Skinfaxi - 01.10.1930, Side 8
140
SKINFAXI
fyrir þá nemendur bréfaskólans, er það geta sótt, og
kenna þá sund o. fl. íþróttir, auk fimleika. Gæti slikt
námsskeið orðið að stórmiklu gagni.
Vonandi er, að þeir ungmennafélagar, sem eiga
ekki kost á, að njóta venjulegrar fimleikakennslu,
noti sér bréflega kennslu Jóns. Ef t. d. fimm stúlkur
og fimm piltar úr hverju félagi nytu kennslu bans
nú í vetur, mætti af því leiða geysilega framför í
líkamsmenningu íslendinga.
Noregsför ungmennafélaga.
Eftir Guðbjörn Guðmundsson.
I.
Þegar norskir ungmennafélag-
ar gistu íslenzk ungmennafélög
sumarið 1924, að boði U. M. S.
K., var þegar rætt um gagnheim-
boð isl. ungmennafélaga til Nor-
egs, enda stóð ekki á því, það
kom næsta vor. Þá reyndist ekki
mögulegt að taka því og lieldur
ekki 1926. En er þriðja boð
þeirra kom í vor, þótti ekki
vansalaust að afþakka það, og
fór því sambandsstjórn að leitast
fyrir um fulltrúa. Skyldi einn vera af Veslurlandi, einn
af Norðurlandi og tveir af Suðurlandi. En vegna liátíð-
arinnar í sumar og skamms fyrirvara, voru flestir óvið-
búnir slíkri langferð. Geklc liðsöfnun seint, því ýmsir
gengu til baka er í fyrstu ætluðu að fara. Loks fengust
þeir fjórir, sem fara skyldu, en því miður var enginn
að norðan né vestan.