Samvinnan - 01.04.1977, Síða 16

Samvinnan - 01.04.1977, Síða 16
Durkheim og vísindaleg félagsfræði Hvernig loðir þjóð- félagið saman? Hvað er það sem veldur því, að fjölmennir og dreifðir hópar á mismunandi stigi menningar og efna- hag geta myndað þjóðfélag? bragði að sjá hvar einn byrjar og annar endar. Það mun kosta langan tíma og ítarlegar rannsóknir áður en hægt er að meta gildi og mikilvægi hvers þessara þátta fyrir sig. Sam- félag er ekki hægt að líta á sem samansafn einstaklinga eingöngu. Það er eins raun- verulegt og lifandi likami, en auðvitað getur það ekki verið til án einstaklinganna. Heildin er annað og meira en þeir part- ar sem hún samanstendur af, en án þessara parta er hún ekki til. Að dómi Durkheims var það hið mikla afrek Comte að hafa gefið félagsvísindun- um „hlutstæðan veruleika til að rannsaka". Þessi veruleiki var samfélagsheildin, óháð eig- inleikum hvers einstaklings sem mynda þessa heild. Félags- verundin á sitt eigið eðli og lögmál. Fyrirbæri hennar eiga rót í huga einstaklingsins, en samfélagið er ekki stækkuð í- mynd einstaklings heldur sjálf- stæður veruleiki. Út frá þessum hugmyndum hóf svo Durkheim rannsóknir sínar á þjóðfélaginu og í áður- nefndri doktorsritgerð leitast hann við að finna hvaða sam- band er milli einstaklings og samfélags. Hann spyr beint út: „Hvernig gerist það, að fjöldi einstaklinga getur myndað samfélag, hvernig ná þeir sam- eiginlegri niðurstöðu um að vinna saman?“ Svar hans er að um tvenns konar einingu sé að ræða: vélræna einingu annars vegar, hins vegar líf- ræna einingu. Dæmi um vél- ræna einingu fann hann í ýmsum einföldum, frumstæð- um þjóðfélögum. Þar er mun- ur á einstaklingum lítill, þarf- ir allra eru svipaðar, langanir lítt frábrugðnar. Gildi eru fast- ákveðin og viðhorf til samfé- lagsins lík. Þjóðfélagið helst saman vegna þess hve einstakl- ingarnir eru líkir, verkaskipt- ingin lítil og samfélagið sjálfu sér nægt. Hið lifræna samfélag ein- kennist af mikilli fjölbreytni, víðtækri verkaskiptingu, mis- muni á einstaklingum og hóp- um. Þessi margbreytni og sundurleitu sjónarmið, langan- ir og gildi veldur því, að menn verða að komast að samkomu- lagi um lög og reglur, stjórn og eftirlit. Hin mikla verkaskipt- ing veldur því, að menn verða háðir hver öðrum á allt ann- an hátt en í hinum vélrænu samfélögum, þar sem einstakl- ingarnir hafa fábreytilegar þarfir og geta sjálfir fullnægt þeim að vissu marki. í þessu verki koma fram hugmyndir Durkheim um það sem kalla mætti samvitund heildarinnar (conscience collectif) og hefur þegar verið gerð nokkur grein fyrir i hverju hún er fólgin. Þessi tilgáta Durkheim geng- ur eins og rauður þráður gegn- um verk hans. Hann þreytist aldrei á að predika, að ein- staklingurinn sem slíkur sé fæddur af samfélagmu en ekki samfélagið af einstaklingnum. í riti því sem hann gaf út skömmu eftir, að doktorsrit- gerð hans um atvinnuskipting- una i þjóðfélaginu birtist, fjall- ar Durkheim um aðferðafræði þá, sem hann beitir við úrlausn viðfangsefna félagsfræðinnar. Hann segir þar, að félagsleg fyrirbæri verði ekki skýrð nema í ljósi annarra félags- legra fyrirbæra. Það þýðir raunverulega ekki annað en það, að hann hafnar þeirri skoðun, að unnt sé að rekja félagsleg fyrirbæri til sálrænna þátta meðal einstaklinga þeirra, sem þjóðfélagið saman- stendur af. Hann vísar því