Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1977, Qupperneq 14

Samvinnan - 01.04.1977, Qupperneq 14
Haraldur Ólafsson lektor skrifar fyrir Samvinnuna Durkheim og vísindaleg félagsfræði í uppeldinu er börnum kennt að sjá og heyra. Þau skynja veröldina á þann hátt sem þeim er kynnt hún. Menningin er sú deigla, sem bræðir saman þá reynslu, sem hverjum og einum er unnt að öðlast. Fyrir nokkru skýrði ég frá hér i Samvinnunni, hvað merkilegast væri um kenning- ar franska rithöfundarins Montesquieu. Áhrif Montes- quieu voru margvísleg og náðu viða. Skynsemi laganna var lesin um allan hinn menntaða heim, og þegar í stað var farið að þýða kafla úr ritinu á aðrar tungur. Tæplega er þó unnt að segja, að hann hafi eignast lærisveina. Til þess er starf hans alltof viðamikið og hug- myndir þær, sem þar eru sett- ar fram eru svo margbreyti- legar að langan tíma hlaut að taka að melta þær allar. En félagsvísindi eftir hans dag taka á einhvern hátt mið af starfi hans. í hópi þeirra Frakka, sem tóku upp þráðinn eftir Montes- quieu má nefna menn eins og Saint-Simon, sem setti fram tillögur um skynsamiegt og réttlátt þjóðfélag. í því þjóð- félagi átti vinnan að vera und- irstaða alls. Saint-Simon var aðalsmaður að ætt og flúði í stjórnarbyltingunni til Eng- lands eins og fleiri aðalsmenn. Hann dvaldist þar í útlegð um hríð, en er hann sneri heim hafði hann algerlega snúið frá fyrri hugmyndum um forrétt- indi aðals og eignamanna. Hann boðaði, að útrýma ætti öllum, sem óþarfir væru í hinu skynsamlega þjóðfélagi, og þeir sem að hans mati voru öllum öðrum óþarfari voru aðals- menn, prestar, þ. e. a. s. há- klerkar og svo að sjálfsögðu lögfræðingar. Hann kvað ein- sætt, að lögfræðingar lifðu á deilum, sem risu vegna rang- látrar stjórnskipunar, og leiddi þvi af sjálfu sér, að þeir fengju engin verkefni i ríki þar sem friður og réttlæti ríkti. Einnig mætti nefna Fourier, sem taldi að heppilegasta stjórnarform- ið væri tengt smáum fram- leiðslueiningum, nokkurs kon- ar „kommúnum" og Proudon, sem hvað harkalegast réðist gegn eignaréttinum og er haft eftir honum slagorðið: eign er þjófnaður! Þeir, sem hér hafa verið nefndir telja, að unnt sé að breyta þjóðfélaginu og byggja það upp á vísindalegan hátt. Þeir telja sig hafa fundið for- sendur þess, sem miður fer, og jafnframt lækningu allra meina samfélagsins. Þeir álíta, að lög og reglur móti alla þjóð- félagsgerðina og hafna um leið þeirri skoðun, að skipan ríkis- ins sé komin eftir dularfull- um leiðum frá æðra mætti eða fyrir hálfgert kraftaverk. Að þessu leyti standa þeir á herð- um Montesquieu, sem lagði áherslu á, að þjóðfélagið ætti sér forsendur i ytri aðstæðum og innri löggjöf og reglum. Hann hafnaði guðlegri skipan þess og þá um leið hinu guð- lega konungdæmi. En þá var komið að þvi að búa til heiti á þá vísindagrein, sem leysa átti úr gátum þjóð- félagsins. Sá er fyrstur notaði orðið „sociologi“ um þá grein var Frakkinn Aguste Comte (1798-1857). Hann var heim- spekingur að mennt og hann vildi finna nákvæmari flokk- unar- og greiningaraðferðir en kennarar hans höfðu notast við. Hann lagði mikla áherslu á að fjalla einungis um það, sem væri raunverulegt, af- markað, raunhæft, ekki það, sem væri ímyndað eða óljóst. Þá taldi hann einnig, að hlut- verk heimspekinnar ætti að vera að kanna hið nytsamlega, ekki það sem ekkert gagn er að, ennfremur hið ljósa og ör- ugga, ekki það sem þoku er hul- ið eða illt að afmarka.Um allt hið jákvæða, nytsama, sem Comte vildi kanna notaði hann orðið ,,positif“. Hann notaði það í merkingunni raunhæfur, nytsamur, augljós, nákvæmur, og svo auðvitað: jákvæður. Stefna sú, er Comte mótaði kallast positivism, sem þýtt hefur verið raunspeki og fram- stefna eftir því í hvaða sam- bandi orðið er notað. Þar er fjallað um það, sem er raun- verulegt, en ekkert fengist við hugleiðingar um uppruna eða takmark hvers og eins. Comte taldi, að sagan sýndi, að mannkynið hefði farið af einu stigi þekkingar og skiln- ings á annað. Fyrst hafi verið stig trúarinnar, þegar tengsl- in við guði og máttarvöld voru alls ráðandi. Menn töldu allt stafa af guðum og máttarvöld- um, sem réðu gangi heimsins og örlögum manna. Þá komst mannkynið yfir á hið háspeki- lega stig, þegar menn reyndu að losna undan ofurvaldi trú- arbragðanna og fóru að gera 14

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.