Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 21
NÁTTÚRUFR.
51
bólurnar aflangar að lögun, og þeim er nokkuð óreglulega skipað
niður. Sagþang (F. serratus) líkist all-mikið skúfþangi, en þekkist
á því, að greinarnar eru tenntar. Loks eru tvær tegundir, sem mið-
taug hafa í greinum, en þær eru klapparþang (F. spiralis) og
skúfaþang (F. inflatus), sem einnig getur haft bólur, eins og fyr
er getið. Meðal þeirra má þekkja klapparþangið á því, að grein-
arnar eru vanalega nokkuð undnar. Af þangi því, sem enga miðtaug
hefir í greinunum má nefna tvær tegundir, klóþangið (Ascophyllum
nodosum), sem hefir stórar aflangar blöðrur í miðjum greinunum,
og dvergaþangið (Pelvetia canaliculata).
Hér skal nú ekki fjölyrt meira um fjörugróður, en vísað til
myndanna. Þeir, sem kynnu að vilja fá stutt og gott yfirlit yfir
helztu tegundir þara og þangs, sem hér finnst í fjörum, með lýs-
ingum á útliti plantnanna, vísa eg í rit Helga Jónssonar í Búnaðar-
ritinu (32. árg., 1.—2. hefti), á því er það, sem hér er sagt, að
mestu leyti byggt.
Á. F.
Brúní jarðsíagínn.
í febrúar-hefti Ægis skrifar Sigurður Pétursson, stud. agric.
fróðlega grein um rannsóknir sínar á jarðslaga á íslenzkum salt-
fiski. Eins og kunnugt er, hefir nokkuð borið á jarðslaga hér á
landi síðustu árin, en jarðslagi nefnist skemmd, sem orsakast af
smásæjum jurtum, gerlum og sveppum, og jafnan hefir lit, rauð-
an, brúnan eða svartan í för með sér. Til er Tvenns konar jarð-
slagi, rauður og brúnn, og nefnist þannig eftir lit þeim, sem fisk-
urinn fær, þegar skemmdin er komin á nokkuð hátt stig. Rauði
jarðslaginn orsakast af gerlum (bakteríum), sem gera fiskinn
rauðan og daunillan, en sá bi’úni af sveppum, sem valda brúnum
eða svörtum dílum á yfirborði fisksins. Er það einkum brúni jarð-
slaginn, sem Sigurður hefir rannsakað fyrir tilstilli Fiskifélags
tslands. —
hæð. Vex á sama dýpi og hin tegundin. 56, þráðlaga brúnþörungur
(Chorda filum), alg. hér að minnsta kosti í hlýja sjónum. Vex neðst
í fjörunni og niður á 20 metra dýpi. Verður yfir 2 m. á lengd. 57,
þráðlaga, greinóttur brúnþörungur (Chordaria flagelliformis).
Alg. Vex neðst í fjörunni. Verður yfir 2 metrar á lengd.
4*