Fréttablaðið - 04.08.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
34%
74%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið er með 117%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
ÞRIÐJUDAGUR
4. ágúst 2009 — 182. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Allt frá því að María Ísfold Stein-unnardóttir uppgötvaði Bruce Lee-myndir sem barn ól hún með sér draum um að ná langt á sviði bardagalista. Þótt hún hafi nú gefið hann upp á bátinn hugsar hún vel um sig og stundar meðal annars combat conditioning um þessar mundir.„Þetta er svona blanda af alls kyns íþróttum,“ útskýrir Maríaog bætir við ð
María segist stunda combat conditioning til að vinna upp þol, styrk og snerpu og meðfram því lyftir hún ketilbjöllum til að byggja upp stoðkerfi líkamans. „Þetta eru rússneskar bjöllur svip-aðar þeim sem notaðar eru í kúlu-varpi nema með handföngum,“ segir hún og kveðst hafa náð mikl-um framförum síðl
segir María hlæjandi en hún er meðal annars búfræðingur að mennt. „Þar komst ég reyndar að því að kúreka draumurinn var kannski ekki alveg eins og í bíó-myndunum. Eiginlega var þetta miklu erfiðara en mig grunaði. Þannig að ég sneri heim o fóí þett “
Vildi verða Bruce LeeMaría Ísfold Steinunnardóttir fer yfirleitt óvenjulegar leiðir í lífinu. Eitt sinn dreymdi hana um að verða
Bruce Lee, svo gerðist hún kúreki á búgarði í Bandaríkjunum og nú stundar hún combat conditioning.
„Ég hef aldrei heyrt setninguna „þú hefðir átt að fæðast karlmaður“ þegar áhugamálin ber á góma,“ segir María kaldhæðin og
hlær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-frelsi og nýir
möguleikar
Einfaldar í notkun
og hagkvæmar
í rekstri
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Viðurkenndar stuðningshlífarí úrvali
20 – 50% afsláttur af völdum vörum
Útsalan
er hafi n
Sængurfatnaður frá 4.980 kr. Íslensk hönnun á enn betra verði
GÖNGUGARPUR með bakpoka sem vegur fimmtán til tuttugu kíló getur gengið þrjá til fjóra kílómetra á klukkustund á jafn-sléttu. Reiknað er með einum tíma aukalega fyrir hverja sex til sjö hundruð metra upp á við. Nánar á www.ganga.is.
VEÐRIÐ Í DAG
Pappírslaus viðskipti hjá Byr
Viðskiptavinir geta sparað sér þúsundir króna á ári!
Frá og með mánaðarmótum júlí/ágúst hættir Byr sparisjóður að senda út með
pósti yfirlit reikninga og kreditkorta ásamt greiðsluseðlum lána og kredit-
korta. Viðskiptavinir eiga kost á að spara sér þúsundir króna á ári með því að
nálgast yfirlitin í heimabankanum. Nánari upplýsingar á www.byr.is
SPARN
AÐUR
Í ÞÍNA
ÞÁGU
PAPPÍR
SLAUS
VIÐSKIP
TI
FRÁ 1.
ÁGÚST
2009
MARÍA ÍSFOLD STEINUNNARDÓTTIR
Fyrrum kúreki með
óvenjuleg áhugamál
• heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Enginn svikinn
um fjör
Durak Hakan stendur
á bak við fyrstu
swingdanshátíðina á
Íslandi sem hefst
formlega í dag.
TÍMAMÓT 14
VIGNIR RAFN VALÞÓRSSON
Snæfríður Íslandssól í
heimsókn í Grease
Sporvagninn Grease er blanda tveggja verka
FÓLK 22
Kennari í Kína
Arnar Ágústsson
kenndi kínverskum
hermönnum
ensku.
FÓLK 22
RIGNING SYÐRA Í dag verða
austan 5-15 m/s, hvassast sunnan-
lands. Fer að rigna upp úr hádegi
sunnan- og suðaustanlands en
yfirleitt þurrt og nokkuð bjart N-til
fram á kvöld. Hiti víða 12-20 stig.
VEÐUR 4
14 17
13
13
15
Björgvin vann Einvígið
Björgvin Sigur-
bergsson var
í stuði á góð-
gerðarmóti
Nesklúbbs-
ins.
ÍÞRÓTTIR 17
Tjáning og tilfinningar
„Algengast er að fólk lýsi góðri
líðan, upplifun og hrifningu með
orðum sem upprunalega merkja
vanlíðan og ógleði,“ skrifar Jónína
Michaelsdóttir.
Í DAG 12
FÓLK Kajakræðarinn Gísli H.
Friðgeirsson lauk kajakhring-
ferð sinni í gær en hann er fyrsti
Íslendingurinn sem rær kajak
hringinn í kringum landið. Ferð-
in hófst 1. júní og kom Gísli í land
við Geldinganes síðdegis í gær.
