Morgunblaðið - 06.10.2008, Side 2
2 F MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Opið
mán.-fös. kl. 9-17.00
Haukur Geir
Garðarsson
viðskiptafræðingur og
lögg. fasteignasali
haukur@fastis.is
Ásbjörg
Högnadóttir
sölufulltrúi
asbjorg@fastis.is
Vorum að fá í sölu fallega og rúmgóða 3ja
herb. íb. ofarlega í lyftuhúsi með stórglæsi-
legu útsýni í þrjár áttir og 15 ferm. yfir-
byggðar svalir. L.f. þvottavél í íbúð, þurrk-
herbergi á hæðinni. Sérbílastæði. Ásett
verð 22,2 millj.
ORRAHÓLAR – ÚTSÝNI 3
Í einkasölu rúmgóð, 94 ferm., 3ja herbergja
íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýli. Stofa, 2
svefnherb., eldhús, baðherbergi og þvotta-
herbergi í íbúð. Parket. ÁKVEÐIN SALA.
RJÚPNASALIR - KÓP. 3
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 4ra
herb. nýuppgerða hæð í þríbýli ásamt bíl-
skúr m. mögul. á stækkun. Íbúðin sem er
meira og minna nýl. uppgerð, er sérlega
björt og rúmgóð. Eldhús, stofa, 3 herbergi
og flísalagt baðherbergi. Sameiginlegt
þvottahús. Endurnýjaðar vatnslagnir og
rafmagn. ÝMIS SKIPTI MÖGULEG.
ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐI Í EIGNINA.
SKIPASUND – GLÆSIL. HÆÐ - TILBOÐ
SELJENDUR
FÁIÐ RÁÐGJÖF HJÁ REYNSLUMIKLUM
VIÐSKIPTAFR./LÖGG. FASTEIGNASALA
VANTAR EIGNIR Á SÖLUSKRÁ.
PERSÓNULEG OG TRAUST ÞJÓNUSTA
Vorum að fá í einkasölu rúmgóða 2ja herb.
69 fm íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli. Glæsi-
legt útsýni. Stutt í falleg útivistarsvæði.
Gengið er af svölum í garðinn. Þvottahús
innan íbúðar. Frábær fyrsta eign!
Verð 18,9 millj.
Opið hús í dag frá 18.00-18.30.
VELKOMIN.
REYKÁS 27 – 2JA – OPIÐ HÚS 2
Síðasta einingin. Um er að ræða 132 fer-
metra einingu í nýl. iðnaðarhúsnæði sem er
klætt að utan. Mjög góð lofthæð allt að 7
metrar. Milliloft að hluta. Stórar innkeyrslu-
dyr. Gott athafnasvæði.
Sanngjarnt verð: 19,9 millj.
STEINHELLA – HAGSTÆTT VERÐ Atv
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 111 fer-
metra 3ja herb. íbúð á jarðhæð í litlu ný-
legu fjölbýli ásamt stæði í bílskýli. Stofa
með hurð út á verönd, 2 herbergi, vandað
eldhús, baðherbergi með baðkari og sturtu
og þvottahús. Parket og flísar á gólfum.
Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið.
Áhv. um 16 millj. Ásett verð 33,8 millj.
BOÐAGRANDI - NÝTT HÚS - BÍLSK. 3
Vorum að fá í einkasölu um 27 fermetra
nýlega geymslu/bílskúr á afgirtu og vökt-
uðu svæði í Hafnarfirði. Hiti, vatn og raf-
magn. Malbikað plan. Sameiginlegar snyrt-
ingar. Mjög gott húsfélag. Áhvíl. um 1,5
millj. Laust strax. Verð 3,9 millj.
HAFNARFJ. – BÍLSKÚR/GEYMSLA Atv
hæð
Vorum að fá í einkasölu góða 4ra herbergja
útsýnisíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi ásamt
stæði í bílskýli, á þessum vinsæla stað.
Hol, stofa með suðvestursvölum, 3 svefn-
herbergi, eldhús og baðherbergi. Góð
sameign. Hús nýlega yfirfarið og málað.
Ásett verð 26,9 millj.
BOÐAGRANDI - BÍLSKÝLI
TIL LEIGU BÍLSKÚR/VÖRUGEYMSLA Í HAFNARFIRÐI.
VATN, RAFM.,HITI. SAM. SNYRTINGAR. LOKAÐ, VAKTAÐ SVÆÐI.
LAUST STRAX. UPPL. Í 822-4850.
4
Það krefst bæði þjálfunar oghæfileika að innrétta fal-legt heimili og mistökingeta kostað bæði tíma og
peninga.
Þökk sé húsgagna- og innrét-
ingasíðunni Mydeco.com eiga þeir
sem ekki hafa góða tilfinningu fyrir
rými eða litavali sér nú loksins ein-
hverja von.
