir leikinn.
Barcelona með sterkasta hóp í
heimi, segir Strachan
„Við áttum satt best að segja enga
möguleika gegn þeim í kvöld. Við gáf-
um þeim tvö mörk en við lékum gegn
einu besta liði heims, sem sennilega
er með sterkasta leikmannahóp í
heimi,“ sagði Gordon Strachan,
knattspyrnustjóri Celtic, eftir ósigur
gegn Barcelona á heimavelli, 2:3.
Eiður Smári Guðjohnsen sat á
varamannabekk Barcelona og kom
inn á fyrir Thierry Henry tveimur
mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Skotarnir komust tvisvar yfir,
gegn gangi leiksins, með fallegum
skallamörkum frá Jan Vennegor of
Hesselink og Barry Robson, en þeir
Lionel Messi og Thierry Henry jöfn-
uðu metin. Mark Henrys, 2:2, var
stórglæsilegt, skot frá vítateigslínu
vinstra megin í markhornið fjær. Ro-
naldinho lagði upp tvö fyrri mörkin.
Það var svo Messi sem skoraði öðru
sinni, 3:2, á 79. mínútu og tryggði
Barcelona mjög verðskuldaðan sigur.
Það þarf mikið að gerast til þess að
Eiður Smári og félagar sigli ekki
örugglega í átta liða úrslitin eftir
þennan sigur.
Okkar hugmyndafræði
byggist á sóknarleik
„Við spiluðum til sigurs í kvöld, það
tókst svo við erum afar ánægðir. Við
vitum að það er mjög erfitt að mæta
Celtic á þessum velli, úrslit liðsins
sýna það. Við byrjuðum vel en Celtic
skoraði úr sinni fyrsta sókn og sem
betur fer vorum við fljótir að jafna.
Ég tel að við höfum stjórnað leiknum
í heild sinni og sigurinn hafi verið
mjög verðskuldaður. Okkar hug-
myndafræði byggist á sóknarleik og
við reynum ávallt að vera með
þriggja manna framlínu, sama hverj-
ir mótherjarnir eru. En seinni leik-
urinn er eftir og við tökum hann mjög
alvarlega þrátt fyrir þessi úrslit. Við
verðum að leika mjög vel á heimavelli
til að ná líka góðum úrslitum þar,“
sagði Johan Neeskens, aðstoðarþjálf-
ari Barcelona, við fréttamenn eftir
leikinn í Glasgow.
Ánægður með frammistöðuna
en nýttum ekki færin
Arsenal sótti linnulítið gegn Evr-
ópumeisturum AC Milan á Emirates-
leikvanginum en varð að sætta sig við
jafntefli, 0:0. Ítalirnir sluppu heldur
betur með skrekkinn nokkrum sek-
úndum áður en flautað var til leiks-
loka því þá skallaði Emmanuel
Adebayor boltann í þverslána og út af
aðeins þriggja metra færi.
„Við fengum ekki á okkur mark og
það er gott fyrir seinni leikinn. Í
heildina er ég ánægður með frammi-
stöðuna hjá mínu liði en auðvitað var
ekki nógu gott að nýta ekki eitthvert
af færunum sem við fengum. Við réð-
um lögum og lofum á vellinum í
seinni hálfleik en náðum ekki að nýta
okkur það,“ sagði Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal.
Fenerbache lagði Sevilla, 3:2, í
Tyrklandi og fer því með naumt for-
skot í síðari leikinn á Spáni. Santürk
Semih skorað sigurmark Tyrkjanna
þremur mínútum fyrir leikslok.
Tévez bjargvætturinn
Reuters
Gott mark Carlos Tévez fagnar hér jöfnunarmarki sínu gegn Lyon í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
CARLOS Tévez skoraði óhemju dýr-
mætt mark fyrir Manchester United
í gærkvöld þegar ensku meist-
ararnir voru komnir í slæma stöðu
gegn Lyon í Frakklandi. Hann jafn-
aði, 1:1, þremur mínútum fyrir leiks-
lok og sá til þess að United færi með
allt aðra stöðu en í stefndi í síðari
viðureign liðanna í 16 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu á Old Traf-
ford eftir tvær vikur.
Jafnaði 1:1 fyrir Man. Utd. á 87. mínútu gegn Lyon Eiður inn á í blálokin þegar
Barcelona vann Celtic 3:2 Messi með tvö mörk AC Milan slapp með skrekkinn
ORÐSPOR Helenu Sverrisdóttur fer víða í bandaríska háskólakörfuboltanum og mót-
herjar hennar liðs, TCU, óttast hana nú mest allra. Þannig var ítarlega fjallað um Helenu
í gær á heimasíðu Colorado State-háskólans (CSU) fyrir leik liðanna sem fram fór í nótt.
Helena hefur tvisvar í röð verið útnefnd „leikmaður vikunnar“ í Mountain West-
deildinni en það er afar fátítt að nýliði á fyrsta ári leiki jafn stórt hlutverk í sínu liði og
raunin hefur verið með hana í vetur.
Lið TCU er í öðru sæti deildarinnar og hefur komið talsvert á óvart. Á síðu Colorado
State er sagt að það sé að stórum hluta Helenu að þakka og þar er farið yfir helstu afrek
hennar að undanförnu. Hún hafi tekið 12 fráköst í sigri gegn Wyoming og skorað 24 stig
í sigri á New Mexico.
„Það vita allir að hún er góður leikmaður en hún hefur heldur betur hrokkið í gang í
síðustu leikjum. Það verður lykilatriði fyrir okkur að reyna að halda henni í skefjum.
Hún er bakvörður en samt stór og getur farið undir körfuna og ég held að hún sé stund-
um látin spila þar. Hún getur í raun allt, það er hægt að láta hana spila allar fimm stöð-
urnar á vellinum ef með þarf,“ segir leikmaður CSU, Juanise Cornell.
„Ég mun gera mitt besta til að halda henni frá körfunni og koma í veg fyrir að hún
skori,“ segir samherji hennar, Amaka Uzmoah.
Greinarhöfundur segir að það verði hinsvegar ekki auðvelt því sú íslenska skori úr öll-
um stöðum á vellinum, hafi þegar gert 22 3ja stiga körfur á tímabilinu og skori líka
grimmt undir körfunni.
Mótherjar Helenu Sverris-
dóttur óttast hana mjög
Góð Helena Sverrisdóttir hefur leikið vel í
Bandaríkjunum og fær mikið hrós frá mót-
herjum sínum.
rstir til þess.
nni mættust Wil-
mikinn botnslag að
sta sæti deild-
mtánda.
agar í Wilhelms-
i og félögum hans í
shavener upp um
sætinu með 12 stig
u með 11 stig eins
ur síðan á botn-
gærkvöldi. Birkir
r mínútur leiksins.
ru eftir af leiknum
þrjú skot.
eð Füchse Berlín í
maliðið betur og
gar
agnum