Skinfaxi - 01.11.1941, Blaðsíða 33
SKINFAXl
81
Ef þú átt að standa undir
einhverju, þá ert þú veik-
ari undirstaða svona boginn.
Þetta er einn algengasti galli
byrjenda í kúluvarpi. Berðu
þessa mynd saman viö tvær
síðustu niyndir myndalengj-
unnar. (Bls. 78—79).
1-2-3 vinstri fótur (skyggð-
ur). a-b hægri fótur (ljós).
— — — — færsla vinstri
fótar. —-------------færsla
hægri fótar.
plankann, með því að færast fram undir plankann (í fól-
stöðu C á myndinni). Kunningi okkar sýnir ekki þessa skipt-
ingu eða stöðu, vegna þess, að margur mundi taka hana sem
kast-atriði. Hún er það ekki. Hún fer fram eftir að kúlunni
er spyrnt úr hendinni, aðeins til varnaðar því, að þú dettir
fram úr hringnum.
Ef þú hyrjar að rétta úr þér áður en vinstri fóturinn nem-
ur við jörðu, minnkar fjaðurmagn fótvöðvanna, þar eð þeir
verða að eyða átaki í að færa likamsþungann yfir á vinstri
fótinn. Stígir þú vinstri fæti of langt frá þeim hægri, dreg-
ur það úr lyftingu likamans og seilingunni á eftir kastinu.
Undirbúningsæfingar.
Hversu sterkur eða liðugur, sem þú kannt að vera, þá er
það ekki nóg til þess að geta kastað vel eða langt. Kastgetan
byggist á æfingunni.
Æfðu fyrst án tilhlaups.
Statlu í hringnum, með hægri fót við b á hringmyndinni.
Stattu eins og kunningi stendur í byrjunarstöðunni. Tylltu
þér á tá á hægra fæti og teygðu vinstri fótlegginn fram
og hallaðu líkamanum aftur yfir hægri fót. Beygðu ]jig nið-
ur yfir vinstri fót og láttu vinstri fót nema snöggt við jörðu
6