Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 24.04.1972, Page 2

Mánudagsblaðið - 24.04.1972, Page 2
2 Mánudagsblaðið Mánudagur 24. apríl 1972 ÚR SÖGU LANDS OG LÝÐS GESTARAUN Prestur einn bjó eitt sinn í mörg ár að Hvammi í Norðurárdal, er Jón hét. Hann var hraustmenni mikið. Hafði hann blöndukönnu eina mikla með tveimur handar- höldum, og var það vani hans, þeg- ar vermenn komu þangað á vetrum og báðu að gefa sér að drekka, að bera þeim könnuna fulla drykkjar og halda annarri hendi í annað handarhald, en rétta aðkomumönn- um hitt. En enginn gat tekið öðru vísi við en svo, að hann skaut ann- arri hendi undir botninn. Fékk kannan nafn af þessu og var kölluð Gestaraun. Eitt sinn kom þar ungur maður norðan úr Skagafirði að Hvammi með öðrum vermönnum. Tók hann við könnunni með ann- arri hendi, Iyfti Iokinu frá og stóð og drakk svo með annarri hendi og rétti presti síðan aftur. Engir hinna léku þetta eftir. Prestur spurði hinn unga mann, hve gamall hann væri, en hann kvaðst vera átján ára. Presmr horfði lengi eftir hon- um og sagði síðan með döpru bragði: „Þarna fara hraust bein í sjóinn." Gekk það eftir, því pilt- urinn drukknaði syðra á vertíðinni. (E. B.). SIGURÐUR SKÓLAMEISTARI Það er haft eitt meðal annars til merkis um krafta Sigurðar Vig- fússonar, skólameistara á Hólum, að eitt sinn brann þar smiðja, og stóð í henni eirketill mikill, er kallaður var Grettisketill, og átti hann að hafa verið tekin úr Drang- ey eftir fall Grettis. Þekjan féll niður öðru megin, en Sigurður fór upp á vegginn og greip til höld- unnar annarri hendi og kippti katl- inum undan þekjunni upp á vegg- inn. En þegar athugað var, voru í kadinum ein og hálf tunna stein- kola. (E. B.). Eitt sinn fór Sigurður Vigfússon kynnisferð frá Hólum norður Hjaltadalsheiði til Schevings klaust- urhaldara á Möðruvöllum. Þegar hann fór þaðan, fylgdi Scheving honum afmr undir heiðina. Fóru þeir af baki við stein einn mikinn. Þá segir Sigurður: „Saa god (það var máltæki hans) loftar þú ekki þessum steini." Scheving segir: „Það er ekki víst þú getir það heldur." „Þú reynir fyrst," segir Sigurður. Scheving gjörði svo, og tókst honum að lyfta steininum. Varð þá Sigurði bilt við, því það ætlaði hann Scheving mundi ekki geta, þó sterkur væri. Hleypur hann þá að og þrífur til steinsins af öHu afli, en steinninn varð léttari í höndum hans en hann ædaði, svo hann rak hann upp í enni sér og sprengdi þar fyrir. (Séra Jón pró- fastur Konráðsson.). GRETTISHLAUP Grettishæð heitir norðarlega á Stórasandi, og er mælt, að Þorbjörn öngull hafi dysjað höfuð Grettis í hæðinni. Skammt þar fyrir norðan er klettagljúfur, og er það að mesm vatnslaust, þegar snjóar em Ieystir. Minnir mig það sé kaUað Grettis- hlaup. Hafði skessa ein eitt sinn elt Grettir að gilinu og ætlað að taka af honum fjóra hrúta, er hann hafði náð. Hann krækti þá hrútana saman á hornunum, hengdi svo yfir axlir sér í bak og fyrir og stökk síðan yfir. Gat hann naumast stöðv- að sig á bakkanum hinu megin. „Vel stokkið," mælti tröUkonan, „ef maðurinn hefði verið óhrædd- ur." „Lítið er það, sem gangandi manninn dregur ekki," sagði Grett- ir, „en stökktu betur, þú ert laus og óhrædd." Hún rann þá eftir, en gat ekki stöðvað sig á barminum. Náði hún í víðirunna og hékk svo fram af. Þó ætlaði hún að vega sig upp, en Grettir gekk þá að og hjó á hríslurnar, svo tröHkonan steypt- ist í gljúfrið, og varð það hennar bani. (Greinilegast E. B., hann einn tilgreindi staðinn). FALLEGA ÞAÐ FER SVO NETT Einu sinni stóð kona úd á hlaði og sá, hvar maður hennar var að smala í fjallshlíð, seint á vetri. Kom hún auga