líka á bug, að aðferðir náttúrufræði eða hreinna vísinda komi að gagni við úrlausn félagslegra viðfangsefna. Féiagsfræðin verður að eiga sér eigin aðferð- ir, og þá fyrst sé hægt að finna lögmál þau, sem samfélagið hlitir. Rannsóknarefni félags- fræðinga eru félagslegar staðreyndir (fait social). Hann greinir á milli félagslegra fyr- irbæra og félagslegra stað- reynda. Hið fyrrnefnda er sam- eiginlegt tilteknum hópum og getur verið einstaklingsbundið. Félagslegar staðreyndir hins vegar eru almennar innan hópa en aldrei einstaklings- bundnar. Þessi skilgreining er langt frá því að vera fullnægj- andi, og oft virðist Durkheim eiga i nokkrum erfiðleikum með að halda þessu tvennu skýrt aðgreindu. Um félags- legar staðreyndir segir Durk- heim i aðferðafræði sinni, að þær séu athafnir, hugsanir, til- finningar, sem eiga upphaf utan einstaklingsins, hafi áhrif á hann, þvingi hann þannig, að hann losni aldrei undan á- hrifavaldi þeirra. Stöðugt eru að verki félagsleg öfl, sem ráða miklu um viðbrögð, hugsanir, tilfinningar hvers og eins. í uppeldinu er börnum kennt að sjá og heyra, — þau skynja veröldina á þann hátt sem þeim er kynnt hún. Menning- in er sú deigla, sem bræðir saman þá reynslu, sem hverj- um og einum er unnt að öðlast. Menn vita lítið um þessi öfl, og oft á tíðum greina þeir ekki á milli þess, sem er þeim með- vitað og þess sem þeir halda að þeir geri af frjálsum vilja. Félagskraftarnir virka stöðugt, og þessa krafta á félagsfræð- ingurinn að rannsaka, greina, óg hafa stjórn á! Rannsókn á þessum félags- legu staðreyndum er ýmsum erfiðleikum háð. Fyrst og fremst er við þann eilifa vanda félagsvísindanna að striða, að viðfangsefnið og rannsóknarefnið er eitt og hið sama. Þá er mismunurinn á þjóðfélögum harla mikill, og ó- víst hvort hægt er að bera saman óskyld samfélög nema að litlu leyti. Til að komast fram hjá þessum skerjum verð- ur að beita mjög strangri vis- indalegri aðferð við að skil- greina hinar félagslegu sta'o- reyndir, sem rannsaka skai hverju sinni. Þær verða aö hafa sameiginleg og tiltekin ytri einkenni, og öll þau fyrir- bæri, sem svara til skilgrein- ingarinnar verður að taka með i rannsóknina. Með hliðsjón aí þvi, að tilraunir eru ekki fram- kvæmanlegar í félagsfræði á svipaðan hátt og t. d. í eðlis- fræði og efnafræði, þá verður að afmarka hinar félagslegu staðreyndir það nákvæmlega, að hægt sé að flokka þær af mikilli nákvæmni. Félagsfræð- in er rannsókn á tengslum við- burða, sögulegra eða yfir- standandi. Durkheim segir: „Félagsfræðin er vísindin um þau lögmál, sem gilda um inn- viði, gerð, hópa i samfélagi og samskipti þeirra. Hún fjallar um innri þróun hópanna og samskipti þeirra." Hann hafn- aði því, að gera þyrfti tilraun- ir til þess að skilja félagsleg fyrirbæri og félagslegar stað- reyndir. Til að skilja þær og skýra er nóg að einangra þær og skilgreina. Félagslegar stað- reyndir verður að fara með eins og hverja aðra hluti, ekki sem hugtök. Einungis á þann hátt er unnt að flokka þær af nákvæmni og skilja þær. Durkheim lét ekki við það sitja að setja fram nákvæmar reglur, heldur hóf hann ötult starf að því að rannsaka fé- lagslegar staðreyndir. Hann valdi ekki viðfangsefni sitt út í bláinn. Til að sýna gagnsemi kenninga sinna tók hann sér fyrir hendur að skýra fyrir-

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.