Samvinnan - 01.04.1977, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.04.1977, Blaðsíða 17
bæri, sem flestir mundu í fljótu bragði telja sérlega einstakl- ingsbundið og óháð samvitund þjóðar eða hóps. Durkheim rannsakaði og birti niðurstöð- ur sínar um þetta efni í riti sem nú er sígilt orðið: Sjálfs- morðið. í þessu merkilega verki er að finna lýsandi dæmi um vísindalega hæfni og hug- mvndaauðgi Durkheim. Langt mál mætti rita um þetta verk og þýðingu þess fyr- ir allar félagsfræðirannsóknir tuttugustu aldarinnar. Hér verður þó aðeins getið örfárra atriða, sem sýna hvernig Durk- heim beitir aðferð sinni. Fyrsta verk Durkheim er að afmarka hvað í fyrirbærinu sjálfsmorð felst. Hann flokkar niður aðferðir þær, sem menn hafa við að svipta sig lífinu og kemst að þeirri niðurstöðu, að þær hafa ekki áhrif á aðal- atriðið, sem er að viðkomandi einstaklingur fyrirfer sér. Til að fá upplýsingar um sjálfs- morð leitar Durkheim i opin- berar skýrslur um þau. Raðar síðan niður sjálfsmorðum eftir aldri, kyni, starfi, búsetu, trú- arbrögðum o. s. frv. Síðan at- hugar hann sveiflur á sjálfs- morðum innan þessara flokka hvers fyrir sig. Að þessu loknu hefur hann i höndum þá fé- lagslegu staðreynd sem er sú að sjálfsmorð er ekki einstakl- ingsbundin athöfn heldur fé- lagsleg! Á hverju byggir Durkheim þessa fullyrðingu? Á því, að til sé í hverju samfélagi ákveð- inn fjöldi af fólki, sem fremji sjálfsmorð, og þessi fjöldi á- kvarðist af öflum, sem eru samfélagsleg, en ekki einstakl- ingsbundin. Með öðrum orðum: fólk fremur sjálfsmorð vegna þess að það er félagslegt afl, sem viðurkennir sjálfsmorð, hvetur til þess, gerir ráð fyrir því. Mismunandi sjálfsmorðs- tíðni eftir löndum, aldri, kyn- ferði, hjúskaparstöðu o. s. frv. er til vitnis um að félagsleg öfl séu að verki. Durkheim taldi ennfremur, að hægt væri að flokka tegundir sjálfsmorða niður eftir samfélagsgerð, trú- arbrögðum og stétt. Hér hefur mjög stuttlega verið sagt frá nokkrum megin- atriðum félagsfræðikenninga Durkheim. í annarri grein mun ég segja nánar frá kenningum hans og rannsóknum á því, sem hann kallar heilbrigt og sjúkt þjóðfélag, og hvernig hann leitar uppruna trúar- bragða í samfélaginu sjálfu en ekki utan þess. 1 Marsmorgunn í Reykjavík Á sjöunda tímanum loga Ijós í kapellunni í Landakotsspítala. Þar er útlend systir að biðjast fyrir á máli sem aðeins Guð skilur. Himinninn er farinn að lýsast í austri. Það er logn og fjögurra stiga frost. Turn Hallgrímskirkju gnæfir yfir hús og fjöll með lýsandi krossi. í fáum húsum er Ijós, fáir eru á ferli og fátt um bíla líkt og á hvíldardegi. En það varir ekki lengi. Þegar sólin rís upp rétt fyrir hálf níu er borgin vöknuð og krossinn á Hallgrímskirkju sýnist fjarlægur vegna birtunnar. Frá Landakotsspítala ekur svartur bíll með einhvern sem ekki mun fá að sjá þennan fagra dag. Jóhann Hjálmarsson

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.