á, að hommi skrik- aði fótur á hjarnskafli og hrapaði fram af klettum, sem vom fyrir neðan. Urðu konunni þá þau Ijóð af munni, er síðan eru í minnum höfð: Fallega það fer svo nett, flughálkan er undir, hann er að hrapa klett af klett og kominn ofan á grundir. LÍTIÐ SÝNISHORN AFKARLA- OG KERLINGASÖGUM GUÐ STRAFFAR ÞAGMÆLSKUNA Einu sinni var ógnarlega kjöft- ugur karl, sem alltaf var eitthvað að mærða. Veðjuðu piltar nokkrir eitt sinn við hann um það, að hann gæti ekki þagað heilan dag, og hétu honum spesíu, ef hann gæd það. Karli gekk öllum vonum betur að þegja, svo hinir fóru að verða hræddir um hann mundi vinna. Leituðu þeir ýmsra bragða að koma honum til að tala. Seinast fóru þeir að segja hvor öðrum sögur um það, að þeir, sem lengi þegðu, misstu stundum málið. Þá rauf karlinn þögnina og mælti: „Ekki þori ég að þegja lengur, ég veit ekki nema guð minn góður straffi mig þá og taki af mér málið." Tapaði hann þá veðinu, þó hann héldi málinu. OFT ER LJÓTUR DRAUMUR FYRIR LITLU EFNI Einu sinni vaknaði kerling i rúmi sínu fyrir ofan karl sinn með gráti miklum. Karl leitaðist við að hugga hana og spurði hana, hvað að henni gengi. Kerling sagði sig hefði dreymt ógnarlega ljótan draum. „Hvað dreymdi þig, skepn- an'mTn? '”segir karl. „Minnstu ekki á það," sagði kerling og fór að snökta. „Mig dreymdi, að guð æd- aði að taka mig til sín." Þá mælti karl: „Settu það ekki fyrir þig. Oft er Ijótur draumur fyrir litlu efni." FRÁ JERÚSALEM ÞEIR SENDA Einu sinni var kerling að sópa sorp úr bæ og fyrir dyrum á jóla- föstu, og vildi svo tH, áður en hún Framhald á 6. síðu. EINNAR MlNÚTU GETRAUN: ríve slyngur rannsáknarí ertu Hvernig lézt frú Beiamy? Þegar prófessor Fordney ók um hina miklu um- ferðaræð, þá skotbremsaði hann skyndilega svo að bíllinn hans snarstoppaði. Hann hafði ekið framhjá hrúgaldi, sem lá á miðri götunni. Hann hljóp þegar á staðinn, og sá þá að það var kona, á að gizka fimmtug, klædd venjulegum heimafötum og í peysu, en á enninu var Ijótur áverki. Að útilokað var að hjálpa henni var skjótt augljóst. Líkið var kalt og eflaust var skýring á dauðanum sú, að ekið hafði verið yfir hana, því tvenn dekkjaför voru á brjóstinu á henni. Fordney skipaði einum lögregluþjónanna, sem var að bægja hinum fjölmenna hópi vegfarenda sem safn- ast höfðu saman, frá slysstaðnum, að hringja þegar á lögreglustöðina. Klukkustund seinna var prófessor Fordney enn að reyna að finna einhvern, sem varpað gæti Ijósi á atburðinn. Eftir langdregna og erfiða rannsókn tókst honum að upplýsa að konan væri frú Belamy, sem bjó í út- hverfum borgarinnar. Þá tókst lögreglunni loksins að hafa upp á Nick Chester, sem var leigjandi hjá hinni látnu konu, og sem játaði þegar í stað, að hann hefði ekið henni í borgina í sínum eigin bíl. Hann sagði að hún hefði farið úr bílnum um það bil tvær blokkir rri 13***'' ' frá þeim stað, sem Fordney hafði fundið hana. Þegar hann heyrði að frú Belamy hefði ekki verið með gler- augun sín þegar hún fannst, þá gat hann til að hún hefði gengið fyrir bifreið og ekillinn ekið burtu. Prófessorinn stundi þungan. Hann myndi ekki sleppa úr hitasvækju borgarinnar um þessa helgi. Vinnan kæmi fyrst, svo var nú það. „Nú jæja, hvernig stóð á því, að frú Belamy var klædd í karlmannspeysu? Og hvers vegna var líkinu af henni kastað út á þessum stað? Hún hafði sannar- lega ekki orðið fyrir bíl eða myrt héma“, tautaði prófessorinn við sjálfan sig gremjulegur á svipinn. Hvernig vissi prófessorinn þetta? Svar á 6. síðu. axmTnster ANNAÐ EKKI AXMINSTER Grensásvegi 8 — Sími 30676

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.