Morgunblaðið - 21.10.2008, Síða 3

Morgunblaðið - 21.10.2008, Síða 3
Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2008 DAVÍÐ Þór Viðarsson, fyrirliði Ís- landmeistara FH í knattspyrnu, heldur í dag til Noregs þar sem hann verður til skoðunar hjá norska úrvalsdeildarliðinu Viking. Davíð hefur áður verið til reynslu hjá Viking en árið 2002 þegar hann var 17 ára gamall æfði hann með liðinu á La Manga á Spáni en var ekki boðinn samningur. Hann samdi hins vegar við Lilleström og var á mála hjá liðinu frá 2002-2005. Í liði Lilleström á þessum árum var Uwe Rösler sem er nú þjálfari hjá Vik- ing. Davíð er 24 ára gamall sem átti frábæru gengi að fagna með FH- ingum á nýliðnu tímabili. Hann var í landsliðshópnum sem tók þátt í leikjunum við Hollendinga og Makedóna á dög- unum en kom ekkert við sögu í þeim leikjum. Davíð Þór lék 21 af 22 leikjum FH í Landsbankadeildinni í sumar. Hann skoraði 3 mörk og var driffjöðrin í miðjuspili liðsins. gummih@mbl.is Davíð Þór heldur til skoðunar hjá Viking í Noregi í dag Davíð Þór Viðarsson Íslenska lands-liðið í hand- knattleik karla, skipað leikmönn- um 19 ára og yngri, hefur tryggt sér keppn- isrétt á heims- meistaramótinu sem fram fer í Túnis í ágúst á næsta ári. Það var mjög góður árangur U18 ára lands- liðsins á Evrópumótinu í sumar þar sem liðið hafnaði í 4. sæti, undir stjórn Einars Guðmundssonar, sem tryggði U19 ára liðinu farseðilinn á HM næsta sumar. Reikna má með því að uppistaða úr U18 ára liðinu skipi U19 á HM í Túnis.    Brendan Haywood miðherjiNBA-liðsins Washington Wiz- ards verður frá í allt að hálft ár vegna meiðsla á hægri úlnlið. Hay- wood meiddist í leik hinn 2. okt. sl. og fór hann í aðgerð í kjölfarið þar sem liðband í úlnliðnum var lagað.    Þak á áhorfendastúku á heimavellisænska knattspyrnuliðsins Örgryte féll saman í leik þess gegn Väsby í næstefstu deild um helgina. Nokkuð margir áhorfendur slösuð- ust en enginn þeirra alvarlega.    Einn af lykil-mönnum norska hand- knattleikslands- liðsins, Børge Lund, verður ekki með liðinu á heimsmeistara- mótinu í Króatíu í janúar. Lund meiddist með þýska liðinu Kiel í leik gegn Barcelona í Meistaradeild Evr- ópu um helgina. Talið er að Lund hafi slitið hásin og er ljóst að hann verður frá keppni í langan tíma.    Kolo Toure, varnarmaður Arsen-al, er meiddur á öxl og mun ekki taka þátt í leiknum við Fener- bahce í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Hann meiddist í leik gegn Everton um liðna helgi og bætist á lista meiddra varnarmanna hjá Arsenal, en þar eru fyrir William Gallas og Bacary Sagna.    Sömu sögu er að segja af PatriceEvra, leikmanni Manchester United, sem mun ekki leika með Evrópumeisturunum gegn skoska liðinu Celtic í kvöld. Evra tognaði í læri í leik gegn WBA um helgina en gæti verið orðinn klár í slaginn um þá næstu.    Enska knatt-spyrnu- sambandið hefur tekið til rann- sóknar ummæli Didier Drogba, leikmanns Chelsea, í ævi- sögu sinni. Þar kveðst Drogba sjá eftir því að hafa ekki kýlt Nem- anja Vidic, leikmann Manchester United, þegar liðin áttust við í úr- slitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. Drogba var vísað af velli fyrir að slá Vidic létt en segir: „Ég er búinn að sjá leikinn og finnst að ekki hafi átt að reka mig af velli. Ef ég hefði kýlt hann myndi ég skilja þetta. Núna vildi ég að ég hefði gert það.