Rauði fáninn - 07.09.1934, Side 2

Rauði fáninn - 07.09.1934, Side 2
Katifti fáninn Verklýdsæskan skrifar Iðnnemar Iðnskólinn I ð 11 n á III s 151 «íl- frumvarpið. Hvernig stendur á því, að við iðnnemar höfum ekki enn knúið fram bætta iðnnámslög- gjöf? Er það vegna þess, að þess gerist ekki þörf? Nei, það er ekki vegna þess. Við höf- um allir fullan liug á því, að núgildandi iðnnámslöggjöf verði breytt í viðunandi horf. Enda þótt við höfum ekki að undan- förnu verið allir á eitt sáttir um frágang á liinu nýja frum- varpi okkar í einstökum at- riðum. Þessvegna hlýtur það að verða eitt af okkar fyrstu verkefnum, þegar við komum saman í skólanum í haust, að gera frumvarp okkar til laga um iðnnám þannig úr garði, að við getum verið 100% sam- mála um það, iðnnemarnir. Og þá munum við geta á grund- velli þess háð sigursæla bar- áttu, án þess í nokkru að slá af kröfum okkar. Nýja stjórn- in, »stjórn hinna vinnandi stétta-, eins og liún kallar sig, hvað ætlar hún að gera fyrir okkur iðnnemana? Hefir hún gefið út bráðabirgðalög til end- urbóta á núverandi iðnnáms- löggjöf, eins og henni bæri skylda til að gera, ef hún vildi bera nafn sitt með rentu. Nei, en binsvegar skulum við ekki láta hana hafa frið á næsta þingi fyr en hún liefir orðið við kröfum okkar. Sú ráðstöf- un, sem skólastjórn Iðnskólans gerði í fyrra, að færa skólann fram á kvöldið, á að verða hvöt til okkar iðnnema uin að herða baráttu okkar fyrir því að Iðnskólinn verði gerð- ur að dagskóla, sem hefir alla tíð verið sjálfsagðasta krafa okkar iðnnema. Það, að við erum látnir sitja á skólabekknum fram eftir öllu kvöldi, að loknu erfiði! dagsins, er talandi tákn þess, hvernig Jiin gjörspilta horgara- stétt elur upp æskulýðinn. Frekja gagnvart starfsstúlkun- um í Noa og Síríusi. Fyrir alþjóðlóðlega æskulýðs- daginn lögðu ungkommúnist- arnir í Austurbænum flugmiða inn til starfsstúlknanna í Nóa og Síríusi, þar, sem þær voru hvattar til þátttöku í deginum og að fylkja sér til baráttu fyr- ir liærra kaupi. Einhver »hús- bóndaliollur« labbakútur, sem hefir liug á því að koma sér í mjúkinn lijá atvinnurekend- unum, en skilur lítið baráttu verkafólksins, liafði gengið um verksmiðjuna og tekið þá flug- miðana, sem liann náði í áður en stúlkurnar lásu þá, — og labbaði með þá inná kontór. Sjáifsagt hefir hann »hækkað í áliti« fyrir frammistöðuna. En starfsstúlkunum fanst þetta óþarfleg l'rekja, að þær skyldu ei fá að lesa í friði það, sem til þeirra var sent, og tóku bara þeim mun betur eftir þeim fáu miðum, er þær náðu í. Þetta dæini sýnir livað at- vinnurekendur og þjónar þeirra eru »nervösir«, ef minnst er á kjarabætur handa verkafólk- inu, og að þeir leitast við í lengstu lög, að viðhalda því smánarkaupi. sem fólkinu er skammtað, samtímis því, að fyrirtækið stórgræðir, og færir út kvíarnar að miklum mun og byggir stórliýsi. Til alls Hvernig förum við að því að knýja þessi hagsmunamál okkar í framkvæmd? Það er ofur einfalt. Samband un<£ra kommúnista bendir okkur og öllum öðrum vinnandi æsku- ! lýð á hina einu réttu leið, sem er samfylking okkar um þær kröfur, sem við erum allir sammála um að okkur beri nauðsyn og skylda til að knýja