Morgunblaðið - 02.08.2008, Page 3

Morgunblaðið - 02.08.2008, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 3 Fyrsti íslenskiólympíu- keppandinn er mættur til Pek- ing. Badmin- tonkonan Ragna Ingólfsdóttir lenti snemma í gærmorgun í Peking eftir langt ferðalag. Verður fyrsta æfing Rögnu í dag en hún hefur keppni á leik- unum næsta laugardag, 9. ágúst.    Bandaríski kylfingurinn HunterMahan kann að hafa eyðilagt alla möguleika á að vera með í Ry- der-liði Bandaríkjanna sem mætir Evrópu í haust vegna ummæla sem hann lét falla við golftímaritið Golf fyrir skömmu. Fullyrti Mahan að komið væri fram við leikmenn eins og þræla meðan á Ryder-keppninni stæði en kappinn var fljótur að hringja í fyrirliða liðs Bandaríkj- anna og ítreka að engin óvirðing fæl- ist í ummælum hans og áhuginn á að leika fyrir hönd þjóðar sinnar væri sannarlega til staðar.    Franski knatt-spyrnumað- urinn Lilian Thu- ram gaf formlega út í gær að hann væri hættur knattspyrnuiðk- un vegna hjarta- vandmála. Thu- ram gekk til liðs við franska liðið PSG frá Barcelona fyrr í sumar en stóðst ekki lækn- isskoðun út af hjartanu. Hann er 36 ára gamall og lék 142 landsleiki fyrir hönd Frakklands og gerði 2 mörk.    Bandaríski markvörðurinn BradGuzan er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa í knattspyrnu. Hann er 23 ára gam- all og hugsaður sem varamarkvörð- ur fyrir landa sinn og nafna, Brad Friedel sem einnig er nýgenginn til liðs við félagið. Það verður þó áhuga- vert að sjá hvor þeirra stendur milli stanganna á Laugardalsvellinum gegn FH síðar í mánuðinum.    Vika er í að heimsmeistaramót íglímu fari fram í Danmörku en það er fyrsta alþjóðlega mótið í þeirri grein í heiminum. Það fer fram í Hróarskeldu.    Brasilíska ól-ympíulands- lið karla í knatt- spyrnu vann 2:0-sigur á Víet- nam í æfingaleik fyrir Ólympíu- leikana í gær. Leikurinn fór fram í höfuðborg Víetnam, Hanoí, og skoruðu Alex- andre Pato, leikmaður AC Milan og Thiago Neves hjá Fluminense mörkin í leiknum. Brasilía er í riðli með Belgíu, Nýja-Sjálandi og heimaþjóðinni, Kína, á Ólympíu- leikunum.    Hector Cuper frá Argentínu hef-ur verið ráðinn landsliðsþjálf- ari karlaliðs Georgíu í knattspyrnu til tveggja ára. Hann tekur við liðinu af hinum þýska Klaus Toppmüller sem lét af störfum í vor. Cuper hefur þjálfað lið á borð við Valencia, Inter Milano, Real Betis og Mallorca en síðast var hann þjálfari Parma á Ítalíu.    Sóknarmaðurinn EmmanuelAdebayor frá Tógó gaf það út í gær að hann hygðist ekki yfirgefa Arsenal en hann hefur reglulega verið orðaður við AC Milan og Barcelona í sumar. Hann sé búinn að gera upp hug sinn og vilji aðeins vera áfram í herbúðum Arsenal. Fólk sport@mbl.is FORRÁÐAMENN NBA-liðsins Hou- ston Rockets hafa komist að sam- komulagi við Sacramento Kings þess efnis að „vandræðabarnið“ Ron Ar- test komi til Houston í leikmanna- skiptum. Bakvörðurinn Bobby Jackson, sem lék með Kings á árunum 2000-2005, og nýliðinn Donte Green fara til Kings í staðinn ásamt fyrsta valrétt í há- skólavalinu árið 2009. Fékk 73 leikja keppnisbann Það verður ekki gengið formlega frá þessum leikmannaskiptum fyrr en um miðjan ágúst þar sem að reglur NBA banna að nýliðar fari á milli liða fyrstu 30 dagana eftir að þeir skrifa undir samning en Green samdi við Rockets 14. júlí sl. og af þeim sökum þurfa menn að bíða. Artest skor- aði 20,5 stig að meðaltali á síðustu leiktíð sem er það mesta sem hann hefur skorað frá því hann skoraði 24,5 stig veturinn 2004- 2005 sem leikmaður Indiana Pacers. Artest er 28 ára gamall og í gegnum tíðina hefur