Morgunblaðið - 21.10.2008, Side 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2008
Eftir Skúla Sigurðsson
sport@mbl.is
ÞAÐ er ekki hægt að segja að varn-
arleikur hafi verið yfirskrift fyrri
hálfleiks í gærkvöldi í leik Njarðvík-
inga og Grindvíkinga. Staðan var
50:53 í leikhléi. Grindvíkingar voru
síðan mun sterkari í síðari hálfleikur
og unnu 98:84.
Jóni Guðmundssyni, annar dómari
leiksins, varð að orði að staðan í hálf-
leik væri nánast sú sama og heild-
arskorið úr síðasta leik sem hann
dæmdi, en það var viðureign Snæ-
fells og Tindastóls á síðasta föstudag
sem lauk, 55:57.
Leikurinn var hraður og jafn
framan af og skoruðu liðin grimmt á
hvort annað. Áhorfendur fengu að
sjá skemmtilegan körfuknattleik og
ekki laust við að líkja fyrri hálfleik
við góðan Stjörnuleik þar sem vörn
er í raun algert aukaatriði. Á meðan
Njarðvíkingar skiptu stigunum
nokkuð vel á milli sín var það Páll
Axel Vilbergsson sem sá að miklu
leyti um það hlutverk fyrir gestina
og gerði m.a. 28 stig í fyrri hálfleik.
Nokkuð hægði á leiknum í seinni
hálfleik og gestirnir hertu þá vörn
sína til muna. Njarðvíkingar náðu
aðeins að skora 10 stig í þriðja leik-
hluta og þar með Grindvíkingar
komnir með þægilega stöðu fyrir síð-
asta fjórðung leiksins. Augljós mun-
ur var á liðunum í síðasta fjórðungi
leiksins hvað þreytu varðar. Breidd
Grindvíkinga fór loks að segja til sín
og Njarðvíkingar höfðu einfaldlega
ekki orku í það sem þurfti til að vinna
upp 15 stiga forskot sem Grindvík-
ingar höfðu byggt upp í 3. fjórðung.
„Varnarleikurinn hjá okkur var
ekki nægilega góður og svo má segja
að smáatriði sem varðaði að gæta
Páls Axels hafi einnig klikkað. Við
skoruðum 84 stig sem á að vera nóg
til að vinna leiki en fengum alltof
mikið af stigum á okkur, líkt og í
okkar fyrsta leik,“ sagði Friðrik
Stefánsson, Njarðvíkingur, dauð-
þreyttur í leikslok.
„Breiddin skipti máli í kvöld og við
vorum þreyttir eins og sást undir lok
leiks en það þýðir ekkert að væla um
það. Ljósi punkturinn kannski er að
ungir leikmenn fengu að spreyta sig í
nokkrar mínútur og stóðu sig prýði-
lega. Við erum einfaldlega ennþá að
slípa leik okkar saman,“ sagði Frið-
rik ennfremur.
Maður leiksins var án nokkurs
vafa Páll Axel Vilbergsson. Pilturinn
endaði leik með 41 stigi og 14 frá-
köstum. „Mér fannst í kvöld að okk-
ar hópur hefði einfaldlega verið
dýpri en hjá Njarðvíkingum með
fullri virðingu fyrir liði þeirra. Þeir
héldu í við okkur í fyrri hálfleik en þá
vorum við einnig að spila lélega
vörn,“ sagði maður leiksins og bætti
við; „Mér líður vel í Njarðvík það er
greinilegt. Maður mætir bara í leiki
til að leggja sig fram.“ Spurður um
hvort hann myndi jafnvel hugsa sér
að skipta yfir og spila einhvern tím-
ann fyrir þá grænklæddu svaraði
Páll: „Það er svo sem aldrei að vita,
það er alltaf gott að spila hérna í
Njarðvík.“
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, var ánægður með sig-
ur sinna manna í leikslok. „Við vor-
um mjög sannfærandi í sókninni og
okkur gekk vel að skora. Um leið og
vörnin okkar smellur saman erum
við skeinuhættir. Það var fín vörn
hjá okkur í seinni hálfleik en hún var
hreinlega bara léleg í þeim fyrri,“
sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindavíkur.
