Morgunblaðið - 18.10.2008, Síða 1
Halló, krakkar!
Sjáið hvað þetta er fín mynd af mér. Hún
Margrét Helga, 7 ára, teiknaði hana af mér.
Mikið varð ég glaður þegar ég opnaði um-
slagið og sá hana. Mig langar til að þakka
ykkur kærlega fyrir alla fallegu myndirnar
sem þið hafið sent mér og vil láta ykkur vita
að við birtum þær allar en þið gætu þurft að
bíða í nokkrar vikur eftir birtingu.
Ég vil líka hvetja ykkur til að halda áfram
að senda mér bréf um ykkur, teikningar,
pennavinaauglýsingar, brandara, gátur,
uppskriftir og bara hvað sem ykkur dettur í
hug. Þið getið bæði sent mér póst á net-
fangið barnablad@mbl.is og líka á
heimilisfangið:
Morgunblaðið
Patti póstkassi
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Kæru kátu krakkar á Ís-
landi, megið þið eiga góða helgi. Ég hlakka
til að heyra frá ykkur,
Patti póstkassi.
Patti póstkassi
Skúli skáti fann
ekki vasahnífinn
sinn í morgun
þegar hann ætl-
aði að fara að
tálga. Hann
kippti sér ekki
upp við það og
reyndi að tálga
spýtukalla með
sög. Það gekk nú
heldur illa hjá
honum svo hann
biður ykkur um
að hjálpa sér að
leita að 10 skáta-
hnífum á síðum
barnablaðsins.
Það gengur
ekki að
tálga með
sög
laugardagur
18. 10. 2008
börn
LÁTTU LJÓS ÞITT SKÍNA
BORGARLEIKHÚSIÐ LEITAR AÐ SÖNGELSKUM OG HÆFILEIKA-
RÍKUM KRÖKKUM TIL AÐ TAKA ÞÁTT Í SÖNGLEIK » 3
Atli Mar, 5 ára, gagnrýnir bókina Skrímslapest» 3
Skátar hittast vikulega á fundum og vinna að
hinum ýmsu verkefnum. Barnablaðið heim-
sótti skátafélagið Vífil í Garðabæ og fylgdist
með nokkrum strákum sem voru að læra
hnúta, klifra og að súrra. Þegar trétrönur
eru bundnar saman á ákveðinn hátt, kallast
það að súrra og þá er hægt að búa til úr þeim
ótrúlegustu hluti, eins og borð, hlið, eldstæði,
rólu og jafnvel fótboltamörk eins og strák-
arnir í Garðabæ voru að reisa. Barnablaðið
settist niður með tveimur kátum strákum og
þeir sögðu okkur frá skátalífinu. » 3
Morgunblaðið/Árni SæbergSkátalíf Jón Egill og Eiríkur Egill súrra saman trönur og búa til úr þeim hið fínasta fótboltamark.
Súrrandi kátir skátar í Garðabæ
Einfaldir skátahnútar
Hæ, hæ!
Ég heiti Benedikt Einarsson. Ég óska eftir
pennavini á aldrinum 7-9 ára, bæði stelpu og
strák. Áhugamál mín eru aðallega vinir og tölvu-
leikir.
Kær kveðja,
Benedikt Einarsson
Hrísmóum 7
210 Garðabær
Halló!
Ég heiti Hafdís Katrín og óska eftir pennavini
sem er 9 ára. Mér er sama hvort það er stelpa eða
strákur. Áhugamál mín eru hestar, hundar,
körfubolti og dans. Ég er sjálf 9 ára.
Hafdís Katrín Hlynsdóttir
Hörgatúni 13
210 Garðabær