Rauði fáninn - 21.12.1934, Page 1

Rauði fáninn - 21.12.1934, Page 1
RAUÐ&rÁNINN ÍITGEFANDI: SAMBAND UNGRA KOMMÚNISTA - DEILD ÚR AUK Skilyrði þess að Rauði fáninn geti haldið áfram að koma út, er skil- vísi kaupendanna. 6. árgangur 21. desember 16. tölublað Atvinnuleysi æskulýðsins burgeisanna. »g fyrirætlan Atvinnuleysið meðal æsku- lýðsins hér í bænum er afar mikið. Það er óliætt að segja það, að þó að 200 manns hafi verið hætt í atvinnubótavinn- una um daginn, þá hafi lítið munað um það til þess að fækka atvinnuleysingjum meðal æsku- lýðsins hér í Reykjavík. Æsku- lýðurinn kemst líka mikið síð- ur í atvinnubótavinnuna; þeir einhleypu eiga alltaf að geta bjargað sér, eins og það er kall- að. — Yfirvöldin liafa aldrei sinnt kröfum æskulýðsins um atvinnu og það er sýnilegt á öllu, að þau ætla sér að hundsa þær alveg. Leiðin, sem Hitler hefir farið í Þýzkalandi til þess að leysa þetta mál, er sú, að banna öll- um æskulýð innan 25 ára ald- urs að vinna vanalega vinnu. Þannig er æskulýðurinn alger- lega rændur öllum möguleik- um til þess að lifa mannlegu lífi; hann er gersamlega ofur- seldur nazistunum, sem svo neyða hann í þegnskylduvinn- una, sem í raun og veru er her- þjónusta. Þessi glæpsamlega meðferð þýzka fasismans á verk- lýðsæskunni er hámarkið á þeim þvingunarráðstöfunum, er hinn vinnandi æskulýður er beittur. 1 blöðum afturhaldsins hér á landi hafa í lengri tíma verið uppi raddir um það, að koma hér á þegnskylduvinnu. Þjóð- ernissinnarnir lögðu mikið kapp á þetta mál, og þeim fannst þegnskylduvinnan vera einhver lífselixír fyrir íslenzkt þjóðfé- lag. Nú upp á síðkastið eru farnar að koma ákveðnar raddir um það frá Framsókn og Al- þýðublaðinu, að koma á »sjálf- boðavinnu«, sem auðvitað yrði lirein þegnskylduvinna. Þegn- skylduvinnan er ráð, sem auð- valdið grípur til hvar sem er í heiminum í baráttunni gegn verkalýðnum. Það er því ekki nokkur vafi á því, að ísl. yfir- stéttin hefir i’ullan hug á því, að koma henni á liér. Af skrif- um borgaralegu blaðanna get- um við einmitt séð, að allir borgaraflokkarnir eru sammála um þetta mál. Hvað þýðir það, ef þegn- skylduvinnu er komið á? Það þýðir, að æskulýðurinn er svift- ur frelsi sínu og sjálfsforræði. Honum er bannað, að ákveða sjálfur um framtíð sína eða lifnaðarhætti, hann er gersam- Ba-j ai*§tj ói'iiaritosm- ingai* á ísafirði. 5. jan. næstk. fara fram bæj- arstjórnarkosningar á ísafirði. Alþýðuflokkurinn hyggst í þess- um kosningum að geta losnað við fulltrúa kommúnista úr bæjarstjórninni, svo að bæjar- fulltrúar hans ged í næði legið á hagsmunamálum alþýðunnar. Áður en kommúnistinn kom í bæjarstjórnina, gátu fulltrúar Alþýðuflokksins alveg liundsað mál alþýðunnar, en eftir það neyddust þeir til þess að taka afstöðu í málunum og urðu þeir þá oft og tíðum að opin- bera verkalýðmun fjandskap sinn við mál lians. Það veltur á miklu, að krötunum takist ekki að hindra kosningu á full- trúa K.F.Í. Það hefir mikið að segja, bæði fyrir verkalýðinn á Isafirði og hina róttæku verk- lýðshreyfingu um land allt. Rauði fáninn vill sérstaklega minna kjósendur frá ísafiiði á, að kjósa sem allra fyrst á lega ofurseldur geðþótta bur- geisanna. Þegnskylduvinnan er spor í áttina til þrœlahaldsins gamla. í öðru lagi þýðir þegn- skylduvinnan það, að hinn at- vinnulausi æskulýður er skilinn frá fullorðnu atvinnuleysingj- unum, en með því er baráttu- afl þeirra rýrt, og þá mun auð- valdinu veitast auðveldar að hundsa kröfur atvinnuleysingj- anna. Islenzkur æskulýður verður nú að sameinast gegn þessu ó- frelsi, sem yfirstéttin vill lineppa liann í. En til þess að vinna bug á þessum fyrirætlunum er aukin barátta fyrir kröfum at- vinnuleysingjanna nauðsynleg. Aðalkröfurnar eru nú fyrir jólin: 100 kr. jólastyrkur til hvers atvinnulauss fjölskyldu- föðurs og 50 kr. til hvers at- vinnulauss einhleypings. skrifstofu lögmanns í Reykjavík. Munið, að eitt einasta at- kvæði getur haft úrslitaþýðingu. 8ig»p kommúnista á Sauðárkróki. 16. des. síðastl. fóru fram hreppsnefndarkosningar á Sauð- árkróki. Höfðu fyrri kosningar verið kærðar, en í þeim urðu úrslitin þau, að 1 komst að af lista Sjálfstæðismanna, 1 af lista Alþýðufl. og Framsóknar sam- an og 1 af lista kommúnista með hlutkesti við 2. mann á lista Sjálfstæðisfl. Úrslit kosn- inganna 16. des. urðu þau, að íhaldið fékk 202 atkv., Fram- sókn og Alþýðufl. 135, en kommúnistar 104, og þar með var efsti maðurinn á lista K.F.I., Pétur Laxdal, réttkjörinn í hreppsnefndina. Kommúnistar bættu við sig flestum atkvæð- um, eða 24, en það er rúm 25%. TJrslit kosninganna sýna fyrst og fremst, hvaða augum verka- lýðurinn lítur á stjórn Fram- sóknar og krata.

x

Rauði fáninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauði fáninn
https://timarit.is/publication/333

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.