hann komist í fréttirnar fyrir flest annað en afrek sín á keppn- isvellinum. Hann lék aðeins 7 leiki veturinn 2004-2005 vegna þess að hann var úrskurðaður í 73 leikja keppnisbann vegna slagsmála í leik gegn Detroit á útivelli. Það er að sjálf- sögðu met í sögu NBA-deildarinnar og er ólíklegt að það met verði slegið. Adelman veit hvað hann fær Í lok keppnistímabilsins fór Artest í aðgerð á þumalfingri og hefur hann lítið leikið frá þeim tíma. Rick Adelm- an þjálfari Houston Rockets þekkir Artest vel því hann var þjálfari Sacra- mento Kings þegar hann kom frá In- diana Pacers tímabilið 2005-2006. Þar lék hann 40 leiki og skoraði 17 stig að meðaltali auk þess sem hann var val- inn í varnarlið NBA. Miðherjinn Kwame Brown, sem var valinn fyrstur í háskólavalinu af Mich- ael Jordan og Washington Wizards árið 2001, hefur samið til tveggja ára við Detroit Pistons. Það er óhætt að segja að margir hafi beðið í 7 ár eftir því að Brown myndi „springa út“ sem leikmaður en hann hefur aðeins skor- að 7,5 stig að meðaltali á ferlinum og tekið 5,7 fráköst. Hann var um tíma í herbúðum Los Angeles Lakers en endaði í Memphis Grizzlies í vetur eft- ir leikmannaskipti þar sem að spænski miðherjinn Pau Gasol fór til Lakers í staðinn. seth@mbl.is Houston tók áhættu og samdi við Artest Ron Artest Anorthosis Famagusta/Rapid Vín – Olympiakos Vitoria Guimaraes – Gautaborg/Basel Shakhtar Donetsk – Domzale/Dinamo Zagreb Schalke 04 – Atletico Madrid Aalborg/Modrica – Rangers/FBK Kaunas Barcelona – Beitar Jerusalem/Wisla Krakow Levski Sofia – Anderlecht/BATE Standard Liege – Liverpool Baku/Belgrad – Fenerbahce/MTK Búdapest FC Twente – Arsenal Spartak Moskva – Drogheda/Dynamo Kiev Juventus – Tampere United/Artmedia Brann/Ventspils – Marseille Fiorentina – Slavia Prag Galatasaray – Steaua Bucharest Panathinaikos/Tblisi – Sheriff/Sparta Prag s eða Ísraels ANNIKA Sörenstam frá Svíþjóð var í stórhættu að komast ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu í golfi í gær en hún náði að leika á pari vallar annan daginn í röð og er hún 10 höggum á eftir Yori Fu- doh frá Japan og Ji-Yai Shin frá Suður-Kóreu sem eru 10 höggum undir pari vallar þegar keppni er hálfnuð. Sörenstam hefur gefið það út að hún ætli að hætta at- vinnumennsku í haust en hún er ekki líkleg til þess að bæta við 11. sigrinum á stórmóti á ferlinum á Sunningdale-vellinum. Juli Inkster frá Bandaríkj- unum er í þriðja sæti á 9 höggum undir pari en hún stefnir að því að vera elsti sigurvegarinn á stórmóti á kvennamótaröðinni, 48 ára gömul. „Þið viljið ekki vita hvað ég var að hugsa um á 9. teig,“ sagði Sö- renstam við fréttamenn eftir hringinn en á þeim tíma var hún í 88. sæti. „Ég gafst ekki upp og það er jákvætt. Ég veit hinsvegar hvað ég get gert og ég viðurkenni að ég var ekki að tala fallega við sjálfan mig eftir þriðja skollann í röð. Ochoa á enn möguleika Lorena Ochoa frá Mexíkó er ekki langt á eftir en hún er á 7 höggum undir pari. Ochoa er í efsta sæti heimslistans og er allt eins líklegt að hún blandi sér í baráttuna um sigurinn en Sörenstam þarf á krafta- verki að halda á næstu tveimur keppnisdögum mótsins. seth@mbl.is Annika Sörenstam rétt slapp í gegn Annika Sörenstam Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Helgi Bragason er formaður GV og það mæddi mikið á honum og félögum hans í stjórn en það má segja að þeir hafi hrist þetta fram úr erminni með glans. „Það eru ekki nema fimm ár síðan við héldum síðasta Íslandsmót. Þá var ég í stjórninni og megnið af fólkinu sem er nú í stjórn var líka þá þannig að við erum í