“ Drogba gæti átt yfir höfði sér leikbann og fjársekt fyrir um- mælin en fordæmi eru fyrir slíku frá því þegar Roy Keane skrifaði um tæklingu sína á Alf Inge Haaland í ævisögu sinni.    Morgan Pressel vann sigur áKapalua-mótinu í golfi um helgina. Þetta er fyrsti sigur hennar á LPGA-mótaröðinni. Fólk sport@mbl.is Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is ÁGUGAVERÐUR leikur verður í E- riðli meistaradeildar Evrópu í knatt- spyrnu í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Celtic. United er með 4 stig eftir tvo leiki líkt og Villar- real, en Celtic með eitt stig eins og AaB. Celtic á væntanlega erfiðan leik fyr- ir höndum, ekki endilega vegna þess að liðið mætir United, heldur kannski ekki síður vegna þess að árangur liðs- ins á útivöllum í keppninni síðustu ár er ekki til að hrópa húrra fyrir og er í rauninni dapurlegur. Eitt stig úr 16 leikjum á útivelli! Celtic hefur leikið 16 leiki á útivelli í meistaradeildinni, tapað 15 og gert eitt jafntefli, við Barcelona á Nou Camp í nóvember 2004. Gordon Stra- chan, stjóri Celtic, hefur reynt að fylla sína menn eldmóði og sagt að þeir eigi ekki að þurfa að drattast með byrði fyrrum leikmanna og stjóra liðsins. Þessi slaki árangur á útivelli sé alls ekki á ábyrgð þeirra sem nú leika fyrir félagið og menn megi ekki láta það trufla sig í leikjunum sem framundan séu. Árangur Celtic á heimavelli er hér um bil jafn góður og hann er slæmur á útivelli. Liðið hefur sigrað í 13 af 16 heimaleikjum sínum og aðeins tapað einu sinni, fyrir Barcelona. Skoska deildin of slök? Hverju þessi slaki árangur á útivelli er um að kenna skal ósagt látið en margir hafa bent á að hugsanlega hafi sú staðreynd að skoska deildin sé ekki áberandi sterk haft eitthvað að segja. Þeir sem telja það benda á að oft hafi Celtic unnið heimaleiki sína á lokamín- útum leiksins, hvattir áfram af áköfum stuðningsmönnum. Á útivöllum fái lið- ið hins vegar oft á sig mark eða mörk snemma leiks og eftir það sé virkilega á brattann að sækja, þrátt fyrir góðan stuðning frá fylgismönnum sínum. Á sama tíma og flautað verður til leiks á Old Trafford hefst leikur Vill- arreal og danska liðsins AaB á Spáni og má búast við heimasigri þar. Losnar Celtic við útileikjadrauginn? ar hann hafði minnkað muninn með marki úr aukaspyrnu. Sundsvall jafnaði síðan metin nokkru síðar, 2:2, en mark frá Gefle á 73. mínútu reyndist úrslitamarkið. Sundsvall er því áfram í næstneðsta sæti deild- arinnar þegar fjórar umferðir eru eftir en nú er liðið fimm stigum á eftir næsta liði, Ljungskile, og sex stigum á eftir Gefle. Kári kom inn á sem varamaður hjá AGF á 72. mínútur gegn Midtjylland á útivelli. Þá voru heimamenn yfir, 2:1. Aðeins einni mínútu eftir að hafa kominn inn á hafði Kári klórað í bakkann fyr- ir AGF þegar hann skallaði knöttinn í mark Midt- jylland. Lengra komust leikmenn AGF ekki og þeir eru í 6. sæti deildarinnar með 12 stig að lokn- um 10 leikjum. iben@mbl.is otskónum ÍSLENSKA karlalandsliðið í golfi endaði í 27.