Morgunblaðið - 02.10.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.10.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is Sagan á það til að endurtaka sig og gerir það reyndar óvenju oft. Slíkur atburður átti sér stað í upphafi vik- unnar þegar ríkið eignaðist 75% hlut í Glitni, hvort kalla eigi það þjóðnýt- ingu eða ekki skal hér ósagt látið. Eins og flestum er í fersku minni hét Glitnir áður Íslandsbanki en fréttir af yfirtöku ríkisins á Íslandsbanka má einnig finna í blöðum frá því í febrúar 1930. Íslandsbanki hinn fyrri, eins og sá banki hefur stundum verið kallaður, var stofnaður snemma árs 1904 sam- kvæmt lögum sem konungur Dana- veldis samþykkti 7. júní 1902. Bank- inn var síðan opnaður 7. júní 1904 og er engum blöðum um það að fletta að hann reyndist íslensku atvinnulífi vel. Um áratug eftir stofnun varð bankinn hins vegar fyrir áfalli og í kjölfar þess gekk rekstur hans brös- uglega. Um þetta má lesa í grein sem Eggert Þór Bernharðsson sagn- fræðingur ritaði í fylgirit Morgun- blaðsins árið 2004. Í kaflanum Ris og hnig segir: „Afkoma Íslandsbanka var góð framan af en í ársbyrjun 1914 varð hann fyrir sínu fyrsta stóráfalli þeg- ar stærsti viðskiptavinur hans varð gjaldþrota. Í fyrri heimsstyrjöldinni var afkoma bankans hagstæð en að henni lokinni syrti í álinn. Óðaverð- bólga á styrjaldarárunum og fyrst eftir stríðið leiddi til mikillar seðla- prentunar en meiru skipti þó skyndi- legt verðfall á íslenskum útflutnings- afurðum haustið 1920. Jafnframt kom gjaldeyrisskortur þjóðarinnar hart niður á bankanum og reglur um ókeypis yfirfærslu fjármagns milli Danmerkur og Íslands fyrir Lands- bankann voru honum þungar í skauti. Bankinn safnaði skuldum og barðist í bökkum. Árin 1922-25 batn- aði hagur hans en á seinni hluta þriðja áratugarins harðnaði á daln- um á nýjan leik þegar afkoma út- gerðarinnar stórversnaði. Íslands- banki tapaði miklu fé, innistæður minnkuðu og handbært fé til að greiða sparifjáreigendum var af skornum skammti, hlutabréf bank- ans féllu í verði og traust lánar- drottna þraut. Þá var ný bankalög- gjöf óhagkvæm Íslandsbanka en styrkti Landsbankann. Pólitísk sam- staða náðist ekki um aðgerðir til bjargar Íslandsbanka og raunar höfðu ýmsir þingmenn ætíð horn í síðu hans vegna þess að hann hafði að mestu verið í eigu útlendinga en ekki undir stjórn opinberra ís- lenskra aðila. Bankanum var loks lokað mánudaginn 3. febrúar 1930 en á grunni hans reis Útvegsbanki Ís- lands hf. sem var opnaður 12. apríl 1930 og yfirtók eignir og skuldir Ís- landsbanka.“ Gjaldeyrisskortur Erlendir sérfræðingar, sem og inn- lendir, hafa haft á orði að fjármála- kreppan sem nú geisar í heiminum minni um margt á upptök kreppu 4. áratugarins, kreppunnar miklu. Vissulega má það til sanns vegar færa og hvað Ísland varðar hefur því eitt atriðið bæst við, þ.e. að ríkið hef- ur tekið Íslandsbanka yfir. Annað sem fjármálakreppan á sameiginlegt með kreppunni miklu er skortur á gjaldeyri. Gengi krón- unnar hefur ekki verið jafnlágt síðan það var sett á flot í mars 2001 og hef- ur það m.a. verið skýrt með því að gjaldeyri skorti í landinu. Hið sama var uppi á teningnum árið 1931, þ.e. gjaldeyri skorti tilfinnanlega í land- inu þótt ekki væru áhrifin á gengi krónunar hin sömu. Síðla septem- bermánaðar 1931 voru öll viðskipti með gjaldeyri stöðvuð á landinu og þá var sú ákvörðun tekin að tengja krónuna gengi pundsins og því lækk- aði gengið ekki þótt gjaldeyrisskort- ur ríkti. Gjaldeyrisviðskiptabannið ríkti í tvær vikur en skömmu síðar var ákveðið að setja gífurlega ströng höft á allan innflutning til landsins og var markmiðið að koma í veg fyrir streymi gjaldeyris út úr landinu. Í erindi sem Jóhannes Nordal, fyrrum seðlabankastjóri, flutti á Söguþingi fyrir 11 árum segir hann að innleiðing haftanna hafi sennilega verið