Samvinnan - 01.04.1977, Side 15

Samvinnan - 01.04.1977, Side 15
sér skynsamlega grein fyrir al- heiminum og stöðu sinni i hon- um. Loks komust menn svo á hið raunhæfa stig. Þeim tókst að ná valdi á lífi sinu og um- hverfi og losna endanlega und- an valdi rangra hugmynda. Comte taldi, að lýsingar vís- indanna á fyrirbærum náttúr- unnar skýrðu föst sambönd þeirra og náttúrulögmálin væru ekkert nema þessi sambönd. Hann sagði að félagsfræðin ætti að fást við slík sambönd í þjóðfélaginu og öllum sam- skiptum manna, og óhugsandi væri að skýra félagslega hluti öðru vísi en með öðrum félags- legum fyrirbærum. Hann boð- aði það markmið hinnar nýju fræðigreinar, að hún skyldi finna lögmál um þjóðfélagið á sama hátt og náttúruvísindin á sínu sviði. Sá, sem hvað ötullegast vann að því, að þoka félags- vísindunum í átt að þessu markmiði var Emile Durkheim. Hann taldi að félagsvísindin yrðu að eiga sér i senn ákveðna aðferðafræði og ákveðið við- fang, sem væri óumdeilanlega þeirra einna. Emile Durkheim fæddist hinn 15. apríl 1858 í bænum Epinal í Voges-héraði i Lor- raine. Faðir hans var rabbi og svo höfðu forfeður hans verið mann fram af manni. Durk- heim ólst því upp í samheldnu samfélagi rétttrúaðra Gyðinga og honum var ætlað að verða rabbí eins og afar hans höfðu verið. Þegar á reyndi kaus hann þó heldur að ganga aðra braut. Foreldrar Durkheim voru fá- tækir, enda hafði faðir hans lág laun hjá söfnuðinum. Til að drýgja tekjurnar rak móð- ir hans svolitla hannyrðaversl- un. Durkheim hefur lýst því hve sterklega umhverfið mótaði hann á uppvaxtarárunum. Líf- ið í þessu samfélagi einkennd- ist af sterkum tengslum ein- angraðra og trúaðra manna. „Þetta var mikilvægt meðal Gyðinga, sem hafa orðið að þola almenna andúð öldum saman.“ Hann lýsir þessu sam- félagi sem fámennu, þéttriðnu samfélagi manna, er ekki gátu haft frjálsleg samskipti við þá sem í kringum bjuggu og voru af annarri trú. Gyðingarnir voru haldnir djúpstæðri sjálfs- vitund og einingartilfinningu. Lif hvers og eins var undir föstum reglum og nákvæmum, og hver og einn haf ði lítið svig- rúm til þess að nota eigin dóm- greind. Þegar Durkheim var 12 ára hertóku Prússar Epinal og hugsanlegt er, að þá hafi hann orðið var við Gyðingaofsóknir. Ósigur Frakka í styrjöldinni 1870 fyllti hann sterkri þjóð- ernistilfinningu og löngun til þess að vinna að endurnýjun og endurfæðingu Frakklands. Vafalaust hafa þessir at- burðir haft mikil áhrif á skoð- anir Durkheims á þvi hvernig heil þjóð getur fundið sjálf- krafa til á sama hátt. Hið gyðinglega uppeldi i einangr- uðu og samstæðu samfélagi hefur einnig mótað hugmynd- ir hans um mikilvægi samfé- lagsins fyrir allt tilfinninga- líf einstaklingsins. Durkheim hafnaði eins og áður sagði að gerast rabbí, en fór í þess stað til Parísar og lagði stund á heimspeki og varð kennari i þeirri grein við ýmsa menntaskóla. Hann ákvað brátt að skrifa doktorsritgerð um samband einstaklings- hyggju og sósíalisma. Þetta efni var að sjálfsögðu á sviði félagsfræði. Sú grein var ekki hátt skrifuð i Frakklandi um þessar mundir. Aguste Comte og lærisveinar hans höfðu gert úr henni trúarbrögð, og á fræðisviðinu fékkst hún ein- ungis við heimspekilegar al- hæfingar. Durkheim vildi hverfa frá skýrgreiningum á kenningum til raunveruleikans. í ritgerð sinni vildi hann fjalla um tengsl einstaklingsins og þjóðfélagsins, og sambandið á milli persónuleika einstaklings- ins og einingar þjóðfélagsins. Hann var þá þegar upptekinn af vangaveltum um það hvern- ig þjóðfélag loðir saman; hvað það er, sem veldur því, að fjöl- mennir og dreifðir hópar á mismunandi stigi menningar og efnahags geta myndað þjóð- félag. Og hann taldi að lausn þessa vandamáls yrði aðeins leyst á vettvangi hinnar nýju vísindagreinar, — félagsfræð- innar. í ritgerð um þátt Mon- tesquieu i mótun þjóðfélags- fræðinnar segir Durkheim: „Engu varð þokað áieiðis fyrr en staðfest var að lögmál þjóð- félagsins eru i engu frábrugð- in þeim, sem stjórna náttúr- unni, og þær aðferðir, sem not- aðar eru til að uppgötva þau eru í engu frábrugðin þeim, sem notaðar eru í öðrum vís- indum. Þetta var framlag Auguste Comte“. Hann segir ennfremur: „Takmark vort er að láta visindalega skynsemi- hyggju ná yfir mannlega hegð- un með því að sýna fram á, að hún er háð tengslum orsaka og afleiðinga, og þessi tengsl má með aðferðum skynseminn- ar gera að starfsreglum í fram- tiðinni“. Durkheim taldi, að vísindaleg aðferð á sviði fé- lagsvísinda tryggði, að unnt væri að rekja orsakir og af- leiðingu mannlegrar hegðunar, og þar af leiddi, að unnt ætti að vera að segja fyrir um fram- tiðar atferli. í formálanum fyrir doktorsritgerð sinni um vinnuskiptinguna i þjóðfélag- inu (De la division de la travail social) segir hann: „Rannsókn- ir væru einskis virði, ef vér teldum að þær hefðu einungis fræðilegt gildi. Ef vér reynum að skilja fræðileg viðfangsefni frá hinum hagnýtu, þá er það ekki gert vegna þess að vér viljum vanrækja þau síðar- nefndu, heldur miklu fremur til að gera oss fært að leysa þau“. Durkheim þráði að finna rannsóknum sinum tilgang og gera niðurstöður vísindalegrar aðferðar hagnýtar, og hann taldi þá og ætíð síðan að verk- efni félagsvísindanna, og þá einkum rannsóknir á vísinda- legri siðfræði, væri að finna grundvöll athafna. Félagsfræð- in varð að eignast aðferð og viðfang. Fyrst af öllu varð að afmarka svið hennar. Þjóð- félagið var eins og hvert ann- að rannsóknarviðfang, félags- leg fyrirbæri voru raunveruleg, orsakabundin og verkandi kraftar. Durkheim hafnaði skoðun hinnar klassísku hag- fræði á „hinum almenna manni“, slíkt væri einföldun, sem ekki ætti sér neina stoð í veruleikanum. Hann sagði, að maðurinn væri til í tíma og rúmi, hann ætti sér fjölskyldu, borg, þjóð, trú, pólitíska skoð- un, og þessir hlutir og margir aðrir blandast og tengjast á þúsund vegu, víxlast og spila saman svo ógerlegt er í fljótu Durkheim þreyttist aldrei á að predika, að einstaklingurinn sem slíkur sé fæddur af samfélaginu, en ekki samfélagið af einstaklingnum. 15

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.