–29. sæti á heimsmeistaramóti áhugamanna sem lauk um helgina í Ástralíu. Íslendingarnir léku samtals á 15 höggum yfir pari vallar en tvö bestu skorin í þriggja manna liðum töldum á hverjum hring. Skotar fögnuðu heimsmeistaratitlinum á 20 högg- um undir pari, Bandaríkjamenn komu þar næstir á 11 höggum undir pari og Svíar enduðu í þriðja sæti á 6 höggum undir pari. Lokahringurinn var slakur hjá íslensku keppend- unum en þeir voru í 22. sæti fyrir lokadaginn og féllu því niður um 5 sæti á lokahringnum. Sigmund- ur Einar Másson úr GKG lék lokahringinn á 77 höggum en Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum og Íslandsmeistarinn í höggleik, Kristján Þór Ein- arsson úr Kili, Mosfellsbæ, léku báðir á 78 höggum. Í einstaklingskeppninni endaði Ólafur Björn í 37.–42. sæti á 5 höggum yfir pari samtals (75-70- 72-78), Sigmundur endaði í 64.- 68. sæti á 10 höggum yfir pari (75-72-76-77) og Kristján Þór endaði í 110.-117. sæti á 20 högg- um yfir pari vallar (75-77-80-78). Alls tóku 190 kylfingar þátt en besta skorið í einstaklings- keppninni átti Bandaríkjamað- urinn Rickie Fowler en hann lék á 10 höggum undir pari. Aðeins 9 kylfingar léku hringina fjóra undir pari vallar samtals. Næsta keppni fer fram í Argentínu árið 2010 og Tyrkir verða gestgjafar HM árið 2012. seth@mbl.is Ísland endaði í 27.–29. sæti á HM í golfi Sigmundur Einar Másson „Þetta var besti kosturinn fyrir mig og mér finnst bara allt frábært hérna hjá klúbbnum,“ sagði Björn. Hann kemur heim í dag og heldur síðan til Noregs á nýjan leik 1. des- ember. Björn verður 18 ára í febrúar á næsta ári og segist hann hlakka mikið til að klæðast hinum gula og svarta keppnisbúningi félagsins og ætti að kannast við sig í þannig lit- um. Viktor Bjarki Arnarsson er samningsbundinn Lilleström, en var í láni hjá KR í sumar. Björn sagðist ekkert vita hvernig hans mál stæðu. Nýr þjálfari kemur til félagsins á næstu dögum, Henning Berg, sem lék áður með Manchester United og Blackburn. Hann var áður hjá Lyn. Lilleström er í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið byrjaði tímabilið mjög illa og var þjálfara liðsins Tom Nordlie sagt upp störfum. Í fyrra fagnaði Lilleström sigri í norsku bikarkeppninni en félagið hefur fimm sinnum orðið norskur meistari, síðast árið 1989. Teitur Þórðarson var þjálfari liðsins um tíma en margir íslenskir leikmenn hafa komið við sögu hjá félaginu. Þórður Guðjónsson, hálfbróðir Björns, var fyrir hönd ÍA við samn- ingagerðina. „Ég hlakka rosalega til að byrja og að sjálfsögðu ætla ég að taka þetta með trompi þegar þar að kemur,“ sagði Björn. skuli@mbl.is Á Noregsmið Björn Bergmann yfirgefur ÍA og reynir fyrir sér hjá Lilleström.  Björn Bergmann samdi við Lilleström „ÉG er bara kátur og mjög sáttur með að hafa náð þessum samningum við Lilleström,“ sagði Björn Bergmann Sigurðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að hann hafði skrifað undir þriggja ára samning við norska félagið Lilleström. „Ég er bara kátur og mjög sáttur“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.