Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 21.02.1972, Page 1

Mánudagsblaðið - 21.02.1972, Page 1
Hestar og afbrýðisemi Það þykir vart í frásögur færandi þótt afbrýðisemi grípi menn og konur þegar illa stendur á. öllu frásagnarverð- ara er þó þegar afbrýði grípur mann út í hest — alveg óskyld an honum — en þó fór svo á Naustinu fyrir skömmu. Skemmtikraftur þar söng hrossavísur, skopaðist að hestamönnum og minntist aldrei á þarfasta þjóninn nema kalla hann „truntu“. Drukkinn hestamaður — í eðlilegu á- Framhald á 7. síðu. Oft fer svo með eldri stjórn málamenn er þingseta þeirra er að hætta, að þeim eru fyrir- gefnar yfirsjónir, afstaða til málefna og ekki sízt breyting hugarfars er líður að lífskvöld inu. Þetta kemur Ijóst fram nú í sambandi við vesturför Hannibals Valdimarssonar ráðherra, er hann sótti heim höfuðstöðvar NATO þar í landi. DRITÓTTUR FERILL Ferill Hannibals er bæði langur og litríkur; hann hefur víða komið við og skilið eftir dritótta slóð. Meðaumkvun sveitunga hans á Vestfjörðum hratt honum inn á þing — og þangað dró hann með sigri sínum all-kyndugt lið, öllum að óvörum. Vestfirðingar, sem höfðu ætlað að gleðja gamla manninn og veita honum loka- blessun, fengu af þessu skapn aðarvirðing. Fyrsta verk Hanníbals var að svikja það loforð, sem flest ir töldu að hann myndi þó halda, þ. e. að fara aldrei i stjórn með kommúnistum!!! SKUTTOGARAHNEYKSLIÐ - HÆTTULEGAR ÖFGAR Það skyldi þó aldrei verða upp á teningnum að hin öfga- fullu skuttogarakaup okkar verði ekki aðeins „fiasko“ heldur nær óyfirstíganleg útgjöld og algert, jafnvel vonlaust happ- drætti, að þeir beri sig, jafnvel í sæmilegri aflatíð. Vitanlega eigum við að fá, og þurfum að fá skuttogara, en að kaupa þessi dýru skip í kippum, er hreint brjálæði, jafnvel þótt ein- staklingar og þorp gætu nurlað út 10% kaupverðsins. MANNEKLA — SKIPIN BUNDIN Mönnum er nú að verða Ijóst, að ef svo fer að þessum ,,massa“-kaupum verður hald- ið til streytu, þá eru skuldbind ingar ríkissjóðs slíkar að af- komu þjóðarinnar er stór hætta búin. Komi þessi skip á „réttum“ tíma verður að leggja miklu af þeim skipum sem fyrir eru, ef nokkur mögu- leiki á að vera að manna þau. Bregðist vertíð — aðeins einn hlekkur — í þessu ofsa veiði- tímabili sem gengið hefur og gengur enn, þá er voðinn vís. FÆRRI SKIP OG JAFNARA siglt verður í algjört strand. Þá hlýtur núverandi stjórn enn verri útreið en stjórn Her- manns Jónassonar á árunum og má búast við, að viss ele- ment hennar þurrkist út með öllu. Undansláttar- og taumlaus loforðastefna gagnvart ein- stökum hagsmunahópum er hættuleg. Heildin vill ekki missa þá lifnaðarháttu sem hún hefur tamið sér. Skatta- byrðar og vesöld sem gæti um svifalaust breytt lifnaðarhátt- um almennings úr allsnægtum í ok skulda og útgjalda — yrði hverri stjórn banabiti, og hér hafa sumir ráðherranna látið kommúnista teyma sig út í ó- færu, sem enn er ekki séð fyrir endann á. GUÐLAUGUR EINARSSON hrl.: Áiyktun Hæstaréttar — Anga langar morðbréfamálsins — VESTURFERÐIN Nú er Hannibal ráðherra og enn mun hann vera u. þ. b. að svíkja málstað sem hann hefur barizt fyrir, en í þetta skipti verður honum fyrirgefið. Fyrir skömmu flaug hann vestur á mund NATO-manna Framhald á 7. síðu. Reyndum mönnum brá að vísu^ ekki við svikin. Þau hafa löng- um verið pólitísk fylgikona Hannibals — flokks- og mál- efnasvik eru þeir réttir sem hann hefur þrifizt á. Leikfang Mánudagsblaðsins „Hefndin er heimskunnar fró ...“ Sex til átta skuttogarar er alveg nægilegt og menn vita hvernig útgerðir í þorpum hafa gengið er þau fengu tog- ara, sem gerðir voru út af bæj arstjórnum. öll slík útgerð fór á hausinn, ef eitt eða tvö bæj- arfélög eru undan þegin. VINSÆLDA-„VEIÐAR“ Ríkisstjórnin hyggur að hún haldi vinsældum með að ausa fé í útgerðarmál og landbúnað inn, auk allra þeirra styrkja og bruðls sem hún hefur leiðst út í á öðrum sviðum. Ef ekki er numið staðar nú og breytt um stefnu er Ijóst, að Áður en ég held lengra í upprifjun „morðbréfamálsins" fræga, sýnist mér rétt að víkja nokkrum orðum að einskonar „aðför“ eða „atlögu“ sem mér virðist vissulega nátengd hin- um eindæma málarekstri hins svokallaða morðbréfamáls, og óvéfengjanlega beint að mér persónulega. Furðu gegnir, að sjálfur hæstiréttur lýðfrjálsrar þjóðar, eins og íslendingar státa af að vera, skuli voga.sér á jafn opinskáan hátt að gjöra nán- ast að reynd hið gullvæga spakmæli; „HEFNDIN ER HEIMSK- UNNAR FRÓ — HÚN GRÍP- UR ÁVALLT í TÓMT.“ — — O — Ég leyfi mér að birta hér á eftir myndamót af „ályktun“ gerðri í hæstarétti Islands 12. júhí .1961, undirritaðri af þá- verandi hæstaréttarritara — væntanlega fyrir hönd dóms- ins? . , SJÁ MYND AF ÁLYKTUN HÆSTARÉTTAR Á 6. SÍÐU Eins og lesendur sjá eftir lestur þessarar ályktunar hæstaréttar, þá er „felld niður heimild mín (Guðlaugs Einars sonar) til málflutnings fyrir Hæstarétti VEGNA FRAM- KOMU minnar“ . . . En það er ekki nóg með það! Haestiréttur hefur aldrei .fengizt til að. gera grein fyrir því, HVER ÞESSI FRAM- KOMA GUÐLAUGS EINARS- SONAR VAR? — Hvað veldur slíku? Ég vil geta þess, að 12. maí 1961 var í Hæstarétti kveðinn upp dómur í morðbréfamálinu svonefnda, en þar að auki hafði mér verið meinað að gæta hagsmuna ákærða, Magnúsar Guðmundssonar, frá 14. apríl sama árs, án nokkurrar víðh|ítandi skýring- ar! — Það var gert.með sams kon Erafnhald á 6. síðu.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.