Samvinnan - 01.04.1977, Page 6

Samvinnan - 01.04.1977, Page 6
ÁSTÆÐA TIL AÐ GERA TILRAUNIR MEÐ ANNAD LÝÐRÆÐISFORM Benedikt á AuSnum, að stefna beri að því að öll þjóðin verði i einu kaupfélagi. Hins vegar er ljóst, að Benedikt á Auðnum sá þarna fyrir þróun, sem gerzt hefur, það er að miðstjórnarvald hefur eflzt. í nágrannalöndum okkar hefur verið tilhneiging til að mynda eitt kaupfélag, steypa öllum félögunum saman, þannig að ekki væri aðeins um eina heild- sölu að ræða, heldur eina smá- sölu líka. Ég hygg hins vegar, að frekar sé tími til kominn að dreifa valdinu. Og ég fæ ekki betur séð en mörg teikn séu lofti sem sýna, að þeim hugmyndum vex fylgi. Ég vil til gaman geta þess, að ég mætti á fundi í Danmörku ár- ið 1959, þar sem fluttur var af mikilli hrifningu sá boð- skapur, að Danir ættu að stofna eitt kaupfélag, mið- stjórnarvaldið væri mikilvægt og hefði ýmsa kosti i för með sér. Ég stóð upp á þessum fundi og mælti einn manna gegn þessum hugmyndum. Ég taldi, að þarna væri verið að stefna inn á ranga braut. Ég held, að einmitt á þessum árum hafi hugmyndir um nauðsyn mið- stjórnar náð hámarki; síðan hafi heldur þokazt í hina átt- ina. Túlkun frum- herjanna á samvinnu- hugsjóninni á ekki við á okkar tíma, svo ágæt sem hún var á sinni tíð. Ný viðhorf til lýðræðis — Flestum ber saman um, að félagsleg deyfð ríki innan sam- vinnuhreyfingarinnar. Hvaða ráð eru helzt til úrbóta á þvi sviði? — Það er eflaust rétt að fé- legsleg deyfð ríki, en ég held að hún ríki ekki aðeins innan samvinnuhreyfingarinnar. Fé- lagsleg deyfð er einkenni á samtíðinni. Sumir halda því fram, að velferðarsamfélagið skapi þessa félagslegu deyfð. Ríkið sé orðið ein allsherjar forsjón, og menn þurfi ekki lengur að hugsa; félagsleg bar- átta og umbrot hljóti því að hverfa. Reyndin hefur því m,;5!ur orð- ið sú, að verulega hefur dregið úr hinni félagslegu kviku. Ég hygg að hér verðum við enn að gera okkur grein fyrir því, að samvinnuhreyfingin er þrennt: viðskipta-, félagsmála- og menningarstefna. Og spurn- ingin er, hvað viljum við raun- verulega að gerist innan þess- arar hreyfingar? Kærum við okkur um hið félagslega og menningarlega, eða er kannski hið viðskiptalega svo sterkur þáttur í hugum okkar, jafnvel þó að við segjum annað, að við teljum eðlilegt að leggja slíka megináherzlu á þann þátt? Ég vil aðeins minna á þá hug- mynd, sem Hallgrímur Krist- insson fékk á sínum tíma, að samvinnuhreyfingunni væri skylt að rækja hinn félagslega þátt. Ég hygg að það sé rétt með farið, að hann hafi hugs- að sér að um 20% af hagnaði Sambandsins væri varið til fé- lags- og fræðslumála. Þessari hugmynd Hallgríms hefur ekki verið framfylgt, enda geta mörkin milli fræðslustarfsemi, áróðurs, auglýsinga og annars slíks verið ákaflega óglögg, og hvað 20% af hagnaði Sam- bandsins merkir í raun og veru er aðeins bókhaldsatriði. Ég tel, að það sem gera þyrfti sé í stuttu máli sagt, að áherzlan færist í ríkara mæli yfir á hið félagslega og menn- ingarlega svið. — Hefur þróun mála orðið sú hin síðari ár, að lýðræðið innan samvinnuhreyfingarinn- ar fari stöðugt minnkandi og valdið sé í höndum fárra manna? — Orðið lýðræði getur haft margs konar merkingu. Upp- runaleg merking þess var hið beina lýðræði, sem Grikkir gerðu tilraun með á sínum tíma, en hún mistókst eins og kunnugt er. Síðan fengu menn aðra gerð lýðræðis, fulltrúa- lýðræði, og það er sú mynd sem hefur verið ríkjandi á seinni árum. Þegar rætt er um lýðræði nú á dögum er gjarn- an átt við þetta fulltrúalýð- ræði. Aftur á móti er þvi ekki að leyna, að á siðari árum hefur komið fram mjög hörð gagn- rýni á fulltrúalýðræðinu, svo hörð, að sagt hefur verið að það væri andhverfa lýðræðis; með fulltrúalýðræðinu væri fólk að afsala sér völdum en ekki öðlast þau. Þegar menn kysu, hvort sem það eru al- þingismenn eða stjórnarmenn í ákveðnum félögum, þá væru þeir um leið með atkvæði sínu að afsala sér völdum í ákveð- inn tíma. Á síðari árum hafa þvi komið fram ýmsar hug- myndir, sem miða að því að gera aftur tilraunir með hið beina lýðræði, og má nefna i því sambandi skólalýðræði og atvinnulýðræði. Það er staðreynd, að sam- vinnuhreyfingin kemur fram á velmektardögum fulltrúalýð- ræðis, og innan hennar er nánast ekkert annað lýðræði en það — með kostum þess og göllum. Það er líka augljóst, að hin nýju viðhorf um tilraunir til að skapa beint lýðræði hafa ekki að marki fest rætur inn- an samvinnuhreyfingarinnar. Fræðslusamband — Þú starfaðir að fræðslu- málum fyrir Sambandið um langt árabil og þekkir því manna bezt þá hlið starfsem- innar. Hvert er álit þitt á fræðslustarfi Sambandsins eins og það er nú og hverju finnst þér helzt ábótavant í þeim efnum? — Ég held, að það sem gert er i fræðslústarfi Sambandsins sé bæöi virðingarvert og heið- arlegt svo langt sem það nær. En ég álít, að það sem koma þyrfti sé að samvinnuhreyfing- in eignist sitt sérstaka fræðslu- samband, Fræðslusamband samvinnumanna. Við vitum, að í nágrannalöndunum er sam- vinnuhreyfingin i mjög nán- um tengslum við verkalýðs- hreyfinguna, svo nánum tengslum að samvinnu- hreyfingin á Norðurlöndunum mun í flestum landanna vera aðili að menningar- og fræðslu- samböndum verkalýðshreyf- ingarinnar í viðkomandi landi. Hugsanlegt er, að þetta gseti gerzt einnig hér á landi, ef samvinnumenn kæra sig ekki um að hafa sitt eigið fræðslu- samband, sem ég teldi þó eðli- legast. Þá mundi það tengjast fræðslusambandi verkalýðs- hreyfingarinnar og gerast beinn aðili að Menningar- og fræðslusambandi alþýðu, MFA. í þessu sambandi vil ég benda á, að fyrir alþingi ligg" ur nú í þriðja sinn frumvarp til laga um fullorðinsfræðslu. Einmitt í þeim lögum er gert ráð fyrir, að hér komi upp ó- 6

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.