„Mér líður
vel í Njarðvík“
Páll Axel Vilbergsson gerði 41 stig
Ljósmynd/Skúli Sigurðsson
Stórleikur Páll Axel Vilbergsson átti stórleik fyrir Grindavík í Njarðvík í
gær. Hér fer hann framhjá Hirti Einarssyni sem mátti sín lítils í vörninni.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
STJARNAN landaði sínum fyrsta
sigri í Iceland Express-deild karla í
körfuknattleik í gærkvöldi þegar lið-
ið sótti tvö stig í Breiðholtið. ÍR-
ingar eru því án stiga eftir tvær um-
ferðir en þeir virtust vera á góðri
leið með að sigra þegar örfáar sek-
úndur voru eftir af leiknum. ÍR
komst yfir, 81:79, þegar um tuttugu
sekúndur voru eftir af leiknum en
sigurkarfa Kjartans kom þegar sex
sekúndur voru eftir og ÍR-ingum
mistókst í síðustu sókn sinni:
,,Ég horfði á Justin Shouse og bað
hann um að setja upp leikkerfi sem
ég vissi að myndi enda með þriggja
stiga skoti niðri í horninu. Við erum
allir góðir skotmenn og sá sem er
opinn tekur skotið. Þegar ég fékk
boltann vissi ég að ég ætti að taka
skotið og ég vissi að það færi ofan í.
Ég gat ekki yfirgefið Seljaskóla án
þess að setja niður þrist. En hann
kom á góðum tíma og tryggði okkur
sigurinn,“ sagði Kjartan í samtali við
Morgunblaðið að leiknum loknum,
og vísar þar til þess að hann hafði
ekki hitt úr þriggja stiga skoti í
leiknum þrátt fyrir margar tilraunir.
,,Bragi treystir öllum
til þess að skjóta“
Þó svo að Kjartan hafi verið kald-
ur fyrir utan þriggja stiga línuna
verður það ekki sagt um samherja
hans Birki Guðlaugsson sem hitti úr
fimm þriggja stiga skotum í aðeins
sjö tilraunum: ,,Nei, nei, ég er ekki
með byssuleyfi frekar an einhver
annar. Bragi þjálfari treystir öllum
til þess að skjóta. Í kvöld var það ég
sem fékk opin skot og tók þau bara.
Félögum mínum tókst að finna mig
þegar ég var óvaldaður og ég náði að
nýta mér það. Það er alltaf gaman að
vinna svona jafna leiki en mér fannst
við gera okkur óþarflega erfitt fyrir.
Ég tel að við hefðum getað klárað
þetta mun fyrr. En það fór eins og
það fór. Við höfðum sigur og það er
það sem skiptir máli,“ sagði Birkir.
Stjörnumenn byrjuðu leikinn mun
betur en ÍR-ingar og höfðu yfir í
hálfleik 47:40 en erlendu leikmenn-
irnir Jovan Zdravevski og Justin
Shouse voru drjúgir ásamt Birki. Í
síðari hálfleik tókst ÍR-ingum að
komast betur inn í leikinn og í síð-
asta leikhlutanum komust þeir yfir,
77:75, eftir að Eiríkur Önundarson
skoraði fimm stig í sömu sókninni. Á
síðustu tveimur mínútunum var mik-
ill darraðardans stiginn á dúknum í
Seljaskóla þar sem liðin skiptust á
að vera með forystu. En eins og áður
segir átti Kjartan síðasta orðið.
Eiríkur hætti við að leggja skóna á
hilluna og gæti átt eftir að reynast
ÍR-ingum mikilvægur vegna þeirra
breytinga sem orðið hafa á deildinni,
en hann skoraði 23 stig:,,Maður ætl-
aði kannski að vera aðeins meira til
baka í vetur. Maður er farinn að
spila leikstjórnanda aftur eftir að
hafa verið meira í skotbakverðinum.
En það er bara gaman. Nú fáum við
allir meiri ábyrgð og það þurfa fleiri
að taka af skarið. Við verðum flottir í
vetur þegar við erum búnir að jafna
okkur á þessum breytingum,“ sagði
Eiríkur og finnst sárt að horfa á eftir
stigunum: ,,Þetta var hrikalega
svekkjandi. Við vorum því miður
ekki tilbúnir í fyrri hálfleik þegar við
misstum þá fram úr okkur. Það var
ströggl að ná þeim en mér fannst við
sýna góðan karakter með því að
vinna upp forskotið og komast yfir.
