Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 32
62 NÁTTtJRUFK. refaeinkennin fram. Ljósop augans virðist vera mitt á milli þess að vera ílangt eins og á ref og kringlótt eins og á hundi“. Haustið 1931 var refhundi þessum valið kvonfang, úlfynja ættuð af preríum Norður-Ameríku (coyote). Voru þau höfð í búri saman og tókust með þeim ástir. Árangurinn varð sá, að í maí í fyrra fæddi úlfynjan 3 hvolpa. Döfnuðu þeir vel í fyrstu og virtist faðirinn láta sér ant um afkvæmin. En einn góðan veðurdag kemur skoffínsnáttúran upp í honum og drepur hann 2 af ungunum. Hinum þriðja, kvendýri, vai'ð bjargað og komst á legg. J>að er einkennilegt við þennan ref-hund-úlf, að hann er öllu stærri en móðirin, rauður á lit og að ýmsu leyti líkari ref en faðirinn. Hvers má nú vænta af þessum einkennilega kynblending? Honum virðist vera vel í skinn komið, eftir myndum að dæma. Og hvers má enn vænta af foreldrunum, sérstaklega föðurnum? Menn bíða með nokkurri forvitni eftir því. Sérstaklega er loð- dýraræktendum forvitni á hvað komast má í þessum efnum. Ein- kennileg afbrigði komast oft í geypiverð, að minnsta lcosti í byrjun, og er því arðsvon hjá þeim, sem heppnir eru í þeim efn- um. Þessar æxlanir, er ég hér hefi nefnt, sanna að vísu ekki þjóð- sögurnar um skoffín og skuggabaldra, enda er aðstaða dýra í búrum undir handleiðslu mannsins allt önnur en í frjálsu lífi úti í náttúrunni. En þær afsanna þó þær kenningar vísinda- raanna, að þetta geti ekki orðið. Ársæll Árnason. Frásögn þessa byggi eg á grein í »Der deutsche Jager« eftir H. Heck, forstöðumann dýragarðsins í Hellabrunn, og annari i »Der deutcshe Pelztier- zíichter« eftir dr. A. Priesner. Ársœll Árnason. Samtíníngur. Island er 490 km. að lengd, milli Gerpis og Öndverðarness, en 312 km. á breidd. milli Dyrhólaeyjar og Sigluness. Fjarlægð til næstu landa eru: 300 km. tii Grænlands, 420 km. til Færeyja, 550 km. til Jan Mayen, 800 krn. til Skotlands og 970 km. til Noregs. Siglingarleið kringum landið er 811 kílómetrar. Meðalárshiti í Reykjavík er 3,9 stig (Celsius), í Stykkisliólmi 3,1 stig, á Akureyri 2,5 stig og í Vestmannaeyjum 4,5 stig. Meðalársúrkoma í Reykja-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.