Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 24.04.1972, Síða 7

Mánudagsblaðið - 24.04.1972, Síða 7
Mánudagur 24. apríl 1972 Mánudagsblaðið 7 Hvert nú stúlkur? Guðlaugur Einarsson, hrl.: orðbréfamálið Ár 1960, 8. apríl kl. 13.25 mætir í rétinum vitnið Sigur- jón Ingason, sem áður hefur mætt í máli þessu. Áminntur um sannsögli. Vitnið segir aðspurt, að yf- yfirmenn lögreglunnar hafi leitað til vitnisins, þegar blaðagreinarnar tóku að birt- ast og beðið vitnið, eins og ýmsa aðra lögreglumenn, um aðstoð við að upplýsa hver eða hverjir stæðu að baki greinanna. Vitnið varð við þessum tilmælum, svo sem skýrsla vitnisins frá 29. marz ber nánar með sér, sbr. dskj. nr. 6. Það mun hafa verið í desember 1959, sem Magn- ús Guðmundsson sagði vitn- inu, að hann væri höfundur betur en að það hafi þá skömmu síðar skýrt Ólafi Jónssyni, fulltrúa lögreglu- stjóra, frá þessu atriði. Ovæntur árangur Framhald af 8. síðu. það er aðeins í draumum aðal- kvenpersónunnar sem þeir birt- ast, stæltir og fullir karlmanns- þróttL Upptaka á því atriði myndarinnar sem sést hér að ofan — einni draumsýninni — reyndist fremur erfið, þar sem hún fór fram í febrúar og frost- ið var ekki sérlega vel til þess fallið að kveikja svo mikinn ást arbríma hjá statistunum að greinilegt væri að þeir gætu gagnað hinni ófullnægðu aðal- persónu. En þetta tókst sæmi- lega eftir atvikum og hver stat- istanna hlaut 8.000 kall fyrir viðleitnina. ★ En fyrst við minntumst á „Playboy" áðan hefur það borið til tíðinda að stúlka sú sem ætl- unin var að væri svokallaður „leíkfélagi" ritsins í þessum mánuði, sýna sig þar í allri sinni ásköpuðu dýrð, sá sig um hönd, eftir að nektarmyndirnar höfðu verið teknar af henni. Stúlkan, Debbie Hanlon að nafni, 19 ára, hafði verið á forsíðu ritsins í nóvember, þá í baðfötum, en hafði lofað að „sýna allt", eins og ,Time" segir, í aprílheftinu. En hún afturkallaði loforðið, eftir að hún varð félagi í Vott- um Jehóva. Nektarmyndir eiga víst ekki upp á pallborðið hjá þeim. Menntaskóla- Framhald af 1. síðu. ekki það sem „höfðingjanna“ sé siður. Það er langt því frá, að blaðið ætli sér að „morali- sera“ yfir nýstúdentum. Hins- vegar finnst okkur full þörf á því, að þessi hræsni og yfir- drepsskapur skóla- og lög- regluyfirvalda sé lagður niður. Ef að leiðtogar þjóðarinnar og væntanlegir fyrirsvarsmenn hennar geta leyft sér að hunza lög og reglur þá er ekki að vita hvað aðrir leiðast út í. Þegar vitnið varð þess á- skynja, að Magnús Guð- mundsson hafði skrifað hót- unarbréfið til lögreglustjóra, lét vitnið það kyrrt liggja, enda átti vitnið ekki von á því, að Magnús mundi senda hótunarbréfið. Um einni og hálfri viku eftir að vitnið sá Magnús vélrita hótunarbréfið, sagði Magnús vitninu frá því, að hann hefði sent lögreglu- stjóra hótunarbréfið, svo og annað hótunarbréf. Magnús sagði vitninu frá efni þess bréfs. Eftir því sem vitnið man bezt var efni þess eitthvað á þá leið, að ekki liði löng stund, unz lögreglustjóri yrði liðið lík. Ekki minntist Magnús á, að hann hefði sett kveðju und- ir þetta bréf. Daginn eftir eða svo skýrði vitnið Erlingi Pálssyni frá þessari vitneskju sinni um hótunarbréfin, enda fannst þá vitninu slíkt skylda sín, þar sem málið var orðið svo alv- arlegs eðlis. Erlingur tók skýrslu af vitninu. Vitnið lét þess ekki getið í þessari skýrslu sinni, að það hefði horft á Magnús vélrita hótun- arbréfið, því að vitnið áleit að með því gæti það kallað yfir sig aðfinnslur yfirmanna sinna vegna þess að það hafði hleypt Magnúsi inn í stjórnar- ráðið. Vitnið hafði fengið þau fyrirmæli í sambandi við gæzl- una, að hleypa ekki óviðkom- andi mönnum inn í bygging- una. Vitnið var ekki öruggt um nema að Magnús yrði talinn óviðkomandi maður i þessu það gerðum vitnisins um það, sambandi. Hins vegar réði að vitnið hleypti Magnúsi inn, að Magnús hafði áður verið við gæzlu í stjórnarráðinu og Magnús var umrædd skipti á vakt og í einkennisbúningi. Vitnið leiddi talsvrt hugann að þessum hótanabréfasend- ingum Magnúsar og taldi rétt að segja yfirmönnum sínum allt af létta. Þá var tekin af vitninu skýrslan, sem dagsett er 29. marz s.l. sbr. dskj. nr. 6. Vitnið segir aðspurt að