Mynd - 22.08.1962, Side 1
'I
;*
SPARIÐ
4. tbl. - Verð: 3 kr. eintakið
hverjum kílómefra
Napoli, ltalíu, 22. ágúst.
Tíu manns fórust í jarðskjálftum á Suður-ltalíu í gær-
kvöldi, en um 200 meiddust, þar af 50 alvarlega. Ótti
mikill greip um sig í Napoli og nágrenni. Um ein milljón
inanna yfirgaf heimili sín og svaf undir beru lofti í i'.ótt.
Olli þetta ótrúlegum umferðartöfum í morgun, þegar íbú-
arnir sneru aftur til borgarinnar.
Samkvæmt siðustu fréttum urðu miklar skemmdir á
3000 húsum. Jarðskjálftakippirnir voru tveir og svo harð-
ir að jarðskjálftamælar i Napoli ónýttust. Ibúarnir þustu
út á göturnar þegar ljósakrónur, málverk og annað laus-
legt tók að hrynja af veggjum og ioftum. Björgunarlið
hefur verið sent frá nærliggjandi héruðum.
Jóhannes páfj 23. hefur sent ættingjum ]»eirra, sem
fórust í jarðskjálftunum, samúðarlcveðjur og segist hann
ætla að biðja fyrir hinum látnu. Einnig mun páfi beita
sér fyrir peningasöfnun til aðstoðar bágstöddum.
Gjaldeyrisstaðan er allt annað en ömur-
leg. 1 lolt júií nam innstæða Seðlabankans
og annarra banka erlendis 830 miilj. kr.
þrátt fyrir það, aðsí júní versnaði gjald-
eyrisstaðan um 50 millj. kr. og í júlí um 80
millj. Þetta er ekki óeðlilegt, því að í
þessum mánuðum er innflutningur mikill,
en útflutningur jaínaðarlega með minna
mótl.
Um hættuna á verðbólgu er það kð segja,
að mikill afli og góðæri skapar ekki verð-
bólgu, heldur veltur það á fólkinu sjálfu.
Til þess að koma í veg fyrir verðbólgu, er
nauðsynlegt að fé það, sem fólk hefur
handa á milli, framyfir það venjylega, sé
lagt á vöxtu sem sparifé, en íari ekki um
of í byggingar eða framkvæmdir, sem auka
ekki gjaldeyrisöflun.
Annars getur orðið hætta á því, að eft-
irvinna skrúfi upp kauptaxta og kaup
liækki meira en framleiðni leyfir eða gef-
ur tilefni til.
— Fólk þarf að læra að fara nteð fjár-
magnið, sagi einn kunnasti fjármálamað-
ur þjóðarinnar við MYND í morgun.
Eeykjavík, 22. ágúst. —
Hafa bankarnir dregið stór-
lega úr útlánum undanfarnar
vikur af ótta við verðbólgu
vegna hins mikla síldarafla og
góðæris?
Þetta gengur manna á milli
og allir svara þessari spurn-
ingu játandi.
MYND hefur kynnt sér málið og fengið
þessar upplýsingar frá traustum heimild-
um:
Fyrstu 7 mánuði þessa árs hefur útlána-
aukning banka og sparisjóða numið 374
millj. kr. Þetta er meiri aukning en á sama
tíma 1961. Þetta er engin stöðvun útlána.
Langt því frá.
Sparifjáraukningin fyrstu 7 mán. ársins
nemur 354 millj. kr. eða 20 rnillj. minna en
útlánaaukningin.
Reykjavíb, 22. ág.
Hvert sætí var skipað í Þjóð-
leikhúsínu í gærkvöldi, þegar
GRECO-fca!Iettinn sýndi hér í
fyrsta sinni, og fagnaðarlátum
áhorfenda voru lítil takmörk
sett. „Þetta kemur eins og
þruma úr heiðskíru lofti“, sagði
fatavörzlukonan í Kjallaranum,
að lokinni sýningu, enda c ■ :ki
vön stórviðburðum í því kúsi
um hásumarið.
Aðgöngumiðar að þremur fj'rstu
sýningunum seldust upp á fyrsta
degi, á föstudags-, laugardags- og
sunnudagssýningar eru aðeins óseld
fá sæti á efri svölum. Aðsókn og
listrænt gildi bera þess vott, að
hér er greinilega um að ræða stór-
viðburð. Þjóðleikhússtjóri á þakkir
skilið fyrir að hafa gefið Reykvílc-
ingum kost á að kynnast þessum
víðfræga ballett.