í framkvæmd. Ertu með eða móti Bættri iðnnámslöggjöf? Með eða móti því að iðnskólinn verði dag- skóli? Einn sem er með. eru peningar hjá þessum herr- Lim, nema til að borga fólkinu viðunandi laun! En þið, starfsstúlkur í Nóa og Síríusi! Svarið með því einu að skipa ykkur þéttar saman um kröfur ykkar um hærra kaup, frían kaffitíma og lengri tíma í mat, án þess að vinnutíminn lengist! Og munið að undirbúa stofn- un félagsskapar hjá vkkur til að gæta hagsmuna ykkar! H. Hefud ÍViie allt. Ég þekki ekki móðurmildi, munaðarlaus ég er. Ég stel og betla mér brauði í borginni hér. Þið guðhrœddu, góðu sálir mér getið ei breytt. Mitt hœli er hliðargatan. Ég hrœðist ei neitt. Þið viljið til betra lífs breyta mér, barninu, nú, með sólfögrum, suðramum Ijóðum um sœlu í trú. Ef fengi ég verk til að vinna, þá vœri ég sœll, en ef ég að ósk ykkar fœri eilífur þrœll. Ég er ekki vonlaus, að veröld veiti mér hlíf. Ég veit ég er þrcell, en ég þori að þenkja um líf. Ég sé eldinn á austurvegum, sem óðum er nœr. Það er hann, sem huga minn svo hjarta mitt slœr. [grípur, Það er hann, sem huga minn grípur, mín lieilaga trú. Það er hann, sem mér, barn- til batnaðar nú. [inu, breytir Það er dimrnt og drungalegt strœtið og djöfull kalt. Ég hrópa svo himnarnir nötra: A hefnd fyrir allt. Vilhjálmur frá Skáholti. Þögn S. U. J.-for ingj aima. 36 dagar eru liðnir síðan Samband ungra kommúnista sendi samfylkingartilboð sitt til Sambands ungra jafnaðar manna. Ennþá er ekkert svar komið. Mikilvægur baráttudag- ur verklýðsæskunnar — al- þjóðlegi æskulýðsdagurinn er genginn uní garð. — 1 ýmsum löndum varð þessi dagur stór- fenglegur samfylkingardagur verklýðsæskunnar, þar sem ungir jafnaðarmenn og ungir kommúnistar stóðu lilið við hlið í baráttunni og vörðust sameiginlega árásum lögreglu og fasistastjórna. Hjá okkur varð æskulýðsdagurinn ekki slíkur baráttudagur — ekki dagur samfylkingar verklýðs- æskunnar á íslandi — eins og tímarnir heimta, — aðeins spor í áttina til þess. Á sama tíma og hagur alþýðuæskunnar á ís- landi fer síversnandi, kaupið lækkar og atvinnuleysið eykst, finna foringjar S. U. J. sér einu sinni ekki skylt að svara samfylkingartilboði S. U. K., sem eingöngu gekk út á kröf- ur til að bæta hag alþýðuæsk- unnar. Hvað veldur þögn þeirra? Ný ríkisstjórn — ríkisstjórn Alþýðuflokksins og Framsókn- arflokksins er tekin við völd- um. 1 síðustu kosningum lof- uðu þessir flokkar vinnandi æskulýð gulli og grænuin skógum, ef þeir kæmust í ráðherrastólinn. Þeir lofuðu at- vinnu liauda öllu ungu fólki og sérhverjum við sitt hæfi. — Enn þá bólar ekki á efnd- um. — S. U. J.-foringjarnir styðja þessa ríkisstjórn, sem svikið hefur loforð sín við verklýðsæskuna. Þeim er þess- vegna ekki hægt um vik. Þess- vegna þegja S. U. J.-foringjarn- ir. En S. U. J.-æskulýðurinn verður sjálfur að svara. Og hann mun svara þögn foringj- anna með því að mynda sam- fylkingu sína með ungum kommúnistum. V erkiýðsæska! Skrifaðu um hagsmuna- . baráttu þína í Rauða íánann.

x

Rauði fáninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauði fáninn
https://timarit.is/publication/333

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.