Undir lokin vorum við eiginlega
komnir með sigurinn og áttum
möguleika fram á síðustu sekúndu. “
Varð að setja niður
þrist í Seljaskóla
Kjartan Kjartansson hitti loksins úr þriggja stiga skoti þeg-
ar 6 sekúndur voru eftir Reyndist sigurkarfa Stjörnunnar
Morgunblaðið/Kristinn
Tvö stig Jovan Zdravevski og Stjörnumenn sóttu sætan sigur í Seljaskóla.
Eftir Ragnar Gunnarsson
sport@mbl.is
BÆÐI Vesturlandsliðin, Snæfell og Skalla-
grímur, töpuðu leikjum sínum í fyrstu umferð
úrvalsdeildar karla í körfuknattleik og mættu
því stigalaus í íþróttahúsinu í Borgarnesi í gær.
Það er óhætt að segja að leikurinn hafi boðið
upp á flest annað en spennu því gestirnir fóru
með 32 stiga sigur með sér í Hólminn, 94:62.
Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og jafnt
var á með liðunum fyrstu mínúturnar. Finnur
Jónsson átti mjög góða spretti í upphafi leiks
og fór fyrir sínum mönnum í Skallagrím. Skall-
arnir komust í 12:6, en gestirnir jöfnuðu innan
skamms og komust yfir undir lok 1. leikhluta
18:20. Borgnesingar skoruðu hinsvegar ekki
körfu í 9 mínútur og 3 sekúndur í öðrum leik-
hluta og Hólmarar völtuðu yfir heimamenn og
komust í 18:40 án þess að Skallagrímsmönnum
tækist að finna nokkur svör. Staðan í hálfleik
var 23:43 Snæfellingum í vil og þar með má
segja að dagskránni hafi verið lokið.
Þriðji leikhluti var lítt skárri hjá Borgnes-
ingum þar sem þeir skoruðu 8 stig en gestirnir
25. Lokaleikhlutinn var því bara formsatriði og
nýráðnir þjálfarar liðanna leyfðu ungu mönn-
unum að spreyta sig. „Þetta var þægilegur sig-
ur, flott vörn hjá okkur fyrir utan fyrstu 5 og
síðustu 5 mínúturnar. Sem er eðlilegt því þá
voru úrslitin ráðin og menn eiga það til í svo-
leiðis stöðu að missa einbeitinguna,“ sagði Sig-
urður Þorvaldsson, annar þjálfara Snæfells, í
leikslok. Sigurður átti mjög góðan leik í liði
Snæfells og dró vagninn ásamt Hlyni og Jóni
Ólafi.
„Mér líst mjög vel á veturinn framundan,
það verður spennandi að sjá hvernig þetta
þróast. Það er mikið af spurningarmerkjum og
ýmsar gamlar hetjur að draga fram skóna,“
sagði Borgfirðingurinn Sigurður Þorvaldsson
glaðbeittur í leikslok
„Annar og þriðji leikhluti þar sem við gerum
samtals 13 stig drap okkur algjörlega. Við
verðum að gera miklu betur ef við ætlum okkur
að ná einhverju úr næstu leikjum. Það eru
miklir óvissutímar núna, en við eigum von á 2
nýjum íslenskum leikmönnum á æfingu á
morgun svo það er spennandi að sjá hvað ger-
ist,“ sagði brúnaþungur Hafþór Ingi Gunnars-
son, þjálfari Skallagríms. Það var fátt um fína
drætti í leik Skallagríms. Þorsteinn átti ágæt-
isleik og barðist vel, Sveinn átti fína spretti,
sérstaklega í lokin. Mesta athygli vakti þó hinn
17 ára gamli leikstjórnandi Sigursteinn Hálf-
dánarson sem gerði 10 stig á 14 mínútum.
Skallagrímur var gjörsigraður
Borgfirðingurinn Sigurður Þorvaldsson var ánægður með stigin tvö sem hann tók með sér heim