bráðabirgðavarnaraðgerð en eins og gjarnan hefur verið með fleiri slíkar aðgerðir í gegnum tíðina reyndist hún ekki til bráðabirgða. „Reyndin varð þó allt önnur og má jafnvel segja, að fáar stjórnvalds- ákvarðanir hafi markað jafnafdrifa- rík þáttaskil í hagstjórn á Íslandi á þessari öld, því að með þeim var stofnað til haftakerfis, sem átti eftir að gegnsýra flesta þætti þjóðarbúskaparins og hugsunarhátt stjórnvalda og almennings í næstu þrjá áratugi. Það er því áleitin spurning, hvað réð gerðum manna þessa haustdaga og hvers vegna gjaldeyris- og inn- flutningshöftin festust svo fljótt í sessi og urðu brátt ríkjandi í efna- hagsstjórn landsins,“ segir Jóhannes og bætir því við að lítill vafi leiki á því að „ástandið hafi verið ískyggilegt í augum bæði banka og ríkisstjórnar, er hin auðugustu lönd áttu í gjald- eyrisörðugleikum og margar þjóðir höfðu gripið til hafta og annarra verndaraðgerða.“ Í samhengi sögunnar | Ríkisvæðing Sagan endurtekur sig Ríkið keypti Glitni í vikunni – Það var þó ekki í fyrsta skipti. Morgunblaðið/Kristinn FRÉTT vikunnar er yfirtaka rík- issjóðs á 75% hlut í Glitni, að mati Jóns Hákonar Magnússonar, fram- kvæmdastjóra KOM almanna- tengsla. „Mánudagur- inn verður einn af þessum dögum þar sem maður man alltaf hvar maður var þegar fréttin barst, líkt og þegar John F. Ken- nedy var myrtur, eða þegar árásin var gerð á tvíburaturnana í New York,“ segir hann. „Ég kalla daginn svartan mánudag.“ Jón Hákon segir að atburð- ir mánudagsins muni hafa gríðarleg áhrif á efnahagslíf Íslands, en orsökin sé þó alþjóð- leg. Ástandið síst betra erlendis „Þetta er skelfilegt fyrir Glitni, hluthafa, viðskiptavini bankans og þjóðfélagið í heild. Ég veit ekki hvort þetta gæti hreinlega komið af stað skriðufalli í formi gjaldþrota og uppsagna. Almenningur er orðinn hræddur við að eiga sparifé í bönk- unum, en veit að það þýðir ekki að taka peningana út og stinga undir koddann.“ Verðbólga og vextir séu það há að slík viðbrögð eru ekki raunhæf. „Fólk fékk á mánudag áþreifan- lega að finna fyrir því að við erum í efnahagslegri niður- sveiflu, þótt ef til vill sé ekki rétt að tala um kreppu. Atvinnuleysi er enn mjög lítið, svo dæmi sé tekið. Far- andverkamenn hafa verið að tínast heim til sín og léttir það mjög á atvinnumarkaði við þessar aðstæður.“ Jón Hákon segir að ekki sé hægt að kenna Glitni eða ríkisstjórn- inni um hvernig fór því að þetta er að stórum hluta erlent vandamál eins og áður segir og ástandið er síst betra í öðrum ríkjum. „Stóra erlenda fréttin er angi af sama máli, en þegar bandaríska þingið samþykkti ekki frumvarp Bush forseta um björgunaráætlun í efnahagsmálum lækkaði hlutabréfa- verð þar í landi um 10%. Enginn sá það fyrir að atburðarásin yrði svona hröð hér á landi eftir að bandaríski fjárfestingarbankinn Lehman Brot- hers fór í þrot um miðjan mán- uðinn,“ segir Jón Hákon. Fréttin | Jón Hákon Magnússon Svartur mánudagur Jón Hákon Magnússon Morgunblaðið/Golli Fundahöld Helstu forystumenn ríkisstjórnarinnar auk seðlabankastjóra áttu í gærkvöldi fundi með lykilmönnum úr bankageiranum HugurAx / Guðríðarstíg 2-4 / 113 Reykjavík / Sími 545 1000 / Fax 545 1001 / www.hugurax.is TOK, bókhalds- og launakerfið er hægt er að fá í nokkrum mismunandi útgáfum sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum. Þegar fyrirtæki stækka þá stækkar kerfið með. Með þessu móti spara fyrirtæki sér fé með því að nota bókhalds- og launakerfi sem hentar hverju sinni sama hvort hjá fyrirtækinu starfa þrír eða þrjúhundruð. Vex með þínu fyrirtæki TOK bókhalds- og launakerfið hentar stórum sem smáum fyrirtækjum. Með TOK getur þú byrjað með lítið kerfi sem hægt er að stækk eftir því sem fyrirtækið vex og dafnar. Kynntu þér kosti TOK. S K A P A R IN N A U G L Ý S IN G A S T O FA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.