Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
1. Við Hágöngulón
Gangsetning Kárahnjúkavirkjunar:
Á drifhvítum hvarmi
stirnir á
blátár
móður Náttúru
Elfur þjóðar er
harmar
hljóðlátt
þann „hreina tón“
sem hvarf undir lón.
---
huldukona
Hulda Guðmundsdóttir.
2. Við Torfajökul
Landslagið minnir mig á fyrri tíð, ómunatíð. Býst við að sjá Fjalla-Eyvind og
Höllu, en þarna stikar þá bara nútímamaður með derhúfu. Ég gleðst yfir því að
enn þá er til svona fagurt, hrikalegt og ósnortið landslag á landi voru.
Helga Skúladóttir.
3. Á Rauðasandi
Bæjarós og umhverfi
Rauðisandur var fæðingarsveit mín og aðsetur til tvítugs, er ég hélt til náms
um 1940. Bæjarósinn, kenndur við höfuðbólið Saurbæ, birtist að hluta á ljós-
mynd Ragnars Axelssonar í Lesbók 5. jan. sl. sem vekur margar minningar.
Ósinn mynda að mestu tvær ár, Gyltubólsá og Suðurfossá, sem renna fram af
Skörðunum, fjallgarði sem skilur á milli Rauðasands og Barðastrandar. Auk
þess renna í ósinn ýmsar smærri sprænur. Þær sameinast hinum stærri niðri í
Bæjarvaðlinum sem við börnin kölluðum oftast „Leirinn“, meðan hann var að
mestu þurr um fjöruna. Álar runnu um Leirinn, sumir utan að en nokkrir
vatnsmeiri austan megin.
Nafn innsta bæjarins á Rauðasandi, Sjöundá, var dregið af öllum þessum
vatnsföllum, þar eð hann stóð við hið sjöunda og síðasta í röð þeirra. Tveir ábú-
endur þar voru ákærðir og dæmdir fyrir meint morð á mökum sínum 1802 og
urðu atburðirnir Gunnari Gunnarssyni efni í skáldsöguna Svartfugl. Sjöundá
fór í eyði þegar ég var á barnsaldri en faðir minn fékk jörðina leigða um tíma til
notkunar sem upprekstrarland. Úr bæjarhúsunum fékk hann hurð sem okkur
þótti falleg og notaði hana fyrir dyrnar á eldhúsinu inn í búrið þegar fæðing-
arbær minn Stakkadalur var endurbyggður upp úr 1925.
Í álunum sem runnu inn eftir Leirnum á flóðinu komu fyrir sandbleytur eftir
veturinn. Fékk dr. Gerlach, sendiherra Þjóðverja á Íslandi á nasistatímanum, að
kenna á því þegar hann var í heimsókn hjá vinveittu fólki á Patreksfirði og fór í
reiðtúr með fylgdarmönnum á Rauðasand. Hesturinn lenti í einni sandbleytunni,
sendiherrann datt af baki og skreiddist upp úr sandvilpunni blautur og útataður.
Bændur á Rauðasandi, sem voru lítt hrifnir af nasismanum, glottu við og töldu
þetta jafngott á bannsettan nasistann.
Upp í bæjarósinn sækir allmikið af sel því að þar má fá ljúffenga laxa og sil-
unga til matar og uppi á eyrum á Leirnum finnst selamæðrunum tilvalið að
stunda sólböð með kópum sínum. Og áður fyrr nýttu búendur á bæjum sem
áttu land að Bæjarvaðlinum, Saurbæ, Kirkjuhvammi og Melanesi, þau tækifæri
til að veiða kópana. Á fjöru lagði selveiðifólkið net á eyrarnar og beið meðan sel-
irnir skriðu upp á sín hefðbundnu svæði. Á aðfallinu flutu netin upp og kóparnir
flæktu sig í þau þegar þeir leituðu út til sjávar aftur. Þá þustu menn að og rot-
uðu kópana með bareflum. Síðan voru þeir dregnir og fluttir heim að bæjum
eigendanna. Þar voru kóparnir flegnir, skinnin negld upp á hurðir og fleka, en
spikið og kjötið hagnýtt til manneldis. Bannað var að skjóta seli í Bæjarvaðl-
inum og sagt að það mundi fæla selina burtu og með þeim hyrfi góð tekjulind
bæjanna þriggja sem áttu þar veiðirétt.
