Morgunblaðið - 11.06.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.06.2008, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Jóhann R.Benedikts- son, leikmaður 1. deildarliðs Fjarðabyggðar í knattspyrnu, var í gær úrskurð- aður í eins leiks bann vegna fjög- urra gulra spjalda. Í gærkvöld fékk hann svo rauða spjaldið þegar Austfjarðaliðið gerði jafntefli, 2:2, við Leikni R. í 1. deildinni. Hann verður því í banni í næstu tveimur leikjum, gegn Þór í 1. deild á laugardaginn og gegn FH í bikarkeppninni næsta fimmtudag.    Þormóður Jónsson hafnaði í 7.sæti í þungavigtarflokki á heimsbikarmóti í júdó sem fram fór í Madríd um síðustu helgi. Þor- móður vann Grikkja í fyrstu um- ferð en tapaði síðan fyrir Hern- andes frá Brasilíu, sem er í 25. sæti heimslistans. Brasilíumaðurinn komst í undanúrslit og þar með fékk Þormóður uppreisnarglímu. Þar lagði hann Martinez frá Spáni á „ippon“ eftir einnar mínútu við- ureign og tryggði sér 7. sætið með því. Þá átti hann tækifæri á að keppa um bronsverðlaunin en beið lægri hlut fyrir Mehbah frá Mar- okkó.    Zico, brasilíska knattspyrnuhetj-an frá níunda áratug síðustu aldar, er nú talinn líklegastur til að taka við stöðu knattspyrnustjóra enska félagsins Chelsea, en Sky Sports greindi frá þessu.    Tékkneski varnarmaðurinnDavid Rozehnal hefur gengið til liðs við ítalska knattspyrnuliðið Lazio frá Newcastle United á Eng- landi, en Rozenhnal hefur verið á láni hjá Lazio frá áramótum.    ChristianSchwarzer, hinn 38 ára gamli línumaður frá Rhein- Neckar Löwen, verður í hópi þýska landsliðs- ins í handknatt- leik sem fer á Ólympíuleikana í Peking. Þjálfar- inn, Heiner Brand, tilkynnti þetta í gær og sagði að Schwarzer væri mikilvægur leiðtogi í liðinu og hefði sýnt í vetur að hann væri enn þá einn besti línumaðurinn í þýsku 1. deildinni. Brand hefur kallað saman 22 leikmenn til æfinga og ætlar með 17 til Kína, enda þótt aðeins megi vera með fjórtán í endanleg- um hópi þar.    Arsenal virðist hafa unnið bar-áttuna um Aaron Ramsey, knattspyrnumanninn efnilega frá Wales, en BBC skýrði frá því að Ramsey hafi valið Arsenal framyfir Manchester United og Everton. Ramsey, sem er aðeins 17 ára, hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Cardiff City. Fólk sport@mbl.is Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is Nokkur hasar var í Víkinni, þar sem Víkingur, sem hefur ekki gengið sem best það sem af er tímabilinu, tóku á móti toppliði ÍBV, en þessum liðum var spáð efstu tveimur sæt- unum í deildinni í ár. Leikurinn var nokkuð opinn og skemmtilegur fyrstu mínúturnar, en heimamenn komust yfir þegar Þórhallur Hin- riksson skoraði úr vítaspyrnu strax á fjórðu mínútu. Dómari leiksins ákvað að fækka aðeins í liði Víkinga um miðbik fyrri hálfleiks, þegar hann rak markaskorarann Þórhall Hinriksson af velli og tók það nokk- uð stapp að koma Þórhalli af leik- vellinum. Pétur Runólfsson jafnaði metin áður en hálfleiknum lauk. Eyja- menn, sem spila skemmtilegan bolta, komust svo yfir eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik, þegar Atli Heimisson skoraði fyrir þá eftir laglegt spil. Þeir Matt Garner og Ingi Rafn Ingibergsson innsigluðu svo sigurinn með sitt hvoru markinu á síðustu fimm mínútunum, en áður