Morgunblaðið - 29.03.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
knattspyrna
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Í ár fellur aðeins neðsta liðið en þrjú
efstu liðin í 1. deild komast upp. Að
auki mætast næstneðsta lið úrvals-
deildar og fjórða efsta lið 1. deildar í
aukaleikjum um sæti í deildinni í
mótslok.
Brann, með fjóra Íslendinga inn-
anborðs, á meistaratitil að verja.
Miðað við spádóma þykir liðið eiga
góða möguleika á að endurtaka af-
rekið í ár en Viking, Rosenborg og
jafnvel Stabæk eru talin líklegustu
keppinautar Brannmanna um efsta
sætið í ár. „Sérfræðingar“ virðast
hins vegar á einu máli um að Bodö/
Glimt sé með slakasta lið deildarinn-
ar í ár og muni hafna í botnsætinu.
Ólafur Örn Bjarnason er að hefja
sitt fimmta tímabil með meisturum
Brann. Hann sagði við Morgunblað-
ið að titillinn sem slíkur myndi ekki
setja aukna pressu á lið sitt.
„Okkur hafði verið spáð einu topp-
sætanna næstu ár á undan svo það
er ekkert nýtt fyrir okkur að byrja
sem eitt líklegasta liðið. Aðalmálið
er að hefja tímabilið vel, þá er allt
hægt. Lið okkar er svipað og í fyrra,
við misstum fyrirliðann en fengum
þrjá miðjumenn og nýjan framherja
og þegar allir verða heilir eigum við
að vera með mjög góða breidd og
mikla samkeppni um allar stöður.
Annars hefur undirbúningstíma-
bilið verið hálfskrýtið hjá okkur. Við
spiluðum Evrópuleiki langt fram í
desember og svo aftur gegn Everton
í febrúar. Fyrir vikið var veturinn
styttri og skemmtilegri, við þurftum
ekki að bíða þrjá fyrstu mánuði árs-
ins eftir að deildin byrjaði, og von-
andi hefur þetta bara þau áhrif að
við mætum sterkir til leiks eins og í
fyrra,“ sagði Ólafur Örn.
Fimm til sex lið geta
unnið titilinn
Hann á von á mjög tvísýnni bar-
áttu um meistaratitilinn. „Já, ég tel
að 5-6 sterkustu liðin séu mjög svip-
uð að styrkleika. Brann, Rosenborg,
Lilleström, Viking og Stabæk eru
mjög sterk, ég hef líka trú á Våle-
renga ef liðið byrjar vel með nýjum
þjálfara, og svo finnst mér Tromsö
vera óðum að nálgast þessi lið. Þetta
er ekki lengur eins og það var um
árabil þegar Rosenborg keypti alla
bestu leikmenn Noregs, á meðan
önnur félög bitust um hina sem eftir
voru, og rúllaði deildinni upp ár eftir
ár. Núna eru 7–8 félög í deildinni
orðin mjög sterk fjárhagslega og
komin með hlutafélög sem sjá um
leikmannakaupin.“
Ólafur var sammála þeim spám að
Íslendingaliðin Fredrikstad, Lyn og
Aalesund væru líkleg til að sigla
lygnan sjó um miðja deild.
„Fredrikstad gæti, rétt eins og
Tromsö, hangið í efri liðunum í
deildinni. Lyn hefur gert mjög vel
undanfarin ár, miðað við mannskap,
og þar hafa ungir leikmenn fengið
tækifæri og staðið sig vel. Aalesund
virðist sterkara en undanfarin ár og
er ekki lengur spáð falli.
Það er hins vegar hætt við að það
verði erfitt fyrir Bodö/Glimt að forð-
ast botnsætið. Liðið er langt norður í
landi, er ekki með heillandi völl eða
mikil fjárráð til að laða að leikmenn.
Það er auðveldara fyrir hina nýlið-
ana, HamKam og sérstaklega Molde
sem er með glæsilegan völl og ríka
bakhjarla. En í ár fellur bara eitt lið
beint og það er því gott tækifæri fyr-
ir Bodö/Glimt og hina nýliðana til að
halda sér í deildinni.“
Nýir vellir og áhorfendum
fjölgar
Ólafur sagði að það hefðu orðið
miklar breytingar í norsku knatt-
spyrnunni síðan hann kom þangað í
ársbyrjun 2004.
„Allt umhverfið í fótboltanum
hérna hefur breyst mikið og um-
gjörðin í kringum liðin og leikina er
orðin ótrúleg. Nánast allir vellir eru
annaðhvort nýir eða nýendurgerðir.
