Fréttablaðið - 04.08.2009, Qupperneq 22
14 4. ágúst 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Halldór S. Gröndal
fyrrverandi sóknarprestur,
Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík,
lést á heimili sínu að morgni fimmtudagsins 23. júlí
sl. Honum verður sungin sálumessa í Kristskirkju
Landakoti miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15.00.
Ingveldur Lúðvígsdóttir Gröndal
Lúðvík H. Gröndal Kristbjörg Konráðsdóttir
Sigurbjörg H. Gröndal Ólafur Haukur Ólafsson
Hallgrímur H. Gröndal Sólveig Fanný Magnúsdóttir
Þorvaldur H. Gröndal Lára Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
uppeldisfaðir, tengdafaðir, sonur, bróðir,
mágur, tengdasonur og frændi,
Njáll Skarphéðinsson
Dofrakór 7, Kópavogi,
sem varð bráðkvaddur í sumarhúsi fjölskyldunnar
föstudaginn 24. júlí, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.30. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem
vilja minnast Njáls er bent á reikning barna hans, 0328-
13-300995, kt. 290972-3029.
Hrefna Sigurbjörg Jóhannsdóttir
Kjartan Hreinn Njálsson
Skarphéðinn Njálsson Unnur Ósk Rúnarsdóttir
Illugi Njálsson
Hrafntinna Njálsdóttir
Hallgerður Njálsdóttir
Jóhann Bjarni Kjartansson Borghildur Sverrisdóttir
Sigurbjörn Snævar Kjartansson Wichuda Buddeekham
Skarphéðinn Sveinsson Íris Bachmann
Haraldsdóttir
Haraldur Skarphéðinsson Eygló Linda
Hallgrímsdóttir
Sveinn Skorri Skarphéðinsson Ingibjörg Guðmundsdóttir
Jóhann Guðjónsson.
„Við byrjum þetta með svakalega
flottri skrúðgöngu, þarna verður dixie-
land-band, stór hópur listamanna, læti
og heilmikið stuð,“ segir Hakan Durak,
stofnandi Lindy Ravers eina starf-
rækta Lindy Hop-félagsins á landinu,
sem stendur á bakvið fyrstu alþjóðlegu
swingdanshátíðina á Íslandi sem hefst
formlega á Austurvelli í dag klukkan
17.
Viðbúið er að bærinn taki stakka-
skiptum þegar um 100 erlendir dans-
arar frá 21 landi, þar á meðal Ástral-
íu, Bandríkjunum, Englandi og Rúss-
landi, ríða á vaðið. Er þá óupptalinn
sá fjöldi íslenskra dansara sem verð-
ur með, en að sögn Hakans hefur þeim
fjölgað gífur lega síðan dansinn skaut
rótum hérlendis fyrir um þremur árum
síðan. „Ætli þeir séu ekki komnir hátt
upp í hundrað,“ segir hann og kveð-
ur aukninguna meðal annars ástæðu
þess að ákveðið var að halda fyrstu
swingdans-hátíðina á Íslandi með jafn
mikilli viðhöfn.
Að sögn Hakans á Lindy Hop upptök
sín í Harlem í New York þar sem farið
var að dansa það á þriðja áratug síð-
ustu aldar. „Dansinn náði vinsældum í
kjölfar kreppunnar,“ útskýrir hann og
bætir við að Lindy Hop hafi þó næst-
um þurrkast út með tilkomu rokksins
í kringum 1950. „Það var í raun ekki
fyrr en bandið Rythm Hot Shots not-
aði dansinn í myndbandi á níunda ára-
tugnum að hann varð aftur umtalaður,
fyrst í Svíþjóð þaðan sem hljómsveit-
in kemur.“
Hakan segir að í kjölfarið hafi vin-
sældir dansins breiðst út að nýju og nú
sé talið að iðkendur Lindy hops skipti
tugum þúsunda um gjörvallan heim.
„Eitt einkenni á dönsurunum er að þeir
flakka heimshorna á milli, dansa, deila
reynslu sinni og skemmta sér,“ segir
Hakan, sem er sjálfur frá Tyrklandi
en settist hér að árið 2000 og stofnaði
Lindy Ravers í kringum 2007. En hvað
heillaði Hakan við þetta dansform?
„Þetta er svo ólíkt öðru sem ég hef
dansað áður, krefst mikillar líkams-
orku og er bæði hressandi og afslapp-
andi. Svo finnst mér tónlistin, djassinn,
alveg ótrúlega heillandi,“ svarar hann
og nefnir til sögunnar þekkta tónlist-
armenn á borð við Ellu Fitzgerald og
Duke Ellington. „Enda er hátíðin einnig
ætluð djassunnendum sem hafa gaman
að swingtónlist. Til marks um það
verða yfir tíu tónleikar með vinsælum
íslenskum og bandarískum hljómsveit-
um og plötusnúðum frá Svíþjóð, Ástral-
íu, Englandi og Tyrklandi meðan á há-
tíðinni stendur,“ bendir hann á og hvet-
ur sem flesta til að mæta í dag. „Það
verður enginn svikinn um fjör.“
Dagskrána í heild sinni má nálgast á
vefsíðunni www.articlindy.com.
roald@frettabladid.is
HAKAN DURAK: STENDUR FYRIR FYRSTU SWINGDANS-HÁTÍÐINNI Á ÍSLANDI
Bærinn tekur stakkaskiptum
Þróunarsamvinnustofnun Ís-
lands, skammstöfuð ÞSSÍ,
afhenti í vikunni sýsluyfir-
völdum í Ohangwena-sýslu
í Namibíu þrjár nýjar skóla-
stofur í nýjan grunnskóla
fyrir heyrnarlaus börn. Skóla-
stofurnar eru þær fyrstu í
Usko Nghaamwa-skólanum í
bænum Eenhana.
