Samvinnan - 01.04.1977, Síða 8
ALÍSLENZK STÓRIÐJA
Nýja fiskiðjuverið í Krossey
á Höfn í Hornafirði var tekið
i notkun með hátiðlegri athöfn
29. janúar síðastliðinn. Fisk-
iðjuverið er í eigu Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga og er eitt
fullkomnasta og glæsilegasta
frystihús landsins.
Byggingarframkvæmdir hóf-
ust árið 1970, en þá var gert
ráð fyrir allt annarri samsetn-
ingu afla en nú eða fyrst og
fremst línu- og netafiski á
vetrarvertíð. Afli báta hefur
minnkað, en Hornfirðingar
hafa eignazt togara, svo að afli
berst nú að landi nokkuð jafnt
allt árið um kring. Auk þess
hefur önnur vinnsla aukizt,
t. d. humarvinnsla og frysting
á sild og loðnu. Byggingin var
aðlöguð þessum breyttu að-
stæðum á byggingartímanum.
Húsið hefur verið byggt í á-
föngum og var fyrsti hluti þess,
4560 rúmmetra frostgeymsla.
tekinn í notkun i októbermán-
uði 1972, en nú eru fram-
kvæmdir á lokastigi og engin
fiskvinnsla fer lengur fram í
eldra frystihúsi félagsins.
Grunnflötur hússins er tæp-
lega 6000 fermetrar, en hluti
þess er á tveim hæðum og gólf-
flötur alls 7200 fermetrar, en
rúmtak hússins er samtals
38.000 rúmmetrar.
Dyr í fiskmóttöku snúa að
löndunarbryggju fiskiskipanna
og er aflanum þar landað í
kassa, sem síðan eru fluttir
með gaffallyfturum til vinnslu
i húsinu.
Nú er unnt að taka á móti
um 300 tonnum af óslægðum
afla og geyma í hráefnis-
geymslu hússins. Aðstaða er
fyrir hendi til að vinna sam-
tímis að pökkun og frystingu
á um 100 tonnum af flökum og
5-7 tonnum af humar. Þannig
getur ef þörf krefur allt að 300
manns starfað í húsinu sam-
tímis.
Á Höfn i Hornafirði er risin
upp alíslenzk stóriðja, eins og
komizt var að orði í blaða-
grein nýlega. Sagt er, að kostn-
aður við byggingu fiskiðjuvers-
ins sé fram til þessa aðeins um
1/30 hluti af áætluðu kostnað-
arverði járnblendiverksmiðj-
unnar á Grundartanga, þar
sem talið er að um 150 manns
muni fá vinnu. 4
Hermann Hansson kaupfélagsstjóri flytur ávarp við vígslu nýju fiskvinnslustöðvarinnar á Höfn í Hornafirði.
**®at*r
r ■ r ja il ■s
Æ * a
8