hafði Runólfur Sveinn Sigmundsson í liði Víkinga fengið reisupassann, eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. Víkingar voru því níu talsins þegar flautað var til leiksloka. Héldum áfram að spila okkar fótbolta „Við tókum því bara með ró þegar við lentum undir og héldum bara áfram að spila okkar fótbolta. Það skilaði sér ágætlega, því við skor- uðum síðan nokkur mörk og unnum leikinn,“ sagði Atli Heimisson glaður í bragði, en hann skoraði annað mark Eyjamanna í leiknum.  Hinn 18 ára gamli Viðar Örn Kjartansson kom Selfyssingum yfir 10 mínútum fyrir leikslok í topp- slagnum fyrir austan fjall en Garðbæingar jöfnuðu strax í næstu sókn, 1:1, og þar var Ellert Hreins- son að verki. Nýliðarnir frá Selfossi eru enn ósigraðir og eru með 14 stig í 2. sætinu en Stjarnan 11 stig í þriðja sæti.  Leiknir R. stefndi í sinn fyrsta sigur, gegn Fjarðabyggð á Eskifirði, því Halldór K. Halldórsson og Jakob Spangsberg skoruðu tvívegis snemma í seinni hálfleik, 2:0. En Austfirðingar jöfnuðu metin því Sveinbjörn Jónasson skoraði tvíveg- is fyrir þá á síðustu 11 mínútunum, 2:2. Í lokin var Jóhann R. Benedikts- son hjá Fjarðabyggð rekinn af velli. Eyþór tryggði Ólafs- víkingum sigur á Þór Víkingar í Ólafsvík komust upp í 5. sætið með því að sigra Þór, 2:1. Hreinn Hringsson kom Þórsurum yfir með fallegu skallamarki í byrjun síðari hálfleiks en Brynjar Víðisson jafnaði fyrir Ólsara með skoti af löngu færi. Eyþór Guðnason gerði sigurmark þeirra tíu mínútum fyrir leikslok eftir sendingu Alfreðs Jó- hannssonar inn fyrir vörn Þórsara.  KS/Leiftur komst yfir gegn KA á Akureyrarvelli þegar Ede Visinka skoraði úr vítaspyrnu. Ingi Freyr Hilmarsson og Magnús Blöndal tryggðu KA sigur með mörkum í síð- ari hálfleiknum, 2:1.  Slóvenski framherjinn Denis Cu- ric kom Haukum í 2:0 gegn Njarðvík á Ásvöllum en Suðurnesjamenn gáf- ust ekki upp og jöfnuðu, 2:2. Krist- inn Björnsson og Aron Már Smára- son voru þar að verki. Stuð á Eyjamönnum  ÍBV sigraði Víkinga 4:1 í Víkinni og er enn með fullt hús  Sveinbjörn bjargaði Fjarðabyggð  Ólsarar í 5. sæti eftir sigur á Þór  Jafntefli í toppslag á Selfossi EYJAMENN gefa ekkert eftir í 1. deild karla í fótboltanum og í gær- kvöld unnu þeir sinn sjötta sigur í jafnmörgum leikjum. Þeir fengu á sig sitt fyrsta mark eftir aðeins fjór- ar mínútur gegn Víkingi R. í Víkinni en sneru því upp í stórsigur, 4:1, þar sem tveir leikmenn Víkings voru reknir af velli. Liðin í öðru sæti, Sel- foss og Stjarnan, skildu jöfn í hörku- leik á Selfossi, 1:1, og Víkingar frá Ólafsvík komust í efri hluta deildar- innar með því að leggja Þór, 2:1. Morgunblaðið/Árni Sæberg Frískur Úgandamaðurinn Augustine Nsumba lék vel með ÍBV gegn Víkingi og sækir hér að vörn Reykvíkinga. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í Róm seth@mbl.is Jón Arnór skoraði öll 7 stig sín í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 39:39. Jón Arnór var enn að svitna um hálftíma eftir að leiknum var lokið þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Ég var mjög ánægður með mitt framlag. Skotin fóru ofan í en ég hefði að sjálfsögðu viljað taka aðeins fleiri skot í síðari hálfleik. Mér fannst allt liðið mæta til leiks með öðru hug- arfari en í síðasta heimaleik. Við