Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 25
NÁTTÚRUFR. 55 sem fæst í lyfjabúðum, í 20 lítra af vatni, og þvo veggi, gólf og loft geymslurúmsins með blöndunni, eða spra'uta henni á fletina, ef stórir eru. Vitanlega verður einnig að beita þessum aðferðum við hvers konar áhöld, sem að saltfiski koma, og föt þeirra, sem að fiskinum vinna, verða einnig að vera sótthreinsuð. Á. F. r Ur sjávardjúpínu. Sjávardjúpið og sjávarbotninn er og hefir verið æfin- týraland dýrafræðinganna, þar ræður ímyndunaraflið ennþá allmiklu við hlið reynzlu og þekkingar. Og eftir því, sem betur hefir tekist að létta huliðsblæju þeirri, sem myndar kínversk- an múr á milli landbúa og mararbúa, eftir því hefir maðurinn orðið að hneigja sig dýpra í lotningu fyrir undraheimi sjávar- djúpsins. Barnið, sem situr við ströndina, og horfir undrandi augum út yfir hið mikla djúp, sem skolar steinana við fætur þess í fjörunni, getur sér ef til vill ýmsu til um það, hvað búi hinu megin við hinn mikla bláa flöt, bak við hafsbrúnina, þar sem himinn og haf virðast mætast. Þarna er þekking manns- ins á sævardjúpinu í æsku. Sjómaðurinn þekkir hafið af eigin reynslu, oft hefir hann teflt afli sínu við hinn æsta flöt þess, eða látið ímyndunaraflið skapa furðumyndir niðri í djúpinu, bak við tjöldin. Af lönguninni til þess að vita, hvað í djúpinu býr, sprettur svo vísindamaðurinn. Mörg hyldýpi þekkingar- leysis og fávizku hafa vísindin brúað, margt er nú kunnugt orðið, sem áður var hulið svörtu myrkri. Ef til vill sýnir náttúran hvergi betur samræmið á milli einstaklingsins og umhverfisins en einmitt í sævardjúpnu. Margir sævarbúar líkjast mjög umhverfi sínu um lit og lög- un sér til varnar gegn óvinum þeim, sem að þeim sækja úr öllum áttum. í hinu fræga Þanghafi (Sargasso-hafi), sem eins og kunnugt er, er hinn næstum straumlausi hluti Norður-At- lanzhafsins fyrir austan Bermunda-eyjarnar, lifir mikill hluti dýra í þanginu, sem vex og hefst við eins og brún breiða við yfirborðið. Alls staðar í þanginu er fullt af rækjum, kröbb- um, fiskum og sniglum, en svo lík eru dýrin umhverfi sínu, að varla verða þau séð, þótt vel sé að gætt, nema þau séu

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.