Auk þess að vera bráðskemmtileg
vefsíða um allt sem kemur innrétt-
ingum heimilisins við býr Mydeco-
.com yfir hreint mögnuðu forriti sem
gerir fólki kleift að innrétta á tölvu-
skjánum herbergi með alls kyns
mublum og alls kyns efnum til að sjá
með einföldum hætti hvernig allt
saman kemur út.
Það tekur enga stund að sníða út
herbergi til að innrétta og hægt er
að vinna með metrakerfið sem mæli-
einingu (það hefur verið helsti gall-
inn á sambærilegum forritum til
þessa að þau reikna allt í fetum,
enda gerð fyrir Bandaríkjamenn).
Þegar umgjörðin er komin má
leggja á herbergið hvers kyns gólf-
efni og koma fyrir gluggum og hurð-
um eins og þarf. Síðan er hægt að
raða inn í rýmið (og snúa á alla vegu)
„alvöru“ húsgögnum sem öll eiga sér
fyrirmyndir í hillum og búðargólfum
alvöru húsgagnaverslana, en fjöldi
stórra og smárra húsgagnaframleið-
enda hefur lagt sitt af mörkum við
gerð forritsins.
Notandinn getur virt herbergið
fyrir sér frá öllum sjónarhornum og
til að kóróna allt saman reiknar for-
ritið út í sterlingspundum verðið á
húsgögnunum og skrautmununum
sem valin hafa verið.
Allt er þetta ókeypis og það þarf
ekki einu sinni að hlaða forriti í tölv-
una, því allir galdrarnir fara fram í
gegnum vafrann. Reyndar þarf
skráningu til að vista hönnunina, en
skráningin er ókeypis og þarf ekki
að hafa áhyggjur af endalausum
straumi ruslpósts.
Svo er ekki úr vegi að rápa aðeins
um Mydeco-vefinn, því þar er allt
morandi í góðum hugmyndum,
áhugaverðum innréttingum og
spennandi lausnum.
Sims fyrir lengra komna
Allir geta innréttað draumaherbergið sitt með einföldu forriti á síðunni Mydeco.com
Hægt að gera tilraunir með litasamsetningar, gólfefni og „alvöru“ húsgögn
Vinnuborðið Það tekur enga stund að ná tökum á forritinu og hægt að
dunda sér nánast endalaust við að púsla saman ólíkum mublum og litum til
að sjá hvort allt passar vel saman sem ein heild.
Innlit Skoða má herbergið frá öllum sjónarhornum. Hérna sjá lesendur
n.v. hvernig greinarhöfundur myndi vilja raða upp í stofunni hjá sér. Auð-
vitað er hönnunin grófgerð en getur samt komið að góðum notum.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
TENGLAR
..............................................
www.mydeco.com/rooms/planner
Fasteignir Hádegismóum 2, 110 Reykjavík,
sími 5691100, netfang fasteignir@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Ásgeir Ingvarsson, asgeir i@mbl. is ,
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is
Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Lækka vexti á nýjum lánum
Kaupþing tilkynnti í síðustu
viku lækkun vaxta á nýjum íbúða-
lánum um 0,15%. Eftir lækkunina
verða lægstu vextir á nýjum
íbúðalánum við bankann 5,90%.
Kaupþing lauk hinn 26. september
útboði á skuldabréfum til fjár-
mögnunar nýjum íbúðalánum en
alls bárust tilboð upp á 1,5 millj-
arða króna. Kaupþing tók til-
boðum fyrir 1 milljarð en með-
alávöxtunarkrafa samþykktra
tilboða var 5%.
Íbúðalánasóður eignast íbúðir
Íbúðalánasjóður átti í síðustu
viku alls 103 íbúðir, en þær hefur
sjóðurinn eignast á uppboði og
hefur eignum í eigu sjóðsins fjölg-
að talsvert síðustu mánuði. Hluti
íbúðanna var byggður eða keyptur
með íbúðaláni og þurfti sjóðurinn
að leysa þær til sín eftir erfiðleika
leigufélaga, en flestar eru eign-
irnar á Austurlandi og þá 2-4 her-
bergi að stærð.
Aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúða-
lánasjóðs segir innlausn eigna
vaxandi vandamál. Starfsgreina-
félagið AFL á Austurlandi hvetur
leigjendur til að þinglýsa samn-
ingum.
Fleiri sækja um greiðslufrest
Íbúðalánasjóði hafa frá í sumar
borist rúmlega 100 umsóknir um
greiðslufrest. Sjóðurinn leyfir
þeim sem eiga tvær eignir en hef-
ur ekki tekist að selja aðra þeirra
að fresta afborgunum af lánum.
Einnig má fá afborgunarfrest
vegna greiðsluerfiðleika t.d. af
völdum tekjutaps eða atvinnumiss-
is og hefur slíkum umsóknum
fjölgað talsvert undanfarna mán-
uði.
ÞETTA
HELST …