Halldóra systir mín, yngri en ég, var eitt vorið beðin að aðstoða við kópaveiði
í Vaðlinum, en hún gafst upp eftir nokkur skipti, fannst þetta vera ógeðslegar
aðfarir, að lemja unga kópa til bana með höfuðhöggum meðan mæður þeirra
syntu kringum eyrarnar, veinandi meðan börn þeirra voru lamin til bana.
Öðlingurinn Gísli Ó. Thorlacius, skólabróðir pabba frá Bændaskólanum á
Hvanneyri, var bóndi í Saurbæ meðan ég ólst upp. Ævinlega þegar selveiðin
hófst sendi hann fleginn sel á hvert heimili út eftir Rauðasandi og var það vel
þegin viðbót við fábreytta fæðu manna þar.
Selspikið þótti mér ágætt sem viðbit, t.d. með harðfiski, og kjötið þótti mér
líka gott, þótt sumir vildu alls ekki borða það. Það var dálítið þurrt í munni og
líktist mold, sögðu þeir sem ekki vildu leggja það sér til munns.
Við systkinin gengum oft inn að ósnum, til að horfa á selina sem syntu fram
og aftur og virtu okkur forvitnislega fyrir sér en við vorum álíka forvitin og
þeir. Elín amma mín, fædd á Rauðasandi 1857, sagði mér frá því að Ísr-
aelsmenn hafi gengið þurrum fótum yfir Rauðahafið á flóttanum frá Egypta-
landi, undir forystu Móse. Þegar þeir voru komnir yfir og hann rétti hönd sína
út yfir hafið svo það féll aftur í farveg sinn, sukku auðvitað allir Egyptarnir en
breyttust í seli. Kvað hún það vera auðséð á augnaráðinu og einnig beinunum í
hreifum þeirra, sem væru eins og ummyndaðar mannahendur. Og því fannst
sumu fólki það nánast vera mannát að borða hreifana, sem öðrum þótti vera
lostæti.
Lendingarskilyrði fyrir hefðbundna timburbáta voru mjög erfið í sveitinni,
enda áttu fáir bændur bát, en uppi í Bæjarósnum var hægt að lenda báti þegar
hásjávað var. Ég minnist þess að þegar Halldór Sveinsson bóndi flutti búferlum
frá Svínanesi í Austur-Barðastrandarsýslu að Mábergi á Rauðasandi um 1930,
lét hann sigla með búslóð sína upp í Bæjarósinn og skipa henni þar á land. En
þá urðu menn að vera handfljótir þegar
báta. Auk þess er brimasamt þarna og ó
arföllunum. Flutningi Halldórs lauk þan
undá og ná því síðasta af farangrinum þa
Rifið, ríflega fimm km langt, ljósrauðl
opið Atlantshafið, frá Bæjarósnum vestu
að innan er sjávarlæna sem Fljótið nefni
arföllum. Niður á Rifið gengum við systk
reka þar að landi en þó man ég eftir dau
menn að til að skera hann og hirða spik o
Guðrúnar ríku í Saurbæ, um aldamótin 1
að landi þar sem ítök Guðrúnar náðu til,
ir að lengd. En fyrrnefndur Gísli bóndi í
sínum og taldi bændunum ekki of gott að
þeirra.
Þegar hvöss og köld norðanátt geisaði
fram undan Rifinu og þá minnti ljósadýr
þó ekki notið neins af, nema hinnar fögru
urinn sem skjól fjallgarðsins veitti okkur
fjöllin, næddi á meðan kaldur norðanvin
Þrettándi dagur jóla, dagur elds og e
Það kyrrir hugann að horfa í eld og log
sandana fyrir vestan. Svo opna ég Lesbó
Rauðasands, alveg eins og ég horfi inn í
ábúandinn í sveitinni? Ég man hvernig é
brekkurnar og sólin skein og allt var svo
þá? Samt veit ég að hann er til og í eilífði
inn í hafið – eða er það hafið sem hverfur
4. Tvær úr Tungunum
Augun mín og augu
Umluktir fannfergi
Maður í návígi – aug
Á útlimum harður s
í hárum og hófum.
Snjóhélan kælir fax
í klepra og kekki.
Girðingin gagnast v
á fölgráa flekki.
2. Við Torfajökul 3. Á Rauðasandi1. Við Hágöngulón
Augun mín og augun þín
Kallað var eftir athugasemdum og hugrenningum vegna myndaraðar Ragnars Axelssona
voru 10 og barst fjöldi athugasemda. Um leið og þakkað er fyrir viðbrögðin er úrval úr sk
7. Vikurbrekkurnar við Heklu 8. Eldey6. Þjórsárósar