Skinfaxi - 01.02.1912, Qupperneq 8
16
SKINFAXI
afkastameiri en fyr við íþróttaútbreiðslu
okkar Islendinga. Munu allir Ungmenna-
félagar óska honum heilla og gengis á
ferðinni og góðrar heimkomu.
íslenskir iþrdttamenn
hafa sótt um það til forstöðunefndar
olympisku leikanna að mega taka þátt í
þeim sem Islendingar. Leikarnir verða
haldnir að sumri í Stokkhólmi. Ekki líst
Svíunum á að við getum talist sérstök þjóð,
en hver þjóð kemur fram við þessa leika
í hóp sér. Þó er ekki fullnaðarúrskurður
um þelta fallinn enn.
Ekki líst íþróttamönnum okkar að koma
fram sem Danir og liætta heldur við hlut-
tökuna. [Vísir].
Skógræktarstj’rkur.
Arlega er veittur styrkur úr Skógræktar-
sjóði Friðriks VIII., rúm tvö hundruð kr.
1 hvert sinn. — Ungmennafélög, sem hafa
pegar færst i fang eitthvað það er að skóg-
rækt lýlur svo nokkru nemi, eða ætla sér
£að, gætu vænst þess að verða styrksins
aðnjótandi. Umsóknunum, sem senda á
Stjórnarráðinu með vori, fylgi skýrsla um
það, sem þegar er unnið að skógrækt, og
eins það sem vinna á. — Meðmæli skóg-
ræktarmanna, sýslu- og hreppsnefnda geta
komið sér vel.
Tílrlitsreikningurinn
eða eyðublöðin nndir Iiann, sem skrifað
var um í Skinfaxa nýlega, eru nú prentuð,
og fást 100 (nóg til 8—25 ára) saman
bundin, ásamt stóru umslagi undir þau
sem útfylt eru, fyrir 1,50. — Skinfaxi
skorar á Ungmennafélögin öll að taka upp
þessa nýbreytni í hókhaldinu, og verður
ekki lint fyrr en þau hafa gert það, því
hún er hvorttveggja: Ijós og óbrotin.
Um eyðublöðin snúi menn sér til sam-
bandsstjóra eða fjórðungsstjórna.
íþróttasambund
er verið að stofna hér í Rvík um þessar
mundir, sem nái yfir alt landið, er það
þarft fyrirtæki og gagnlegt. — Því hefir
verið hreyft, að einstök Ungmennafélög
gengju ekki i þetta samband, heldur Sam-
band Ungmennafélaganna fyrir þeirra hönd.
En alt er enn óráðið um það.
Guðrn. Sig'urjónsson
er nýkominn frá Vestmanneyjum; hafði
hann þar íþróttanámsskeið. Aðsókn hin
besta.
Vöntun. Þeir sem kynnu að hafa eitthvað af
5 fyrstu tölubl. Skinfaxa I. ár, eru beðnir að
senda það afgreiðslu hans og yrði þá andvirði
þeirra sent um hoel. Einkum er það 5. blaðiö,
sem hörgull er á.
~Sý snmbandsfélög. Altaf fjölga sambandst'é-
lögin, sem betur fer. Hafa nú bæst við í hópinn
félögin: „Armann“ í Vestur-Skaftafellssýslu og
„Skarphéðinn11 í Olfusi. Ennfremur er von á, að
Ungmennafél. „Hekla“ í Rangárvallasýslu gangi
innan skamms í sambandið.
Fjórðungsstjórnm.
Auglýsing. Hið árlega fjórðungsþing Ung-
mennafélaga í Sunnlendinga- og Vestfirðingafjórð-
ungi, verður haldið í Reykjavík 2.—4. apríl næst-
komandi. Fulltrúarnir eru beðnir uð gæta þess,
að hafa með sér kjörbréf, undirrituð afstjórnum
félaganna. Rvík 24/, ’12.
Fjórðungsstjórnin.
Tilkynning. Þessi Ungmennafélög í Sunnlend-
igatjórðungi, hafa greitt sambandsskatt fyrir i
1912, og sent skýrslu fyrir síðastliðið ár.
1. U. M. F. Reykjavíkur af 121 félögum
2. — „Tðunn“ — 121 —
3. — Afturelding — 48 —
4. — Hrunamanna — 72 —
5. — Stokkseyrar — 35 —
6. — Laugdæla — 11 —
7. — Hvöl* — 40 —
8. — „Islendingur“ — 05 —
9. — „Huukur“ — 22 —
10. — „Ármann“ — 27 —
11. — Seytjándi júni — 39 —
12. — „Brúin“ — 41 —
13. — Vestmannneyja L* — 118 —
14. — „Óðinn“ — 25 —
15. — „Dugsbrún11 — 30 —
Fjórðungsstjórnin.
* Vantar skýrslur.
Félagsprentsmiðjan.