vor- um aðeins meira afslappaðir í því sem við vorum að gera. Menn hugsuðu kannski að það væri ekkert annað sem gæti gerst en að við værum komnir í sumarfrí ef illa gengi. Við getum vel unnið þetta Siena-lið á góðum degi og núna er pressan kom- in á þá. Ég tel að það geti allt gerst í framhaldinu og ég hef trú á því að við getum unnið fjóra leiki í röð,“ sagði Jón sem lék í 26 mínútur af alls 40. Það er óhætt að segja að litla Ís- land leiki stórt hlutverk í úrslitum í einni stærstu deild heims í körfu- bolta. Stuðningsmenn Roma kunnu vel að meta baráttugleði Jóns Arn- órs, en hann var sá leikmaður sem kastaði sér ávallt í gólfið á eftir bolt- anum ef þess þurfti. Það var Jón Arn- ór sem náði að blaka boltanum til samherja úr vonlausri stöðu seint í fyrri hálfleik. Við mikinn fögnuð tæp- lega 10.000 áhorfenda. Það eru eflaust þessir hlutir sem fékk ítalskan stuðningsmann til þess að panta sér íslenska fánann á Net- inu og er fáninn hengdur upp á grind- verk fyrir framan áhorfendastúkuna. Reyndar var þessi stuðningsmaður stúlka. En það er önnur saga. Aðrir þjóðfánar, en sá ítalski og sá íslenski, voru ekki sjáanlegir á pöll- um Pala Lottomatica. „Við getum vel unnið fjóra leiki í röð“ Morgunblaðið/Sigurður Elvar Vinsæll Jón Arnór Stefánsson nýtur hylli stuðningsmanna Roma. JÓN Arnór Stefánsson lagði sitt að mörkum í sannfærandi 84:70-sigri Roma á Siena í fjórða úrslitaleiknum um ítalska meistaratitilinn í körfu- knattleik í gærkvöld. Staðan í rimm- unni er 3:1 fyrir Siena. Liðin eigast við í Siena á morgun og Siena getur með sigri þar tryggt sér titilinn. Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is ÁRNI Gautur Arason, fyrrverandi landsliðs- markvörður í knattspyrnu, er kominn heim frá Suður-Afríku þar sem hann hefur leikið með Thanda Royal Zulu í efstu deild síðan í mars. Hann segist nú ætla að taka sér góðan tíma í að velja næsta skref eftir að hafa staðið í ströngu milli stanganna hjá TRZ. „Liðið var í fallbaráttu og ég vissi það þegar ég fór út, þannig að það var alveg nóg að gera. Mark- miðið var í sjálfu sér bara að sleppa við að falla og það tókst. Ég var lítið búinn að vera að spila fótbolta þegar ég fór þarna út, en æfði vel sjálfur, og mér fannst ég standa mig ágætlega. Við fengum samt fullt af mörkum á okkur enda var vörnin bara ekkert spes,“ sagði Árni Gautur í samtali við Morgunblaðið í gær Hann kvaðst ánægður með veruna í Durban, heimaborg liðsins. „Þetta var náttúrlega svolítið öðruvísi reynsla en það er mjög gaman að hafa prófað þetta. Menningin var öðruvísi og fót- boltinn sem var spilaður opnari en maður er van- ur. Stemningin á leikjunum var svo bara mismun- andi en ef við vorum til dæmis að spila við stærstu liðin var alltaf mikil stemning og þá lékum við til að mynda á leikvöngum sem á að nota í heims- meistaramótinu 2010,“ sagði Árni Gautur sem seg- ir enn allt óljóst hvað framtíð sína varði, en hann á nokkrar vikur eftir af samningi sínum við TRZ. „Það eru alltaf einhverjar þreifingar í gangi en ég er ekki kominn í neinar viðræður og ég ætla bara að taka mér góðan tíma í að velja lið. Þetta kemur betur í ljós í júlí.“ „Það er gaman að hafa prófað þetta“ Árni Gautur Arason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.