æfingu. Við tók- um bara fundargerðina frá árinu 2003 og uppfærðum hana með Herði [Þor- steinssyni framkvæmdastjóra GSÍ] og við vorum í mjög góðu og þægilegu sambandi við GSÍ,“ segir Helgi og er greinilega ekkert fyrir að mikla hlut- ina fyrir sér. „Við fengum líka lánað dálítið af golfbílum, sláttuvélum, valtara og ýmis tæki eins og talstöðvar og annað. Það fengum við hjá vinum okkar í GR. Annars erum við orðin svo vön að halda svona mót þannig að þetta gekk allt eins og í sögu,“ segir Helgi. Það eru um 300 manns í Golfklúbbi Vestmannaeyja og sagði Helgi að sér teldist til að um 80 manns hefðu komið að framkvæmd mótsins, talsvert hátt hlutfall þeirra sem eru í klúbbnum. „Menn voru mislengi hver um sig, sumir allan daginn en aðrir tvo tíma í senn, allt eftir hvernig stóð á hjá fólki. Síðustu tvo dagana vorum við til dæmis með 20 manns við að skrá skor keppenda,“ segir Helgi og þvertekur fyrir að einhver óánægja sé meðal fé- laga í kúbbnum yfir að geta ekki spil- að golf þá viku sem mótið er haldið. „Nei, nei, það er allir sáttir við þetta. Fólk hefur nánast óheftan að- gang að vellinum allan annan tíma og finnst bara gaman að fá þá bestu hing- að og sjá þá eiga við völlinn.“ Formaðurinn var ekki með á tak- teinum hvað það kostar klúbbinn að halda svona mót. „Ég veit það ekki nákvæmlega en við fáum auðvitað tekjur á móti, hér í veitingasölunni í skálanum. GSÍ borgar eina milljón með mótinu, og það er nýtt. Við lögð- um nokkra vinnu í völlinn, löguðum til dæmis stíga og snurfusuðum svona smáatriði en við vorum ekki að breyta neinu á vellinum. Fyrri níu holurnar eru með elstu golfholum á landinu og engin ástæða til að vera að krukka eitthvað í þær. Ágætis framlag frá bænum Golfvölllurinn í Eyjum var rosalega fallegur og góður þá daga sem mótið var og það er í rauninni með ólíkind- um að ekki stærri klúbbur skuli vera með svona glæsilegan völl, flott klúbb- hús og starfsemi sem miklu stærri klúbbar gætu verið stoltir af. Árgjöld klúbbfélaga eru um sjö milljónir ef ég man rétt og við fáum oft þá spurningu hvernig við getum haldið þessu öllu úti. Við fáum ágætis framlag frá bænum, erum með fína styrktaraðila en svo er þetta fyrst og fremst þetta gamla góða sjálfboða- starf. Við vinnum mjög mikið í sjálf- boðavinnu. Stjórnarmenn og aðrir mæta hérna eitt og eitt kvöld og tyrfa eða gera það sem þarf að gera. Við er- um með sex starfsmenn á vellinum og nokkra krakka úr vinnuskólanum hérna,“ segir formaðurinn. Helgi og hans fólk var mætt fyrst á morgnana og fór síðast á kvöldin á meðan mótið var. „Aðalvinnan var áður en fyrsta högg var slegið, en eftir það gekk þetta rosalega vel. Menn mættu hálf sjö og voru komnir út úr húsi um klukkan átta á kvöldin, og þá vorum við búin að slá inn allt skor og setja upp rástíma fyrir næsta dag,“ segir Helgi. Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson Meistari Kristján Þór Einarsson afrekskylfingur úr Kili Mosfellsbæ og Ís- landsmeistari í höggleik árið 2008, kunni vel við sig í Vestmannaeyjum.  Félagsmenn í GV lögðu mikla vinnu á sig samhliða Íslandsmótinu í höggleik FÉLAGAR í Golfklúbbi Vestmannaeyja geta verið stoltir af því hvernig þeir stóðu að Íslandsmótinu í höggleik sem þar fór fram í síðustu viku. Völlurinn stórglæsilegur, öll aðstaða og umgjörð til mikillar fyrirmyndar og allar tíma- setningar stóðust. Það má eiginlega segja að þetta hafi verið fullkomið mót ef veðrið er tekið út úr myndinni, en við það ræður enginn – ekki einu sinni Vestmannaeyingar. „Gekk allt eins og í sögu“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.