Morgunblaðið - 21.02.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.02.2008, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Juande Ramosknatt- spyrnustjóri Tottenham hefur mikinn áhuga á að fá Eið Smára Guðjohnsen til liðs við sig í sum- ar að því er fram kemur í enskum netmiðlum. Ramos hyggst losa sig við fram- herjann Darren Bent sem Totten- ham keypti frá Charlton fyrir 16,5 milljónir punda, 2,1 milljarð króna, í sumar og þar sem Jermain Defoe er farinn til Portsmouth þá vill Ramos fá Eið Smára. Spánverjinn er sagður reiðbúinn að punga út 7 milljónum punda fyrir Íslendinginn, 900 millj- ónum króna.    Hamarsmenn, sem sitja í botn-sæti Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og eru komnir með annan fótinn niður í 1. deild, hafa ákveðið að losa sig við Banda- ríkjamanninn Nicholas King. Hann lék sjö leiki með liðinu og skoraði að meðtali 22,4 stig og tók 7 fráköst.    Magnús Lárusson, kylfingur úrGKj bætti sig um fimm högg á öðrum degi á Al Torreal mótinu á Spáni í gær. Þá lék hann völlinn á pari og er því samtals á fimm högg- um yfir pari og er í 36. til 38. sæti en keppendur eru 57 talsins. Besta skor dagsins í gær átti Will Besseling frá Hollandi en hann lék á átta höggum undir pari. Carlos Garcia frá Spáni er efstur á 11 höggum undir pari.    Evrópumeistarar AC Milan eru áhöttum eftir ítalska framherj- anum Luca Toni og vilja fá hann til að fylla skarð Brasilíumannsins Ro- naldos. Toni er á mála hjá þýska lið- inu Bayern München sem hann gekk til liðs við frá Fiorentina síð- astliðið sumar og hefur skorað 22 mörk í 26 leikjum fyrir félagið.    Luca Toni er þrítugur að aldri oghóf feril sinn með Modena en hefur leikið með ítölsku liðunum Empoli, Treviso, Lodigiani, Vi- cenza, Brescia, Palermo og Fiorent- ina. Hann á baki 32 leiki með ítalska landsliðinu og hefur í þeim skorað 15 mörk.    Avram Grantknatt- spyrnustjóra Chelsea og eig- inkonu hans var hótað lífláti. Böggull með dufti barst til Grants á æfingasvæði fé- lagsins í Cobham í suðurhluta London um hádegisbilið í fyrradag og að sögn lögreglunnar var bréf í pakkanum áletrun sem á stóð: „Þegar þú opnar þetta bréf munt þú deyja rólega með kvala- fullum hætti.“ Innihaldið reyndist meinlaust.    Berti Vogts sagði í gær upp starfisínu sem landsliðsþjálfari Níg- eríu í knattspyrnu eftir að hafa að- eins verið um ár í starfinu. Vogts stýrði Nígeríumönnum í 8-liða úrslit í Afríkukeppninni fyrir skömmu hvar þeir féllu út eftir snarpa við- ureign við Gana. Vogts var með samning við nígeríska knattspyrnu- sambandið fram til ársins 2010.    Niels de Vos, framkvæmdastjóribreska frjálsíþróttasambands- ins, segir nauðsynlegt að herða við- urlög við ólöglegri lyfjaneyslu í frjálsíþróttum. Hann segir tveggja ára keppnisbann vera of vægt og hefur varpað fram hugmyndum í þá veru að íþróttamönnum verði refsað með allt að átta ára keppnisbanni fyrir að neyta ólöglegra lyfja. Fólk sport@mbl.is Það eru landsbyggðarliðin frá Ak- ureyri og Vestmannaeyjum sem hafa verið með hæsta hlutfallið af er- lendum leikmönnum á umræddu tímabili – sem er þó ekki nema 13%. HK úr Kópavogi flokkast ekki undir landsbyggðarlið. Þar hafa 24 erlend- ir leikmenn leikið með félaginu frá árinu 1999 og eru það um 12% af þeim leikmönnum sem komu við sögu hjá liðinu á þessum tíma. Reyndar hefur lítil hreyfing verið á þeim erlendu leikmönnum sem hafa leikið með HK og má þar nefna að Augustas