Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 28

Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 28
28 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur vjon@mbl.is Á standið á grísku eyj- unum Krít, Ródos, Kýpur og Zakinthos um hásumarið er orðið líkt og hermt er að ríkt hafi í þeim syndum spilltu borgum Sódómu og Gómorru. Mesta svipinn setja breskar bullur af báðum kynj- um, sem vaða þar uppi, annaðhvort hálfrænulausar og ælandi á al- mannafæri eða þær slangra um grenjandi og gólandi, fækkandi föt- um og flaðrandi hver upp um aðra með klámfengnum tilburðum, öðr- um til hryllings og hrellingar. Undanfarin ár hafa lýsingar breskra fjölmiðla á hegðun ung- menna á stöðum eins og Ibiza, Mal- lorca og Costa del Sol á Spáni verið á þessa leið. Orðsporið er slæmt, en hefur versnað og breiðst út eftir að ungmennin héldu í auknum mæli innreið sína til grísku eyjanna fyrr- greindu. Þangað er ódýrt að fljúga og þar flýtur allt í ódýru áfengi. Núna síðsumars hafa ekki aðeins breskir fjölmiðlar heldur líka ann- arra þjóða fjallað um furðulegt framferði Bretanna ungu og velt fyrir sér undirrót hömluleysisins. Dapurlegar frásagnir The New York Times birti til að mynda nokkrar frásagnir af hroða- legum afleiðingum ótæpilegrar áfengisneyslu þeirra. Ein segir af tveimur sauðdrukknum konum, sem heimtuðu ferskt loft um borð í vél- inni frá eyjunni Kos heim til Man- chester. Skipti engum togum að þær réðust á flugfreyjurnar með vodka- flösku að vopni og reyndu að opna dyrnar í 30 þúsund feta hæð. Flug- stjórinn þurfti að lenda vélinni í skyndi í Frankfurt þar sem kon- urnar voru handteknar. Önnur frá- sögn er af unglingi frá Sheffield, sem kafnaði í eigin ælu á eyjunni Zakinthos. Sú þriðja er líka þaðan, en þar handtók lögreglan sex bresk- ar konur fyrir að hafa tekið þátt í munnmakakeppni undir berum himni og fyrir allra augum. Engum sögum fór af karlkyns þátttak- endum, en kannski þurfti þá ekki til. Skelfilegasta frásögnin er frá Krít, þar sem tvítug stúlka, sem stað- fastlega hafði neitað að vera ólétt, fæddi barn ein síns liðs á hótelher- bergi sínu eftir að hafa verið úti að skemmta sér með félögum sínum. Samkvæmt framburði þeirra komu þeir að barninu látnu, en stúlkan var ákærð fyrir morð. Þá rifjaði blaðið upp atburð frá því í sumar þegar breskt par, sem eftir að hafa kynnst á fylleríi í Dubai í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum ákvað að hefja kynlífsleiki á ströndinni og hrópaði ókvæðisorð að lögreglunni þegar hún skipaði þeim að hætta. Af hverju? Af hverju hegðar fólk sér svona? spyr The New York Times. Einn viðmælandi blaðsins, afgreiðslu- stúlka í bakaríi á Krít, telur að Bret- um líði eins og föngum í heimalandi sínu og þá langi til að vera frjálsir. Breskur starfsmaður í klúbbi á sömu eyju hefur svipaðar skýringar á takteinum og kennir breskri menningu um. Skýringin er eflaust ekki einhlít og raunar afar vafasamt að Bretar séu fangar í eigin landi frekar en aðrir í lýðfrjálsum löndum. Í ljósi þess að drykkjuhegðun ungra Breta heima fyrir hefur síðustu árin þótt álíka subbuleg kann margt að búa að baki. Orð eins og aga- og siðleysi og klámvæðing koma upp í hugann. Hvers vegna einmitt Bretar hafa orðið svo ofurseldir slíku umfram aðrar þjóðir að alræmt er orðið eru þó getgátur einar. Brugðist við vondu orðspori Orðsporið á erlendri grund þykir hins vegar vera orðið slík þjóð- arskömm að breska utanríkisráðu- neytið sá sig tilneytt til að hleypa af stokkunum herferð þar sem ung- menni eru hvött til að sýna ábyrgari hegðun. Áróðurinn var prentaður á glasamottur, strandbolta og plaköt og gróft og tvírætt orðalagið haft í stíl við markhópinn. Í skýrslu ráðuneytisins um hegð- un landans í útlöndum kemur fram að 4.603 Bretar hafi verið hand- teknir á einu ári á 15 vinsælustu sumarleyfisstöðum þeirra, sem var 16% aukning. Og að flestar handtök- urnar hafi verið afleiðingar drykkju- skapar. The Sunday Times greinir frá því að þrjár milljónir Breta komi til Grikklands á ári, 602 hafi verið lagð- ir inn á sjúkrahús, það sem af er sumri hafi 41 bresk kona kært nauðgun og á heilsugæslustöðvum sé gríðarleg ásókn í morgunpilluna. Haft er eftir lækni á ríkissjúkrahús- inu í Zakinthos að þangað komi einnig fjöldi breskra kvenna sem telji sig hafa verið nauðgað. Oft kveðst hann ekki geta merkt að við- nám hafi verið veitt (að vísu eru slík viðbrögð ekki algild), enda hafi stúlkurnar