Samvinnan - 01.04.1977, Blaðsíða 12
í tilefni af afmæli Sambandsins hélt
framkvæmdanefnd Alþjóðasambands samvinnu-
manna fund hér á landi.
Framlagið í þróunar-
sjóðinn fimmfaldað
Alþj óðasamvinnusambandið
hélt fund í framkvæmdanefnd
sinni og undirnefndum henn-
ar i Reykjavílc, daganna 7.-11.
marz. Við setningu fundarins
flutti Erlendur Einarsson á-
varp, þar sem hann skýrði frá
því, að komið hefði til álita i
stjórn Sambandsins, hvort ekki
ætti að leggja fram einhverja
fjárupphæð til stuðnings góðu
málefni í tilefni af 75 ára af-
mælinu. Fyrir valinu varð þró-
unarsjóður Alþjóðasamvinnu-
sambandsins.
Sambandið vildi á afmæli
sínu beina athygli að þróunar-
löndunum, að fátækt og neyð
fjölda fólks i þessum löndum
og nauðsyn þess, að meira verði
gert til þess að styrkja og efla
efnahag þessara landa. Stjórn
Sambandsins ákvað, að fram-
lag þess i þróunarsjóðinn skyldi
verða fimmfaldað í ár, úr 5
pencum fyrir hvern félags-
mann í 25 penc.
Erlendur afhenti siðan for-
seta ICA, Roger Kerinec, ávis-
un að upphæð 10 þúsund pund
og flutti alþjóðasambandinu
beztu óskir um góðan árangur
í því mikla starfi að bæta kjör
fólksins í þróunarlöndunum
með eflingu samvinnustarfs. 4
Erlendur Einarsson afhendir forseta Alþjóðasamvinnusambandsins
Roger Kerinec ávísun að upphæð 10 þúsund pund.
J. J. Musundi frá Kenya flytur ræðu og þakkar gjöf Sambandsins í
þróunarsjóðinn.
Frá setningu fundar framkvæmdanefndar Alþjóðasamvinnusambands ins að Hótel Sögu.
12