Strazdas er á sínu 5. tíma- bili með Kópavogsliðinu. Það virðist ekki línulegt samhengi milli fjölda erlendra leikmanna og Íslandsmeistaratitla. Valur varð Ís- landsmeistari á síðustu leiktíð og í liðinu voru aðeins íslenskir leik- menn. Fram var með 2 erlenda leik- menn árið 2006 þegar liðið varð Ís- landsmeistari. Efsta lið N1-deildarinnar á yfirstandandi leiktíð í karlaflokki, Haukar, er ekki með erlendan leikmann í sínum röð- um –líkt og undanfarin þrjú ár. ÍR-ingar áttu ekki pening ÍR hefur átt mjög fá samskipti við umboðsmenn erlendra leikmanna á undanförnum árum. Á síðustu 9 keppnistímabilum hefur ÍR aðeins verið með 2 erlenda leikmenn og þeir voru báðir hjá félaginu á síðustu leiktíð þegar liðið féll úr efstu deild. Hólmgeir Einarsson var lengi for- maður handknattleiksdeildar ÍR og hann sagði í gær að hugmyndafræði félagsins hefði komið í veg fyrir að leitað væri að liðsstyrk erlendis frá. „Við vorum með mjög marga efni- lega stráka og töldum eðlilegt að þeir fengju tækifæri til að spreyta sig – í stað þess að sitja og horfa á erlenda leikmenn spila. Við fengum líka marga stráka úr öðrum liðum sem fengu ekki tækifæri hjá sínum liðum en þeir náðu margir að gera fína hluti með okkur.“ Hólmgeir bætti því við að fjárhag- ur ÍR hefði aldrei leyft það að félagið leitaði á erlend mið til að styrkja lið- ið. „Við vorum að berjast um efstu sætin lengi vel og það var því mjög freistandi að leita að öflugum leik- manni í útlöndum. Við vildum hins vegar ekki gera neitt nema að eiga pening fyrir því. Og þar sem það var ekki til peningur gerðum við ekki neitt í þessum málum. Ég er stoltur af því að hafa tekið þátt í að búa til gott lið úr efnivið sem var til hjá fé- laginu,“ sagði Hólmgeir. Hver man ekki eftir Duranona? Á Akureyri hafa 32 erlendir leik- menn leikið með Þór, KA og nú sam- eiginlegu Akureyrar frá árinu 1999. Robert Julian Duranona er án efa þekktasti erlendi leikmaðurinn sem lék á Akureyri. Kúbumaðurinn fékk síðar íslenskan ríkisborgararétt og lék með íslenska landsliðinu á stór- mótum. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari og leikmaður Akureyrar, segir að flest- ir þeir leikmenn sem hafa komið er- lendis frá á undanförnum áru séu búnir að festa rætur á Akureyri. „Við höfum svo sem ekki verið að setja mikinn kraft í það að fá erlenda leikmenn til okkar á undanförnum árum. Goran Gusic hefur t.d. verið í langan tíma á Akureyri og er sestur hér að með sína fjölskyldu,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari og leik- maður Akureyrar. Rúnar lék lengi sem atvinnumaður á meginlandi Evrópu og segir að það sé eðli af- reksíþrótta að menn komi og fari frá félögum. „Það er ekkert nýtt að menn séu að flakka á milli liða. Sam- keppnin er kannski mest að utan. Góðir íslenskir leikmenn eru eftir- sóttir hjá erlendum liðum og það er mikill vöxtur í handboltanum í Evr- ópu. Við missum því bestu leikmenn- ina út í atvinnumennsku en það hef- ur sem betur fer ekki leitt til þess að íslensku liðin fylli þau skörð með er- lendum leikmönnum. Ég er á þeirri skoðun að miðlungsgóður erlendur leikmaður geri ekki mikið fyrir ís- lensk félagslið sem ætla sér stóra hluti. Ein skýringin á því hve fáir er- lendir leikmenn hafa verið í íslensk- um liðum gæti verið sú að þeir bestu eru einfaldlega of dýrir. Íslensku lið- in velja þá frekar að gefa ungum leikmönnum tækifæri og nota fjár- magnið sem þau hafa til að bæta um- gjörðina hjá félaginu.