Að sögn Vilhjálms Wiium,
umdæmisstjóra ÞSSÍ í Nam-
ibíu, hófst leikskólastarf á
staðnum árið 2006 þegar for-
eldrar heyrnarlausra barna
settu slíkan skóla á laggirn-
ar. „Menntamálayfirvöldum í
sýslunni þótti framtakið þess
virði að styðja það, ákváðu að
taka við rekstrinum og breyta
leikskólanum í grunnskóla.
Skólastarfið hófst í janúar og
þá voru tekin inn börn í for-
skóla og fyrsta bekk. Síðan
verður bætt við nýjum bekk
árlega.“
Hann segir stuðning ÞSSÍ
felast í þriggja mánaða þjálf-
un kennara í táknmáli, tjöld-
um sem notuð voru sem
bráðabirgðahúsnæði og bygg-
ingu skólastofanna. „Heima-
mönnum þykir með ólíkind-
um að fólk frá landi langt í
burtu skuli veita samfélaginu
svona stuðning og eru þakk-
látir,“ segir Vilhjálmur, sem
afhenti lyklana við athöfn þar
sem skólabörn sýndu dansa
og önnur skemmtiatriði.
Gáfu nýjar skólastofur í Namibíu
Í NAMIBÍU Nokkrir heyrnarlausir nemendur fyrir framan skúrinn sem
leikskólastarfsemin hófst í.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
HÁTÍÐARHÖLD Lindy Hop-hátíðin hefst
formlega í dag og stendur yfir til 12. ágúst
með tilheyrandi skemmtiatriðum, dansleikj-
um, tónleikum og öðrum uppákomum víðs
vegar um borgina. Hakan Durak hefur, ásamt
fleirum, skipulagt hátíðarhöldin.
MERKISATBURÐIR
1796 Hannes Finnsson Skál-
holtsbiskup andast. Hann
var einn menntaðasti Ís-
lendingur sinnar tíðar. Af
ritum hans má til dæmis
nefna Um mannfækkun
af hallærum á Íslandi.
1928 Ásta Jóhannesdóttir synd-
ir frá Viðey til Reykjavíkur.
Sundið tekur tæpar tvær
klukkustundir og er um
fjórir kílómetrar.
1984 Efri-Volta tekur upp nafn-
ið Búrkína Fasó.
1993 Alríkisdómari dæmir tvo
lögreglumenn frá Los
Angeles í þrjátíu mánaða
fangelsi fyrir að hafa brot-
ið á réttindum Rodneys
King.
2007 Phoenix, geimskipi NASA,
er skotið á loft.
BARACK OBAMA FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1961.
„Við þurfum að tileinka
okkur nýjan hugsunar-
hátt og annað viðhorf. Ein
skaðlegasta afleiðingin frá
tíma mismununar er að við
höfum látið innræta okkur
ákveðin höft.“
Barack Hussein Obama yngri
er 44. forseti Bandaríkjanna,
kjörinn forseti árið 2008 og
fyrrverandi fulltrúi Illinois
í öldungadeild bandaríska
þingsins.
AFMÆLI
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON,
fjármálaráð-
herra og for-
maður Vinstri
hreyfingar-
innar - græns
framboðs, er
54 ára.
BILLY BOB
THORNTON,
leikari og
söngvari, er
54 ára.
KURT BUCH
ökuþór er 31
árs.
DANIEL DAE
KIM leikari er
41 árs.
Hannes Finnsson Skálholts-
biskup andaðist á þessum degi
árið 1796.
Hannes fæddist í Reykholti
í Borgarfirði 8. maí árið 1739,
sonur prestshjónanna þar, séra
Finns Jónssonar, sem síðar varð
biskup í Skálholti, og Guðríðar
Gísladóttur.
Hannes útskrifaðist sextán
ára úr Skálholtsskóla 1755 og
hélt um sumarið til guðfræði-
náms við Hafnarháskóla. Emb-
ættispróf í guðfræði tók hann 1763. Á þeim tólf
árum, sem Hannes dvaldist samfleytt í Kaup-
mannahöfn, kynntist hann mörgum helstu fræði-
mönnum Danmerkur.
Hannes sneri heim í Skálholt til aðstoðar föður
sínum við ýmis fræðistörf árið 1767. Hann hélt
aftur til Kaupmannahafn-
ar 1770 og dvaldi þar næstu
árin við störf í íslenskum
fræðum.
Hannes var vígður að-
stoðarbiskup til Skálholts
1777. Finnur lét af emb-
ætti árið 1785 og var Hann-
es þá einn biskup. Árið áður
höfðu Suðurlandsskjálftar
lagt Skálholtsstað meira og
minna í rúst og átti að flytja
biskupsstólinn til Reykja-
víkur. Hannes keypti þá Skálholtsstað og fékk að
sitja þar áfram sem hann og gerði til æviloka.
Hannes dó hinn 4. ágúst 1796 í Skálholti eftir
skyndileg veikindi. Á síðustu æviárunum skrifaði
hann tvö merkustu rit sín: Um mannfækkun af
hallærum á Íslandi og Kvöldvökur.
ÞETTA GERÐIST: 4. ÁGÚST ÁRIÐ 1796
Hannes Finnsson biskup andast
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.