■
• Þýzki seglbáturinn á sigl-
ingu hjá Akureyri.
9 Karlmennirnir störðu agndofa á Curra Jimenez dansa í Boda de Luiz Alonzo.
tii hefur liann aðallega unnið
nieð ál og síd, sem reykt er
samkvæmt þýzlkri forskrift.
Aðal álaveiðitíminn fer nú í
hönd, en horfur eru ekki jafn
góðar og i fyrra. Þá voru það
Hollendingar, sem veiddu, en
nú annast það um 100 íslenzk-
ir bændur undir leiðsögn Hol-
lendings. Salan er engum vand-
kvæðum bundin, sagði dr.
Gylfi. Upplagið rennur út jafn
óðum, eins: og hjá ykkur.
Reykti állinn er jafnóðum
sendur flugleiðis til Hollands,
venjulega um 300 kíló í einu.
Stærsta sendingin, 500 kíló,
fer á þriðjudaginn kemur, ..
Hafnarfirði, 22. ág.
— Ég hef verið að gera
kald-
Akureyri, 21. ágúst.
S morgun fór þýzk segl-
skúta héðan úr höfn áieið-
is til Hjaltlands. Á henni
voru 12 stúdentar frá há-
skólanum í Kiel. Skútan
hefur aðeins segl en enga
vél, og var lmn 12 daga frá
Þýzkalandi til Reykjavík-
ur, og fimm þaðan hingað.
I gær voru þýzku stúdent-
arnir við Mývatn í góðu
veðri, og eru mjög ánægð-
ir með ferðina. sb
tilraunir
reykja humar og þykir
hann herramannsmatur.
Þaunig komst dr. Gylfi Guð-
mundsson, forstjóri nýja reyk-
húss SlS í Hafnarfirði að orði
við MYND í morgun. Sagðist
hann binda miklar vonir við
þessa nýju framleiðslu. Hafn-
arfjarðarbátar leggja til hrá-
efnið, en hingað til hefur hum-
arinn eingöngu verið frystur.
Dr. Gylfi á von á nýjum tækj-
um til kaldreykingar á humar,
siiungi, síld og laxi, en hingað
A Hópsena (,,jotas“-dans) úr atriðinu Brullaup í Valencia (Jbantasia de Valencia y Aragon)
Humarstúlka
Byrjið daginn með
Endið daginn me5
••••: ■: N-:
Siglufirði, 22. ág.
Lítil veiði var sl.
sólarhring. Vitað
var um afla 10
skipa, samtals 9650
mál og tunnur á
Langanesdýpi. 6
skip fengu 2350 mál
og tunnur á Hér-
aðsflóadýpi. Veður
var gott á miðun-
um, en mikil þoka
nyrðra.
Mestan afla
höfðu: Steingrímur
trölli 1300 mál, Víð-
ir II 1200, Pétur
Sigurðsson 1200
tunnur, Leifur Ei-
ríksson 1000 mál,
Sólrún 1000, Akra-
borg 900.
Uppsölum, 22. ág\
Rannsóknarstöðín
i Uppsala tilkynnti
í morgun að sprengd
hafi verið kjarnorku
sprengja yfir No-
vaja Semlja um kl„
9 í morgun. Mun.
sprengjan hafa ver-
ið nálægt 10 mega-
lestum. Þetta er 5.
sprenging Rússa að
undanförnu. En til-
raunir þeirra hófust
að nýju fyrr í þess-
um mánuði eftir að
tilraunum Banda-
ríkjanna la.uk á
Kyrrahafi.
Reykjavík, 22. ág.
Á síðasta sólar-
hring voru tveir bíl
stjórar tek.nlr, grun
aðir urn ölvun við
akstur. Annar
þeirra var kominn
heim, er ttl hans
náðist, og varð full-
trúi sakadómara að
fara heám til hans
og kveða upp úr-
skurð yfir honum á
staðnum. Undarlegt
ökulag þessara öiv-
uðu manna sýndi
lögreglunni, að ekki
var allt meö felldu.
Ekkert tjón hlauzt
af akstri hinna
drukknu manna.
Reyltjavík
0 Brúðhjónin í Brullaup í Valencia. (Lola de Ronda
og Josó Greco).
i