Morgunblaðið - 18.10.2008, Side 3
Börn 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2008
Þegar Barnablaðið bar að garði hjá skátafélag-
inu Vífli í Garðabæ voru þar rúmlega 20 kröft-
ugir strákar sem biðu óþreyjufullir eftir að
Gísli Örn Bragason, foringi þeirra úthlutaði
þeim verkefnum. Gísli skipti strákunum í þrjá
hópa og fóru þeir nokkrir að læra hnúta, aðrir
að súrra og þriðji hópurinn að klifra. Með
reglulegu millibili var svo skipt, svo allir fengu
að reyna sig við hvert verkefni. Barnablaðið
fékk tvo skemmtilega stráka lánaða, þá Eirík
Egil Gíslason, 11 ára, og Jón Egil Þorsteins-
son, 12 ára. Þeir Eiríkur og Jón Egill settust
niður með okkur og sögðu okkur frá skátalífinu
í Garðabæ.
Útilegur og póstaleikir
Hvað eruð þið búnir að vera lengi í skát-
unum?
Eiríkur: Ég er búinn að vera tvö ár.
Jón Egill: Þetta er fimmta árið mitt.
Hvers vegna ákváðuð þið að gerast skátar?
Jón Egill: Mig langaði bara til að prófa eitt-
hvað nýtt og svo var stóra systir mín í skát-
unum svo ég vissi aðeins hvað var að gerast í
skátunum.
Eiríkur: Ég vildi prófa að fara í útilegur með
vinum mínum. Þeir voru svo margir í skát-
unum og eru enn.
Hvað gerið þið í skátunum?
Eiríkur: Við förum mikið í póstaleiki, úti-
legur og tálgum.
Jón Egill: Við lærum líka hnúta og svo lær-
um við líka að bjarga okkur sjálfir og eldum
mikið í útilegum.
Landsmótið stendur upp úr
Hvað er það skemmtilegasta sem þið hafið
gert í skátunum?
Eiríkur: Landsmótið í sumar.
Jón Egill: Já, landsmótið í sumar var mjög
skemmtilegt. Þá fórum við næstum því á
hverju kvöldi á kvöldvöku þar sem allir á
mótinu koma saman og skemmta sér.
Eiríkur: Það er svo gaman á kvöldvökum í
útilegum því þá erum við oft með skemmti-
atriði. Við Jón Egill erum báðir í fréttastöðinni,
sem heitir Er ég, og tveir aðrir vinir okkar og
við erum alltaf með skemmtiatriði á kvöldvök-
um.
Jón Egill: Mér finnst líka mjög gaman þegar
við fáum að kveikja eld. Ég er nefnilega smá
brennuvargur og finnst mjög skemmtilegt að
kveikja eld.
Er ekkert leiðinlegt í skátunum?
JónEgill: Það er ekki mjög skemmtilegt að
verða rennvotur í útilegum og hafa ekki stað til
að þurrka fötin sín.
Eiríkur: Mér finnst heldur ekkert sérstak-
lega gaman að binda hnúta því ég er ekkert svo
góður í því.
Akureyri heillar
Hvert finnst ykkur skemmtilegast að fara í
útilegur?
Eiríkur: Til Akureyrar, við vorum þar á
landsmótinu.
Jón Egill: Já, mér finnst líka skemmtilegast
að fara í útilegu á Akureyri.
Ef þið væruð ekki í skátafélaginu Vífli í
hvaða skátafélagi mynduð þið þá vilja vera?
Eiríkur: Ég myndi vilja vera í Svönum á
Álftanesi. Það eru margir skemmtilegir krakk-
ar þar.
Jón Egill: Ég myndi örugglega vera í Æg-
isbúum því frændi minn er þar.
Við kveðjum þessa skemmtilegu og skýru
stráka sem hlaupa strax út á tún og taka til
við að súrra saman fótboltamark. Það er
greinilega mikið ævintýri að vera skátastrák-
ur.
Lærum að bjarga
okkur sjálfir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skátaskemmtikraftar Eiríkur og Jón Egill eru góðir vinir og eru saman í fréttastöðinni Er ég
sem sér um skemmtiatriði á skátakvöldvökum.
Skátar Strákarnir í Fornmönnum í skátafé-
laginu Vífli hittast einu sinni í viku á skáta-
fundum og kynnast nýjum ævintýrum.
Skátadulmál - lausn aftast
Á sunnudaginn var frumsýndi Ein-
leikhúsið barnaleiksýninguna Ósk-
ina í Þjóðminjasafni
Barnablaðið fékk að fylgjast með
Óskinni sem er gamansamt æv-
intýri um Þrúði trúð sem eignast
Snjólf snjókarl að vini. Þrúður trúð-
ur þarf að bjarga Snjólfi snjókarli
því hann bráðnar þegar sólin hækk-
ar á lofti. Á næstu dögum mun Ein-
leikhúsið heimsækja skóla og leik-
skóla landsins svo börn landsins
geti séð Óskina rætast.
Óskin rætist í
Þjóðminjasafninu
18 ára til að fara með hlutverk sjö
barna herra Trapps. Skráning í
áheyrnarpróf mun fara fram í
anddyri Borgarleikhússins mið-
vikudaginn 22. október næstkom-
andi kl 16:30-18:00. Sjálf prófin
munu síðan fara fram nokkrum
dögum síðar og hverjum og einum
úthlutaður tími.
Svo nú er um að gera að hætta
að loka sig inni í herbergi og
syngja í hárburstann. Fáið leyfi
hjá mömmu og pabba, skellið ykk-
ur í áheyrnarprufu og leyfið öðr-
um að njóta hæfileikanna.
Í mars á næsta ári mun Borgar-
leikhúsið frumsýna söngleikinn
Söngvaseið. Söngvaseiður er einn
þekktasti söngleikur allra tíma
enda haldast þar í hendur hrífandi
tónlist og hjartnæm saga. Verkið
var frumflutt í New York árið
1959 en hefur tvisvar verið sett
upp í atvinnuleikhúsi hér á landi.
Tónlistin er löngu orðin sígild og
nægir þar að nefna lög eins og Do
re mí og Alparós.
Í tilefni af uppsetningu þessa
skemmtilega verks leitar Borgar-
leikhúsið að söngelskum og hæfi-
leikaríkum börnum á aldrinum 8-
Vilt þú láta
ljós þitt skína?
Bókin Skrímslapest
er bæði áhugaverð
og góð. Hún er um
skrímsli sem fá skrímslapest. Þegar
litla skrímslið og stóra skrímslið
fengu skrímslapest voru fullt af
doppum á þeim. Stóra skrímslið lét
eins og það væri eins árs. Litla
skrímslið lét eins það var vitrasta
skrímsli í heimi. Bókin kennir okk-
ur að láta eins og litla skrímslið.
Atli Mar Baldursson, 5 ára.
Högum okkur
eins og viturt
skrímsli
Morgunblaðið/Kristinn