Skinfaxi - 01.10.1909, Page 8
8
SKINFAXI
hann að vera svo stirinur, að fóturinn hafi
stjórn á skíðinu o: geti hreyft það eftir
vild og haft fult vaid yflr þvi.
Eg hefi einnig hugsað mér skíðabönd
þessi á lítið eitt annan veg, en iæt þó þetta
nægja að sinni.
Bönd þessi má auðvitað einnig festa á
venjuleg íslensk skíði með kengjum (skíði,
sem engin „reimaraugu" eru á). Verður þá
hælbandið að vera í tvennu lagi og saum-
ast fast í kengina; er þá styttri reimin
með hringjunni utanfótar.
Pess ber að gæta, að táböndin falli sem
best að fætinum! H. V.
„Spurull".
í 5. tbl. Fjórðungsblaðs Sunniendinga-
fjórðungs leggur „Spurull" nokkur tvær
spurningar fyrir sambandsstjórn; er annari
þeirra svarað á öðrum stað i „Skinfaxa“,
en hinni hér:
í sambandi U. M. F. í. eru 33 félög
með um 1250 félaga. — Alls munu liðug
60 ungmennafélög í landinu, og ganga ef-
laust mörg þeirra bráðlega í sanibandið;
hin koma svo smámsaman.
Guðmundur Hjaltason
hefir verið á fyrirlestraferð fyrir hönd U.
M. F. í. þenna mánuð um Árness- og
Rangárvailasýslu. Verður skýrt nánar frá
því ferðalagi í næsta blaði. Hélt hann marga
fyrirlestra, en varð þó að fara framhjá
nokkrum félögum sökum þess, að tilkynn-
ing um komil hans, er send var fullum
hálfum mánuði, áður en hann lagði á stað
héðan, var eigi komin í hendur fólögum
þessum. Fór hún þó austur um fjall með
póstvagni þegar á öðrum degi. Er því
eigi öðru um að kenna en slæmum sam-
göngum, og verða félög þessi því að lifa í
voninni um að fá fyrirlestra þá, er þau
pöntuðu, í vor komandi, ef kringumstæður
leyfa.
Til kaupendanna.
Eins og tekið var fram í „boðsbréfi" því,
er félögunum var sent, er ætlast til að
blaðið sé borgað fyrirfram í tvennu lagi,
og hafa félög vor fúslega gengist undir
það, og undirtektir verið talsvert betri, en
eg þorði að búast við í upphafi. Þó eru
allmörg íéiög eftir enn, sem eigi hafa látið
til sín heyra. En þau koma nú óðum.
„Skinfaxi" hefir þegar fengið hrós mikið
fyrir það að ætla áð venja æskulýð vorn
við fyrirframgreiðslu blaðgjaldsins.
Bið eg nú öll þau félög, er pantað hafa
blaðið, og þau er það gera framvegis, að
senda liálft blaðgjaldið — 50 aura — með
fyrstu ferðum. Ódýrast og handhægast að
senda blaðgjaldið sem póstávísun. —
í*au ungmennafélög, sem eigi hafa pantað
blaðið, en fá sent eitt eintak til sýnis, eru
vinsamlegast beðin að tilkynna afgreiðsl-
unni sem allra fyrst, hve mörg eintök þau
ætli að kaupa.
Blaðgjöld og pantanir sendist til
Afgreiðslu „Skinfaxa"
Ilafnarfirði.
Tilkynning.
Samkvæmt áskorun frá sumum fjórð-
ungsstjórnum og mörgum ungmennafélög-
um hefir sambandsstjórn gert bráðábyrgðar-
breytingu á Jnngt'wia-ákvœði 7. gr. sam-
bandslaganna á þenna veg: „— — — á
fjórðungsþing, sem haldið er á ári hverju
í maí- eða júnímánuði. — —
Fjórðuiigsjmig sltal þvi liáð tvo
næstkomandi ár (fram að næsta sam-
bandsþingi 1911) í maí- eða júnímán-
nði, og tilkynnist ]>að hérmeð fjórðungs-
stjórnum.
^amÉondasijóri.
Prentsmiðja Hafnarfjarðar.