Núna eru það bara Tromsö, Bodö,
HamKam og Stabæk sem eru ekki
með stúku hringinn í kringum völl-
inn, og bæði Stabæk og HamKam
eru að byggja nýja leikvanga. Með
þessari bættu umgjörð hefur áhorf-
endum fjölgað ár frá ári og þetta er
orðin virkilega flott deild.
Hún er líka sterkari en flestir Ís-
lendingar gera sér grein fyrir. Ég
varð fyrir sjokki þegar ég kom á sín-
um tíma og ég held að það sé enn
erfiðara en áður fyrir íslenska leik-
menn að festa sig í sessi. Norska úr-
valsdeildin er ekki bara einu skrefi
heldur mörgum á undan þeirri ís-
lensku,“ sagði Ólafur Örn Bjarna-
son.
Arnar Darri Pétursson, Lyn, 17
ára markvörður. Kom frá Stjörn-
unni í þessari viku.
Ármann Smári Björnsson, 27 ára
miðvörður/framherji. Kom haustið
2006, áður með Brann 2002.
Birkir Bjarnason, Bodö/Glimt, 19
ára miðjumaður. Lánaður til félags-
ins frá Viking Stavanger þetta tíma-
bil, lék þar tvö undanfarin ár.
Garðar Jóhannsson, Fredrikstad,
27 ára framherji. Leikur sitt annað
tímabil með liðinu.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
Vålerenga, 25 ára framherji. Kom í
láni frá Hannover í ágúst.
Gylfi Einarsson, Brann, 29 ára
miðjumaður. Kom í vetur, áður fjög-
ur ár með Lilleström.
Haraldur Freyr Guðmundsson,
Aalesund, 26 ára varnarmaður.
Leikur sitt fjórða tímabil með liðinu.
Indriði Sigurðsson, Lyn, 26 ára
miðvörður/bakvörður. Kom sumarið
2006, áður fjögur ár með Lilleström.
Kristján Örn Sigurðsson, Brann,
27 ára miðvörður. Leikur sitt fjórða
tímabil með liðinu.
Ólafur Örn Bjarnason, Brann, 32
ára miðvörður. Leikur sitt fimmta
tímabil með liðinu.
Theódór Elmar Bjarnason, Lyn,
21 árs miðjumaður. Kom frá Celtic í
vetur.
Veigar Páll Gunnarsson, Stabæk,
28 ára framherji. Leikur sitt fimmta
tímabil með liðinu, áður með
Strömsgodset 2001.
Þessir leika
í Noregi
Á ferð Ólafur Örn Bjarnason í leik
með Brann gegn Viking.
RÉTT eins og í sænsku úrvalsdeild-
inni eru fjögur lið í þeirri norsku
með gervigras á sínum heimavöllum.
Það eru Tromsö og Bodö/Glimt, sem
bæði koma frá bæjum norðan heim-
skautsbaugs, og svo Aalesund og
Strömsgodset. Nýr leikvangur Sta-
bæk verður lagður gervigrasi, sem
virðist framtíðin í norskri knatt-
spyrnu. Ólafur Örn Bjarnason hjá
Brann sagði að vellirnir væru mis-
jafnir. „Gervigrasið er fínt hjá Aale-
sund og ég held að
það sé svipað í Bodö.
Í Tromsö er það
hinsvegar hræði-
legt, hreint hrika-
lega lélegt, og þegar
við spiluðum þar í
frosti í fyrra, þegar
ekki var hægt að
bleyta það, var þetta
eins og að spila á
teppinu í stofunni
hjá ömmu!
Það er ekkert að
því að spila á gervi-
grasi og það hentar
vel þeim liðum sem
halda boltanum og
spila góðan fótbolta.
Ég held að það verði
hins vegar ekkert
sérstakt fyrir lið
eins og Ströms-
godset og HamKam
sem spila kraftafót-
bolta, með stórum
og sterkum mönn-
um sem sparka
langt,“ sagði Ólafur
Örn Bjarnason.
ÍSLENDINGAR hafa oft verið fjölmennir í norsku
knattspyrnunni og þessir hafa spilað með þeim lið-
um sem nú leika í úrvalsdeildinni:
Bodö/Glimt: Anthony Karl Gregory 1994, Krist-
ján Jónsson 1994.
Brann: Bjarni Sigurðsson 1985-88 og 1994, Sæv-
ar Jónsson 1986, Ólafur Þórðarson 1989-90, Ágúst
Gylfason 1995-98, Birkir Kristinsson 1996-97,
Bjarki Gunnlaugsson 1998, Stefán Þ. Þórðarson
1998.
Fredrikstad: Ríkharður Daðason 2003.
