Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1921, Side 3

Skinfaxi - 01.11.1921, Side 3
SKINFAXI 35 báðir hafa lagt til, ef þörf gerist. Verkleg aðstoð og leiðbeining Vestur-íslendinga og verkfræðinga þeirra. Þeir yrðu milli- göngumenn vorir um nauðsynlegar lán- tökur í Vesturheimi, legðu fram fé í sam- eiginleg fyrirtæki o. s. frv. Þeir yrðu læri- feður vorir i verklegri þekkingu og hag- nýtni. Þeir Vestur-íslendingar sem þrá »gamla landið« myndu hverfa heim aftur og vinna að sameiginlegum málum. Á þennan h'átt yrðu allar framkvæmdir íslenskar, unnar af Islendingum sjálfum í náifini samvinnu! Á'þenna hátt byggjum vér framtíð Islands án þess að lenda í greipum erlends auðvalds, og án þess að glata þjóðareinkennum vorum. Og Vestur- íslendingar halda áfram að vera Kanada- menn án þess að glata þjóðerni sínu! Samvinna þessi ætti að verða báðum aðilum til liamingju og blessunar! Fréttir. iþróttanámsskeið Borgfirðinga. Síðast- liðið vor hélt Ungmennasamband Borgar- fjarðar íþróttanámsskeið að Hvítárbakka dagana 4.—14. maí Námsskeiðið sóttu stöðugt 12 piltar frá þessuin félögum: U. M. F. Stafholtstunga 4, U. M. F. Reykdæla 2, U. M. F. Dagrenning I og U. M. F. Björn Hídælakappi 1 og U. M. F. íslendingur 4. Kennari var Sigurður Gíslason bóndi að Hamraendum, gamall íþróttamaður að góðu kunnur. Kent var: Leikfimi, glímur, hlaup, köst, stökk og knattspyrna. Borg- firðingar eru nú farnir að hafa íþrótta- námsskeiö og leikmót á hverju ári og væri óskandi að öll héraðssambönd gerðu slíkt hið sama. Sundkensla á Vestfjörðum. í sumar var kent sund á fjórum stöðum á Vestfjörð- um, og munu að meðaltali hafa verið 25 nemendur á hverjum stað. Það mun aðal- lega af þremur ástæöum að sundið hefir fengið svo góðan byr á Vestfjörðum, sem raun hefir á orðið. 1. Þeir sem búa í sveit verða undantekningarlítið að sækja allar sínar nauðsynjar sjóleiðis. 2. Fiskiveiðar má heita eini atvinnuvegur þeirra manna sem í þorpum búa og kaupstöðum. 3. Druknanir hafa verið mjög tíðar síðustu árin. Alt þetta hefir haft þau áhrif að flestir álíta það siðferðislega skyldu hvers einasta manns, að vera syndur. íþróttaskólinn. U. M. F. íslendingur í Borgarfirði gaf íþróttaskólasjóðnum kr. 155.00 síðastliðinn vetur. Er það ein hin rausnarlegasta gjöf sem sjóðnum hefir borist. U. M. F. Vestri gaf íþróttaskólasjóðn- um nýlega kr. 80.00. Vel gert af fámennu félagi. Enn um sund að vestan. U. M. F. Vestri gerði sundlaug síðastl. vor 50 mtr. langa og var þar kent sund frá 3. —16. júlí. Fastir nemendur voru 12 drengir en auk þess 4 fullorðnir við og við. Kennari var Valdemar Ossursson í Kollsvík. Sýslu- sjóður Barðastrandasýslu veitti kr. 120.00 til kenslunnar. Tíðin var óhagstæð, miklar rigningar. Einnig var sundnámsskeið á Geirseyri í Patreksfirði frá 15.—26. ágúst í sumar. Fastir nemendur voru 12 drengir, auk þess 2 iullorðnir að miklu leyti. Dreng- irnir voru frá 8—14 ára, allir byrjendur. Kent var í ístjörn, kennari var Valdemar Össursson. »Látið aldrei fánann falla«! Ungmennafélagi! Snúðu eigi baki við félaginu þínu, þótt þú eldist, og störfin hlaðist á þig! Félagið þarf þín við, reynslu þinnar og ráða! Og þú sjálfur þarft félags þíns við til

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.