Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 23.10.1972, Qupperneq 7

Mánudagsblaðið - 23.10.1972, Qupperneq 7
Mánudagur 23. október 1972 Mánudagsblaðið 7 8. SlÐAN hvötum. Þér eruð of tvístíg- andi og kjarklítill í ástamálum yðar. Þess vegna þurfið þér á konu að halda sem á það til að taka sjálf frumkvæðið. Þar sem þér eruð iðuiega hlédræg- ur og framkvæmdasnauður I kynmökum yðar, ætti ástkona yðar að hafa til að bera það sjáifstæði og einbeitni að hún leiti á yður endrum og eins. Hún ætti að vera þannig gerð, að hún gæti unnið bug á efa- semdum yðar um hæfnt yðar sjálfs, gefið yður aftur trú á karlmennsku yðar. Þér eruð of haldinn ótta við að þér verðið svikinn í tryggðum — kokkál- aður. Þessi nær stöðugi ótti veldur því að yður er ósýnt um að koma fram af þrótti og karlmennsku. Þér ættuð að reyna að vera athafnasamari og sjálfstæðari í skiptum yðar við hitt kynið. 1 — 4 — 6 Yður veitist ekki örðugt að komast í kynni við konur, sem yður geðjast að. Ef þér eruð á höttunum eftir einhverri á- kt'eðinni, þá eruð þér afar þol- inmóður og látið ekkert aftra yður. Þér vitið nákvæmlega hvernig fara á að. Þcr eruð ákaflega sjálfumglaður í ásta- málum og gerið mikiar kröfur til fylgikonu yðar. Þér sækizt eftir tilbrigðum í kynmökum yðar og ætlizt til þess af ást- konu yðar að liún sé einnig hugmyndarík og fús til að reyna hvers konar afbrigði í hvílubrögðum. Þér munduð ekki tii léngdar geta átt góðar samfarír við heimakæra hús- móður, ,sem heimilið er fyrir öllu, því að þér gerið miklar kröfur í ástaltfi yðar. Þér þurf- ið á stöðugri tilbreytingu að halda, verðið alltaf að sanna eitthvað nýtt. En þrátt fyrir það mynduð þér aldrei láta leiðast út í ævintýri umhugs- unariaust. Þér látið ekki ginn- ast, heldur metið jafnan ná- kvæmlega kosti og galla, áður en þér takið endaniega ákvörð- un. 2 — 3 — 5 Því verður ekki haldið fram með rökum, að þér njótið mik- illar kvenhylli. Til þess eruð þér ekki nógu útsmoginn og einbeittur. Satt bezt að segja eruð þér of hógltfur og sjálfum yður nógur. Yður skortir hug- rekki til að fella ástarhug tiJ konu, verða ástfanginn. Þér viljið sem minnst fyrir öllu hafa og því er vður geðfelld- ast ef kona sem yður lízt vel á leitar á yður að fyrra bragði. Yðtur fellur vel að Játa skjalla yður og snúast í kringum yður. Þér væntið þess af ástkonu yð- ar að hún leitist á allan hátt við að geðjast ýður. Þér viljið gjarnan gamna yður, en allt verður þó að vera í hófi. Við- horf yðar til kynlífsins er ákaf- lega jarðbundið og einkennist af hófsemi og raunsæi. Kyn- mökin eru yður einungis þægi- leg tilbreyting í hversdagsleika lífsins. Það væri alJs ekki úr vegi fyrir yður að láta svolítið meira til yðar taka, því að kröfuhörð ástkona gæti varla sætt sig við yður til lengda'- ef þé'r reynið ekki að bæta 2 — 3 — 6 Þér eruð svo útsmoginn í kvennamálum, svo fimur elsk- hugi, að þér náið alltaf því marki sem þér setjið yður, þótt stundum kosti það ýmsa útúr- dúra. Konum er það ljúft að gefast yður á vald. Ástæðan er sú, að konur finna það af eðl- ishvöt sinni að þær muni vera vel settar hjá yður. Og þær hafa rétt fyrir sér. Þér eruð bæði nærgætinn og kunnið á því lagið að gera öðrum til geðs. Ástkonu yðar finnst að þér séuð aðcins til hennar vegna. í faðmi yðar verður sér- hver kona auðsveip ástmær, því að þér hafið lag á því að vekja með henni þær óskir og hvatir sem duldust í fylgsnum sálar hennar og líkama. Þér eigið ekkert æðra markmið en að veita ástkonu yðar hamingju, og eruð fús til þess að fara margs á mis í því skyni, Hálf- kæringur er yður ekki að skapi. Meginregla yðar í ástamálum er þessi: Annað hvort allt eða ekkert. 2 — 4 — 5 í Iivert sinn sem þér fellið lnig til konu, finnst yður að þér munið eiga í vændum ein- stakt ævintýri, að þér munið gera nýjar, óvæntar og töfrandi uppgötvanir. Ekkert er yður ógeðfelldara en að vera við eina fjölina felldur. Þér leitið stöðugt nýjunga, sem geri ást- ina enn unaðssamari og fjöl- breytilegri. Og af þeim sök- um alið þér oft með yður svo sérstæðar ímyndanir og óskir um kynlífið, að það er ekki ævinlega auðvelt fyrir yður að fá þeim fullnægt. Gætið að því að það er ekki öllum gefið að vera jafn frjáls og óbundinn. og þér viljið vera. Þér væntið þess af ástkonu yðar að hún sé umburðarlynd og jafnframt reiðubúin að fara af troðnum slóðurn. Þér leitið hjá henni öryggis og blíðu, en viljið jafn framt að hún svali þrá yðar eft ir fjölbreytni í ástalífinu. Þér þurfið á að halda fullkominni eiginkonu og húsmóður, ást- ríkri móður og ástríðufullri hjákonu — í einni og sömu persónu. 2 — 4 — 6 Það mætti nefna yður fagur- kera ástarinnar, svo næmur og viðkvæmur eruð þér í þeim efnum. Þér takið ekki mikið mark á svokölluðum „leiðarvís- um" sem eiga að sýna hvernig beztum árangri verði náð. Þét eruð sannfærður um að því aðeins geti maður og kona vænzt hamingju í samlífi sínu að bæði séu þess fús að opna hvort öðru hug sinn allan. Þeg- ar þér vinnið hylli konu, er hún yður ckki aðalatriðið, heldur persónulegt afrek yðar sjálfs. Yður er það gefið að heilla konur, því að þér getið verið mjög töfrandi. Og þó líður ekki á löngu þar til þér fáið ósk yðar uppfylita. Þér vitið nákvæmlega hvað er um að ræða og hvað kona ætlast til af karlmanni. Þér ætlizt til þess af ástkonu ýðar að hún sé hreinskiptin og opinská, en hún má hvorki láta of mikið á sér bæra eða troða öðmm um tær — sízt af öllu yður sjálf- Hvor þeirra er eðlilegri?

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.