Lilleström: Rúnar Kristinsson 1997-00, Heiðar
Helguson 1998-99, Arnar Þór Viðarsson 1998, Indr-
iði Sigurðsson 2000-03, Grétar Ó. Hjartarson 2000,
Gylfi Einarsson 2001-2004, Davíð Þór Viðarsson
2002, Ríkharður Daðason 2002-03, Viktor Bjarki
Arnarsson 2007.
Lyn: Ólafur Þórðarson 1991-92, Andri Marteins-
son 1994, Einar Örn Birgisson 1998, Helgi Sigurðs-
son 2001-2003, Jóhann B. Guðmundsson 2001-2003,
Stefán Gíslason 2005-2007, Emil Hallfreðsson 2007.
Molde: Bjarki Gunnlaugsson 1997-98, Andri Sig-
þórsson 2001-03, Bjarni Þorsteinsson 2001-03,
Ólafur Stígsson 2002-03, Marel Baldvinsson 2006-
07.
Rosenborg: Árni Gautur Arason 1998-03.
Stabæk: Helgi Sigurðsson 1997-99, Pétur H.
Marteinsson 1999-01, Marel Baldvinsson 2000-02,
Tryggvi Guðmundsson 2001-03.
Strömsgodset: Gestur Gylfason 1995-96, Óskar
Hrafn Þorvaldsson 1998, Valur Fannar Gíslason
1998-99, Stefán Gíslason 1999-01, Unnar Sigurðs-
son 2000, Veigar Páll Gunnarsson 2001.
Tromsö: Tryggvi Guðmundsson 1998-00, Orri
Freyr Hjaltalín 2002, Hörður Sveinsson 2007.
Vålerenga: Kristinn Björnsson 1981, Brynjar
Björn Gunnarsson 1998, Árni Gautur Arason 2004-
07.
Viking: Jón Erling Ragnarsson 1986, Pétur Arn-
þórsson 1986, Auðun Helgason 1998-00, Ríkharður
Daðason 1998-00, Hannes Þ. Sigurðsson 2002-05 og
2007, Birkir Bjarnason 2006-07.
HamKam er eina liðið í norsku úrvalsdeildinni
sem aldrei hefur haft íslenskan leikmann í sínum
röðum.
Teitur Þórðarson þjálfaði Brann 1988-90 og
2000-02, Lyn 1991-92 og 2003 og Lilleström 1994-
95.
Karl Guðmundsson þjálfaði Lilleström 1960.
Íslenskir leikmenn hafa líka spilað með Kongsv-
inger, Moss, Sogndal og Start í úrvalsdeildinni
Fjölmargir hafa leikið í Noregi
Ljósmynd/Milan Illik
Sterkur Kristján Örn Sigurðsson, fyrirliði landsliðsins og miðvörður Noregsmeistara
Brann, í baráttu við Slóvakann Martin Jakubko.
„Ótrúleg
umgjörð“
Norska úrvalsdeildin hefst í dag
Liðum fjölgað í 16 fyrir næsta tímabil
Mörgum skrefum á undan Íslandi,
segir Ólafur Örn Bjarnason
TÓLF Íslendingar eru á mála hjá
liðunum fjórtán í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu. Keppnin
hefst í dag og þar með er brotið
blað í sögu norska fótboltans því
aldrei áður hefur verið leikið í
marsmánuði í norsku deildakeppn-
inni. Það er liður í stækkun og leng-
ingu keppnistímabilsins í Noregi
því frá og með 2009 verða sextán
lið í úrvalsdeildinni.
!
" #$%
& '(
&)
*+!
,-
./$
/
/0
0 /0 !
" Íslendingaliðin Vålerenga
og Aalesund mætast í opn-
unarleik norsku úrvalsdeild-
arinnar í kvöld og á morgun
mætast Brann og Fredrikstad.
Bodö/Glimt fær HamKam í
heimsókn, Stabæk sækir
Molde heim og Lyn fer til
Þrándheims og leikur við Ros-
enborg í síðasta leik fyrstu
umferðar á mánudagskvöldið.
Rosenborg hefur unnið
norska meistaratitilinn lang-
oftast, 20 sinnum. Fredrikstad
kemur næst með 9 meistara-
titla, Viking með 8 og síðan
Lilleström og Vålerenga sem
hafa orðið norskir meistarar 5
sinnum hvort félag.
Kristinn Björnsson varð
norskur meistari með Våle-
renga 1981, fyrstur Íslend-
inga. Gunnar Gíslason varð
meistari með Moss 1987.
Árni Gautur Arason varð
síðan sjö sinnum meistari, sex
sinnum með Rosenborg frá
1998 til 2003 og með Våle-
renga 2005.
Kristján Örn Sigurðsson,
Ólafur Örn Bjarnason og Ár-
mann Smári Björnsson urðu
meistarar með Brann 2007.
Eins og
teppið
hjá ömmu