Gísli er að vonum ánægður
og segir hreint ævintýri að róa
í kringum landið. „Þetta var
bæði krefjandi og spennandi en
ég fékk tækifæri til að kynnast
landinu frá sjónarhorni þeirra
sem reru til fiskjar á árum áður.
Ég er afskaplega sáttur og finnst
áfanginn gefa lífinu gildi.“
Gísli kveðst ekki hafa lent
í miklum háska en að minni
háttar erfiðleikar hafi þó gert
vart við sig. Hann segir hluta af
því að komast klakklaust í gegn-
um svona ferðalag vera að hætta
sér ekki út í vont veður heldur að
bíða það af sér á áningarstað.
Á ferðalaginu hafði Gísli
félagsskap nokkurra dýra-
tegunda sem að hans sögn
stafaði ekki nokkur hætta af.
„Hvalirnir fylgdust með mér úr
hæfilegri fjarlægð og héldu sig
frekar fyrir aftan mig en fram-
an en auk þess fylgdu mér bæði
selir og sjófuglar.“ - ve
Gísli H. Friðgeirsson fyrstur Íslendinga til að fara hringinn á kajak:
Reri í fylgd hvala og sjófugla
TVEGGJA MÁNAÐA FERÐALAG Á ENDA Gísli H. Friðgeirsson varð í gær fyrsti Íslendingurinn sem fer hringinn kringum landið á
kajak. Tekið var á móti Gísla við komuna við Geldinganes um kvöldmatarleytið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Björgvin G. Sigurðsson, formaður
þingflokks Samfylkingarinnar, segir nauð-
synlegt að endurskoða lög um bankaleynd.
„Ekki þó að öllu leyti,“ tekur hann fram,
„en þó þannig að fjölmiðlar geti fjallað um
brýn málefni sem varða hagsmuni almenn-
ings án þess að vera að brjóta lög. Þegar svo
stendur á tel ég að hagsmunir almennings
eigi að ganga framar bankaleyndinni.“
Björgvin telur að meðal þingmanna Sam-
fylkingarinnar og stjórnarliða almennt
sé vilji til þess að þessi lög verði tekin til
endur skoðunar mjög fljótlega.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir að málið hafi reyndar ekki
verið rætt sérstaklega innan stjórnarinnar,
en það verði þó væntanlega gert á fundi
hennar í dag. Hann segist þó ekki sjá neina
ástæðu til að halda upplýsingum sem tengj-
ast hruninu og aðdraganda þess leyndum,
og það sé líklega almenn skoðun meðal
þingmanna Vinstri grænna. Hins vegar
verði að aðskilja þau mál alveg frá þeirri
almennu reglu um bankaviðskipti frá degi
til dags, að þar verði persónuvernd að vera í
hávegum höfð.
Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skila-
nefndar Kaupþings, segir nefndina ein-
göngu hafa verið að gæta hagsmuna þeirra
viðskiptavina sinna, sem á engan hátt teng-
ist bankahruninu í haust.
Hann segir skilanefndina ekki hafa neina
ástæðu til að fetta fingur út í umfjöllun
fjölmiðla um þau fyrirtæki, sem beint eru
tengd hruninu.
„Allir fjölmiðlar hafa hvort eð er fjallað
um þetta fram og til baka án þess að nefnd-
in hafi gert neinar athugasemdir þá átta
mánuði sem liðnir eru. Við erum líka sjálf
búin að koma upplýsingum til fjármálaeftir-
litsins og til rannsóknarnefndar þingsins og
þar liggur þetta allt fyrir.“
Steinar Þór bendir á að bankaleynd hefur
þegar verið aflétt að hluta með lögum um
rannsóknarnefnd þingsins, sem hefur mjög
víðtækar heimildir til að afla sér upplýsinga
og birta þær að lokum, telji hún ástæðu til.
- gb / sjá síðu 4
Stjórnvöld ræða breytingar
á lögum um bankaleynd
Vilji er meðal stjórnarliða um að breyta lögum um bankaleynd. Fjölmiðlar eiga að geta fjallað um brýn
hagsmunamál almennings. Skilanefnd Kaupþings segist gæta hagsmuna þeirra sem ekki tengjast hruninu.
HEILBRIGÐISMÁL Rannsóknir
Hjartaverndar á sambandi
mígrenis og vefjabreytinga í
litla heila vekja athygli erlend-
is. Fjallað hefur verið um niður-
stöðurnar í virtu bandarísku
læknatímariti og á erlendum
heilsuvefjum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
leiddu í ljós að
konur á miðj-
um aldri með
mígreni eru
líklegri til að
hafa vefja-
breytingar í
litla heila. „Við
vitum ekki enn
hvaða áhrif
þessar vefja-
breytingar
hafa á vitræna
getu og hæfni einstaklinga en
erum að rannsaka það núna,“
segir Vilmundur Guðnason,
forstöðulæknir Hjartaverndar.
- mmf / sjá Allt
Rannsóknir á mígreni:
Vekja athygli
erlendra rita
VILMUNDUR
GUÐNASON