farið með mönnum upp á hótelherbergi og verið of drukknar til að segja nei. Breski sendiherrann í Aþenu flaug gagngert til Zakinthos til að kynna sér ástandið og eiga fund með yfirvöldum og borgarstjórinn í Laganas á Zakintos, þar sem ástandið er einna verst, hefur skorið upp herör gegn óvini númer eitt, áfenginu. „Ódýrt áfengi er rótin að alls konar slysum og uppákomum,“ segir sendiherrann. Gylliboð og lauslæti Á aðalgötunni í Laganas er bar við bar með alls konar gylliboð; til að lokka konur inn er þeim boðið upp á ókeypis drykki, hanastéli á um 600 krónur fylgja fjögur skot og svokallaða bollu, sambland af alls konar þrælsterkjum drykkjum, má fá fyrir lítinn pening. Þá falla marg- ar konur fyrir því gamla og lævísa bragði barþjónsins að þiggja af hon- um marga drykki og fara svo með honum heim. „Þeir eiga mök við tvær, þrjár konur á föstudags- eða laugardags- kvöldi, allt upp í sjö á viku,“ fullyrti læknir, sem rekið hefur einkastofu í 12 ár í Laganas. Lögreglan þar í bæ hefur látið til skarar skríða og bannað bareig- endum að bjóða fría drykki og selja unglingum undir lögaldri áfengi að viðlagðri fangelsisvist. Hagsmunaárekstrar Blaðamenn The Sunday Times, sem kynntu sér mannlífið á eyjunni, eru þó vondaufir um árangur. Hags- munaárekstrar, segja þeir og benda á að unga fólkið sé ákveðið í að skemmta sér með áfengi og bareig- endur að græða peninga. Lög- reglumaður, sem þeir töluðu við, gerði lítið úr öllu saman, sagði lög- regluna fara með vandræðageml- ingana á stöðina, kanna vegabréf þeirra og aðra nauðsynlega pappír og sleppa þeim síðan. „Við viljum vernda bresku gestina okkar, sem okkur finnst vera gott fólk – og auð- vitað koma þeir efnahag okkar til góða,“ bætti hann við. Breskir ferðasölumenn eru og sagðir leggja sitt lóð á vogarskál- arnar til að kynda undir ásókn unga fólksins í áfengi. Á vefnum Club 18- 30 státuðu tveir með aðsetur á Zak- inthos af að vera alltaf pissfullir og einn af að hafa neytt fíkniefna. Félagssálfræðingurinn dr. Arthur Cassidy, sérfræðingur í ferða- mennsku í tengslum við ungmenni, segir að fyrir um fimmtán árum hafi þeir sem efni höfðu á að ferðast til sumarleyfisstaða á borð við Spán og Grikkland verið námsmenn í efnaðri kantinum. Kreditkort og ódýrt flug hafi síðar gert efnaminni ungmenn- um kleift að takast slíkar ferðir á hendur. „Ólíkir hópar blandast núna saman á þessum stöðum – og þá byrja vandræðin,“ sagði hann. Deila má um hvort þeir fátæku fari verr með áfengi en þeir ríku, eins og dr. Cassidy lætur í veðri vaka. Á Íslandi er þó jafnan haft á orði að rónarnir komi óorði á áfeng- ið, en ekki öfugt – þótt ódýrt sé. © Eleanor Bentall/Corbis Á skallanum Bresk ungmenni eru ekki aðeins til vandræða á fylleríum sín- um heima fyrir, heldur hafa þau getið sér sérstaklega slæmt orð vegna dykkjuláta og lauslætis í sumarfríum sínum í útlöndum. Bresk ungmenni sukka á suðrænum sólarströndum Breska utanríkisráðuneytið í herferð til að sporna við ósæmilegri hegðun og vondu orðspori á erlendri grund Í HNOTSKURN » Árið 2007 fóru um 17milljónir Breta í sumarfrí til Spánar og þrjár milljónir til Grikklands. » Samkvæmt skýrslu breskautanríkisráðuneytisins voru 2.032 Bretar handteknir á Spáni frá mars 2006 til apríl 2007, sem var 33% aukning. » Á sama tímabili var 231handtekinn í Grikklandi, 602 lagðir á spítala, 131 lést og 28 tilkynntu nauðgun. » Í heild voru 4.603 Bretarhandteknir á fimmtán vin- sælustu sumarleyfisstöðum álfunnar, sem er 16% aukning. » Gríska lögreglan upplýstiað í sumar hefði 41 breskri konu verið nauðgað á þar- lendri grund. Hundrað ára skólasaga ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 43 61 9 09 /0 8 Ritið er fullt af áhugaverðum upplýsingum um menntun og skólalíf á Íslandi; skipulag þess, og umfang, inntak, hugmyndir, stefnur og strauma. Einnig er lýst í máli og með fjölda fágætra mynda, brotum úr skólalífi í landinu frá upphafi til þessa dags. Ritið er í tveimur bindum, alls um 800 síður. Ritstjóri er Loftur Guttormsson. Aðalhöfundar auk hans eru Helgi Skúli Kjartansson og Jón Torfi Jónasson, en aðrir höfundar eru sex. Ritið er gefið út af Kennaraháskóla Íslands. Ritið fæst á tilboðsverði núna: 9.900 kr. + póstkostn. (Fullt verð kr. 14.900). Skráning á simennt@khi.is, í síma 525 5980 eða á http://srr.khi.is Um leið er hægt að skrá sig á heillaóskaskrá sem birt verður í bókinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.