Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1913, Qupperneq 7

Skinfaxi - 01.12.1913, Qupperneq 7
SKINFAXl 95 hengjan veriíur helst til lítil, því brekkan er svo lág. — Við höldum nú á leið til hæjarins aftur en bráðum leggjum við af stað til Sund- skálans við Skerjafjörð, og getum þá um leið gengið hjá íþróttavellinum á Mel- unum. Við göngum Suðurgötu, sem áð- ur var sagt um, að hún endaði „út hjá gröf og dauða“, en nú er það orðið rangt, allt breytt! Við förum fram hjá kirkju- garðinum, göngum stig sem liggur lítið eitt til hægri handar og finnum borgar- vegg mikinn úr bárujárni. Ekki mun okk- ur takast að smjúga milli grindarspalanna — svoj sem Þór í Utgörðum — en inn komum við, og stendur nú íþróttasýn- ingin yfir á vellinum. Þar er múgur manns saman komin til að horfa á „list og snilli“ íþróttamannanna; það verðum við að gera líka. En yfir vellinum blaktir mikill fjöldi af bláhvítum fánum, sem sýna að hér eru Islendingar að leik. — Þegar íþróttasýningunni er lokið, höld- um við ófram ferð okkur lil sundskálans. — Sundskálinn liggur æði spöl sunnar. Við verðum að ganga eftir „Melunum“ endilöngum — þar voru áður háðir Knatt- spyrnuleikar; nú eru þeir á Iþróttavellin- uni. — Skálinn stendur við litla vík á fjarðarbakkanum, en bryggja liggur út í sjó. Hann er í laginu eins og hálfur rétt- hyrndur ferhyrningur jafnhliða. Hann snýr baki í norðankaldann á vorin. Þá getur þú bæði fengið þér sjóbað og sólbað í skjólinu. Galli á staðnum, að útgrynni er mjög mikið um fjöru. Ungmennafélag Reykjavíkur á nú mestan hluta skálans; hinn hlutann hafa einstakir menn lagt. Veginn að skálanum lögðu ungmennafé- lagar. Þá var Sigurjón stórvirkur. Ótíð- in í sumar spilti mikið fyrir notkun hans i sumar. Við sundskálann eru öll kapp- sund háð í Reykjavík, nema „Nýárssundið“. Næst skulum við heimsækja „menta- búrið“. Stendur það á Arnarhóli og er þaðan góð útsýn yfir borgina og höfnina, A þeirri leið göngum við til fundar við forsetann, Jón Sigurðsson, sem stendur hár og tignarlegur á stjórnarráðsblettinum; getur hann kent okkur flest það, er prýða má góðan íslending. En illa er það far- ið, ef innan skamms verða tveir tígul- kongarnir þar á blettinum, — þegar Kristján IX. kemur hinum megin. Hygg eg, að mörgum manni renni þá i hug, við varða Jóns Sigurðssonar, orð skáldsins: Þessi steinninn okkar er eini konungsvavðinn hér! En Kristján IX. átti það ekki að okkur að vera settur þar sem annar skyggði á hann. — I þjóðmenjasafninu og lestrarsal lands- bókasafnsins er gott til fanga hverjum þeim, sem hungrar og þyrstir í þjóðleg fræði. Þar er sá númisbrunnur, sem ausa má af gnægð spekinnar án þess að kosta öðru til en tímanum. Loks getum við tekið lítinn krók á okk- ur og komið við á Skólavörðustíg 4, hjá afgreiðslumanni Skinfaxa og borgað hon- um blaðið; ef við gerum það, stuðlum við að langlífi einna besta blaðsins sem út er gefið á íslenska tungu. En nú hefi eg ekki tíma til að vera lengur með þér. I kvöld hlustum við á söng „17. júní“ — mannanna! S1. V. Boglist. 1 næsta blaði kemur rækileg grein um boglist eftir Guðm. Björnsson landlækni, Sýnir hann þar fram á, hve holl íþróttm er, og hvernig má endurreisa hana hér. fírlingur Pálssou fer til Lundúna i janúar og dvelst þar við sundæfingar fram eftir vetrinum. Styrkurinn til hans var að forminu til veittur I. S. I., en skylt er því að veita hann Erlingi.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.