Skinfaxi - 01.10.1930, Blaðsíða 23
SKINFAXI
155
En vann hann þá að verki nema hálfur?
Og var það hann, er sýndi þol og dug?
En hver sem reisir minnismerkið sjálfur,
hann mótar nafnið gleggst í hvers manns hug.
lngvar St. Pálsson.
Félagsmál.
Sambandsþing U. M. F. L,
hið 9. í röðinni, var háð á Þingvöllum 29. júní s.l., að lok-
inni Alþingishátíð. Var það stutt og afkastalítið, ekki sakir
verkefnaskorts né áhugaleysis, heldur af hinu, að brýnar ann-
ir og skipaferðir neyddu þingmenn til að hafa hraðan á.
Þingið sátu 21 fulltrúar frá 9 héraðssamböndum, sambands-
sljórn, starfsmaður sambandsins og nokkrir gestir.
Fyrir jringinu lá frumvarp til samhandslaga, er gert liafði
nefnd, sem til þess var kjörin á sambaridsþingi 1929. All-
róttækar breytingartillögur við frumvarpið komu frá U. M. S.
Kjalarnesþings. Frestað var, sakir tímaskorts, að fjalla um
frumvarp þetta. Verður félögum sent það til athugunar.
Rætt var allmikið um hið nýstofnaða skógræktarfélag ís-
lands, enda mætti fulltrúi frá því á þinginu. Samþykkt var:
„Samband Ungmennafélaga íslands heitir Skógræktarfélagi
íslands stuðningi sínum og óskar góðrar samvinnu við það
að framgangi sameiginlegra mála.“ -— Skorað var á einstök
félög og félagsmenn, að ganga í Skógræktarfélagið og styðja
það.
Sambandsstjórn var falið, að gefa út minningarrit um 25
ára starfsemi U. M. I7.; að örfa félögin til heimilisiðnaðar-
framkvæmda; vinna að útbreiðslu vikivaka; ýta undir söfnun
örnefna o. fl. — Þá var eftirfarandi samþykkt:
„Sambandsþing U. M. F. í. 1930 heldur fast við ályktanir
síðustu þinga um hindindismál, og skorar á alla ungmenna-
félaga, að lialda heit sín í ])ví sem öðru, vel og drengilega.“
„Sambandsþing lætur þá ósk sína í ljós, að islenzk þjóð og
stjórnarvöld láti dr. Helga Péturss i té þau efni, sem honum
eru nauðsynleg, svo að hann geti notið sín að vísindaiðkun-
um sínum.“