yf- irmenn þess hafi hvorki boð- ið sér fé né friðindi vegna að- stoðarinnar, sem þeir báðu vitnið um í sambandi við að upplýsa hver væri höfundur blaðagreinanna. Vitnið rekur ekki minni til þess, að það hafi verið búið að heyra um kæru Magnúsar Guðmundssonar á Magnús Sigurðsson, þegar vitnið á- kvað að skýra yfirmönnum sínum frá því, að það hefði séð Magnús vélrita hótunar- bréfið. Um þær mundir, sem Magn- ús skýrði vitninu frá því, að hann væri höfundur blaða- greinanna, spurði Magnús vitnið eitt sinn að því, hvort vitnið ætti ekki ritvél. Vitnið ! sagði honum, að hann ætti I enga ritvél, en spurði, hvort Magnús ætti ekki ritvél. Magnús kvað svo vera, en sagðist ekki geta notað hana. Ekki innti vitnið Magnús nán- ar eftir því hvers vegna hann gæti ekki notað sina eigin rit- vél og hvað hann ætlaði að vélrita. Magnús lét orð falla um að hann gæti fengið lán- aða ritvél hjá manni vestur í bæ. Ekki nafngreindi Magnús þann mann. Uppl. játað rétt. Sigurjón Ingason. Dómari I eggur nú fram skýrslu, sem tekin var af vitn- inu 27. febrúar 1960 og um ræðir í framburði vitnisins hér að framan. Skýrsla lesin vitninu. Vitn- ið staðfestir skýrsluna. Síðasta málsgrein skýrsl- unnar er brengluð, því að vitn- ið vissi þaþð fyrst frá Magn- úsi, að hann hefði sent lög- reglustjóra hótunarbréfin sbr. framburð vitnisins hér fyrir dóminum í dag. Uppl. játað rétt. Sigurjón Ingason. (sign.) Vék frá kl. 14.45. Ár 1960, 8. apríl kl. 14.47 mætir í dóminum sem vitni Erlingur Pálsson, yfirlögreglu- þjónn, til heimilis að Bjargi við Sundlaugaveg, 64 ára að aldri. Áminntur um sannsögli. Vitnið kannast við að hafa tekið skýrslurnar af Sigurjóni Ingasyni frá 27. febrúar og 29. marz s.l., sbr. dskj. nr. 6 og 19. Vitnið skýrir aðspurt frá því, að það hafi spurt Sigurjón Ingason að því, þegar það tók af honum seinni skýrsluna hvers vegna hann hafi ekki sagt allt af létta við fyrri skýrslutöku. Sigurjón svaraði því til, að hann hefði óttast hefndir af hálfu Magnúsar, ef Sigurjón skýrði yfirmönnum lögreglunnar frá öllu því, sem hann vissi um hótunarbréfin. Sérstaklega ráði miklu um þennan ótta hans tillitið til fjölskyldu Sigurjóns, en hann býr á afskekktum stað í Garðahreppi. Við nánari yfir- vegun hafði Sigurjón þó á- kveðið að skýra frá öllu því, sem hann vissi, því að honum fannst það nauðsynlegt, að yfirmenn lögreglunnar fengju að vita allan sannleikann. Vitnið segir aðspurt að það eftist ekki um, að Magnús Guðmundsson sé höfundur níðgreinanna. Þá er vitnið ekki í vafa um, að Sigurjón Inga- son skýri rétt frá um þátt Magnúsar í hótunarbréfunum. Vitnið hefur ekki reynt Sigur- jón að neinu misjöfnu. Hefur hann reynzt heiðarlegur í starfi. Uppl. játað rétt. Erlingur Pálsson (sign.) Vék frá kl. 15.15. Framhald af 4. síðu. Orlög þeirra Hefur ekki hin glaðlynda og glæsilega Zza Zza Gabor, sem er þrígift og þrískilin, látið í ijós álit sitt um sín margbreytilegu ást- arævintýri: „Ég vildi óska, að ég gæti verið köld og róleg eins og enskar konur, en ég er alltaf í eld- inum." Og einnig sagði hún, þegar slitnaði upp úr ástarævintýri þeirra Rubirosa: „Ég var hrædd við að giftast einu sinni enn." Og hvað um Belindu Lee, sem var gift myndatökumanninum Cornelius Lucas, er hún skildi síðar við. Hún var nærri dauð af svefn- lyfjaeitrun í Róm, og samtímis var farið í flýti með Filippo Orsino prins á spítala, hafði hann tekið of stóran skammt af svefnpillum og skorið sig á púlsinn. Þau prinsinn og Belinda höfðu verið bendluð saman í blöðunum. Og svo endaði þessi glæsilega stúlka líf sitt í hræðilegum bíla- árekstri. Sönn hamingja Auðvitað eru til undantekningar. En næst er þið lesið um hina glæsi- legu kvikmyndastjörnu, sem eyðir fríinu sínu á Bahamaeyjunum, ekur lúxusbílnum sínum eða bara situr veizlu einhvers milljónarans, þá ættuð þið að hugsa ykkur augna- blik um. Munið, að mqguleikar ykkar á hamingju eru til lengdar miklu meiri, jafnvel þó þið verðið að vera án gervibirtu frægðarinnar. (U. Bloom. — Stytt). „Til fiskiveiða förum..." Hvítasunnuferð m/s Gullfoss Jt til Vestmannaeyja FRÁ REYKJA VÍK 19. MAÍ TIL REYKJA VÍKUR 23. MAI VERÐ FRÁ KR. 4.218,-

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.