Morgunblaðið - 18.10.2008, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2008
2 Börn
Í þessari viku eigið þið að
leita að eftirfarandi skátaorð-
um í stafasúpunni.
BAKPOKI
BAND
FÁNI
GÖNGUSKÓR
HNÍFUR
HNÚTUR
KLÚTUR
RÖTUN
SKÁTAMÓT
SKRÚÐGANGA
SUMARBÚÐIR
TJALD
ÚTILEGA
VARÐELDUR
Þegar þið hafið fundið öll orð-
in standa eftir 24 ónotaðir stafir.
Raðið þeim upp í réttri röð og þá
fáið þið lausnarsetninguna sem
þið skrifið á blað og sendið inn
fyrir 25. október. Munið að láta
fylgja með upplýsingar um nafn,
heimilisfang og aldur. Þá eigið
þið möguleika á að vinna bókina
Örlög guðanna. Sögur úr nor-
rænni goðafræði.
Framan á umslagið skrifið þið:
Morgunblaðið
Börn – verðlaunaleikur
18. október 2008
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Fyrir tveimur vikum áttuð þið að telja sælgæti. Dregið var úr
réttum lausnum og þeir heppnu fá bókina Lubbi lundi í verðlaun.
Vinningshafar:
Guðni Berg Hauksson
6 ára
Ásvegi 25
760 Breiðdalsvík
Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir
8 ára
Hæðarbyggð 14
210 Garðabær
Máni Ingason
10 ára
Háukinn 8
200 Hafnarfjörður
Ingólfur Rögnvaldsson
6 ára
Hraunbæ 72
110 Reykjavík
Aron Flavio Luciano
6 ára
Öldugranda 7
107 Reykjavík
Til hamingju, krakkar!
Þið fáið bókina senda heim
á næstu dögum.
Verðlaunaleikur vikunnar
Klipptu krossana tvo út og klipptu
þá svo í sundur eftir skástrikinu.
Þegar þú hefur gert það ættir þú að
vera með fjóra útklippta búta, tvo
rauða og tvo græna. Reyndu að
púsla þessum fjórum bútum saman
þannig að þeir myndi ferning.
Lausn aftast.
Krossapúsl
Birta Líf, 10 ára, teiknaði þessa fínu mynd af hárprúðu fjöl-
skyldunni. Þau Lucíanó, Melkorka og Emilía eru nú aldeilis
glæsileg.
Hárprúð fjölskylda
Ballerína
Harpa, 9 ára, teiknaði þessa sniðugu mynd af ballerínu sem
dansar undir litríkri diskókúlu. Sjáið hvað ballerínan er í fal-
legum ballettskóm.
Sylvía Sól, 6 ára, teiknaði þessa fallegu mynd af prinsessu
sem er föst í turni. Hún hefur kastað hárinu á sér út um
gluggann svo prinsinn geti híft sig upp á því og kysst hana.
Prinsessan í turninum
Höfuðkast
Undirbúningur: Hver þátttakandi
klippir út lengju af kartoni og límir
hana saman, þannig að úr verður
einskonar botnlaus skál. Síðan þarf
að gera gat, fyrir teygju, festa í kart-
onið og svo smeygja þátttakendurnir
teygjunni undir hökuna til að festa
kartonskálina á höfðinu (sjá mynd).
Því næst þarf hver þátttakandi að
búa til 10 litlar kúlur úr álpappír.
Leikur: Þátttakendur reyna að
koma álkúlum ofan í kartonskál and-
stæðingsins og sá sem kemur fleiri
kúlum ofan í vinnur. Reglur geta
verið breytilegar, t.d. þátttakendur
standa kyrrir í fyrirfram ákveðinni
fjarlægð hver frá öðrum eða hlaupið
er um herbergið og reynt að forðast
að fá kúlur ofan í kartonskálina. At-
hugið samt að þegar álkúlan er kom-
in ofan í má ekki hneigja sig svo hún
detti úr.
Notaðu höfuðið
Kristín Anna, 10 ára, teikn-
aði þessa glæsilegu mynda-
sögu. Textinn á myndinni
er svo smár og er erfitt að
lesa hann og því kemur
hann hér.
Mynd 1: Komdu að leika.
Mynd 2: Já, en spyrjum
Mjása líka.
Mynd 3: Komdu að leika,
Mjási. Já, já. Komdu í felu-
leik.
Mynd 4: 1, 2, 3 …
Mynd 5: Oooo. Voff. Fund-
inn Mjási. Fundinn Voffi.
Mynd 6: Hvernig fannstu
okkur svona fljótt? Já. Það
sást í ykkur.
Mynd 7: Jæja, þá er komið
kvöld. Góða nótt, förum nú
heim. Já, góða nótt. Viljið
þið gista? Já. Já takk.
Vinir