“ Rúnar bætir því við að samkeppnisstaða liða á Ís- landi sé að mörgu leyti ójöfn og að landsbyggðarliðin standi höllum fæti. „Það fer mikil orka og tími í að finna fjármagn til þess eins að koma liðunum frá A-B í leiki. Ég gæti trú- að að helmingurinn af rekstrar- kostnaði deildarinnar væri ferða- kostnaður. Þegar ástandið er með þessum hætti erum við ekki mikið að velta því fyrir okkur að fá leikmenn frá öðrum liðum eða erlendis frá. Það hefur einnig verið mjög erfitt að fá íslenska leikmenn hingað norður.“ Ekki mikið áreiti frá erlendum umboðsmönnum Valur hefur titil að verja á Ís- landsmótinu en liðið varð meistari í fyrra án þess að vera með liðsstyrk erlendis frá. Hlíðarendaliðið hefur aðeins verið með 6 erlenda leikmenn í sínum röðum á undanförnum 10 ár- um og segir Óskar Bjarni Óskars- son, þjálfari liðsins, að allt frá árinu 1988 hafi í raun ekki verið þörf á liðsstyrk frá útlöndum. „Það var mjög mikil samkeppni um stöður hjá íslensku leikmönnun- um sem voru í „gullaldarliði“ Vals undir stjórn Þorbjörns Jenssonar. Það var því ekki þörf á erlendum leikmönnum og ég held að Roland Valur Eradze markvörður hafi í raun verið fyrsti erlendi leikmaður- inn sem var fenginn til félagsins af því að það vantaði leikmann í þessa stöðu.“ Óskar telur að það kerfi sem þarf til að koma erlendum leikmönn- um á framfæri sé ekki eins þróað í handboltanum í samanburði við körfu- og fótbolta. „Það er ekki auð- velt að finna góða leikmenn í Evr- ópu. Það hefur verið aðeins meira af fyrirspurnum til okkar í vetur þar sem Valur var í Meistaradeild Evr- ópu en ég held að handboltinn sé ekki með eins öflugt net umboðs- manna og í hinum tveimur bolta- greinunum.“ Eins og áður segir hafa um 7% af öllum þeim leikmönnum sem hafa verið á leikskýrslu undanfarin 10 tímabil verið erlendir. Á næstu tveimur dögum verður farið yfir stöðuna hvað varðar fjölda erlendra leikmanna í efstu deild karla í fótbolta og körfubolta á íþróttasíðum Morgunblaðsins. Árvakur/Golli Innfluttur Augustas Strazdas, landsliðsmaður frá Litháen, leikur sitt fimmta tímabil með HK en hann er einn af 24 erlendum leikmönnum sem komið hafa við sögu hjá Kópavogsfélaginu á undanförnum tíu árum. „Ekki auðvelt að finna góða leikmenn í Evrópu“ ÍSLENSK handboltalið í efstu deild karla á undanförnum 10 keppnis- tímabilum hafa samtals verið með 182 erlenda leikmenn í sínum röð- um. Þegar hlutfall erlendra leik- manna á þessum tíma er skoðað kemur í ljós að 7% allra leikmanna í deildinni á síðustu 10 keppn- istímabilum komu erlendis frá. Ýmsar ástæður eru fyrir komu er- lendra leikmanna í íslensk hand- boltalið. Sum lið ná ekki að lokka til sín íslenska leikmenn og þurfa því að leysa málin með þessum hætti. Flest þeirra liða sem hafa verið í toppbaráttunni undanfarin ár hafa ekki verið með marga erlenda leik- menn í sínum liðum. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is  Rúmlega 180 erlendir leikmenn hafa komið við sögu hjá íslenskum handbolta- liðum á síðustu 10 tímabilum  Um 7% af heildarfjöldanum koma erlendis frá                                              ! " #     $ "   !" # % $ & $ ' $ () $ * $ % $ () $ ' $ + $ () $ , $ () $ - $ + $ () $ * $ ' $ !$%     &* '+ %)- ('* ((. &' %(+ (.) (.( (+% (%. %(* ,, (,* %(, (%. ('& %**+ !$%     , (- %, %& () & (. (- (- (- ' (& - . , % % (+% &       

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.